Lissie

1.7.2010 - Kristjana

Lissie er fædd 82 í Illinois. Fínn árgangur! Hún hætti í skóla á síðasta árinu sínu í high school, flutti yfir á vesturströndina og endaði í Los Angeles þar sem hún ætlaði að meika það.

Fyrsta EP kom út árið 2007 (Lissie). Árið 2008 túraði hún um USA með Lenny Kravitz, lögin hennar voru notuð í sjónvarpsþáttum eins og House og The O.C. og kom fram á SXSW. 2009 gaf hún svo út aðra EP, Why You Runnin’, sem bassaleikarinn úr Band of Horses (Bill Reynolds) pródúseraði, hitaði upp fyrir Ray Lamontagne og vann að debut plötunni sinni, Catching a Tiger, með Jaquire King (annar pródúseranna á bakvið Only by the Night með Kings of Leon). Spennandi!

Í byrjun þessa árs kom platan svo út. Popp-rokk-skotið folk með æðislegri rödd. Við fyrstu hlustun langaði mig að hoppa 30-40 ár aftur í tímann, rúnta um á blæjubíl og drekka kók í gleri. Hvernig er annað hægt:


Little Lovin’ tekið live á Glastonbury

Nokkur vel hype-uð cover (Pursuit of Happiness með Kid Cudi, Bad Romance með Lady Gaga, Ramona með Bob Dylan, Nothing Else Matters með Metallica), brjálæðisspilerí til að kynna plötuna, The Great Escape í Brighton (fékk m.a. Ellie Goulding til að syngja með sér) og Glastonbury? Þessi stelpa er yndi!

Mér fannst originallinn góður en coverið er, mögulega, enn betra:

Lissie – Little Lovin’
Lissie – Oh Mississippi
Lissie – Pursuit of Happiness (Kid Cudi cover)
Kid Cudi feat. MGMT & Ratatat – Pursuit of Happiness

Tags: , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin