Tónleikar vikunnar! – Uppfært
1.3.2011 - Kristín Gróa
Miðvikudagur
Nemendur á Hugvísindasviði Háskóla Íslands fagna 100 ára afmæli háskólans með dagskrá öll miðvikudagskvöld í mars. Í þetta sinn eru það guðfræði- og heimspekinemar sem sjá um dagskrána og mun hún verða sambland af erindum og tónlist. Við höfum auðvitað mestan áhuga á tónlistinni og verður m.a. hljómsveit að spila Nick Cave lög og Soffíubandið ætlar að spila heimspekilög (hvað svo sem það á að þýða!). Á Faktorý kl. 20:00. Sjá nánar hér.
Fimmtudagur
Á Faktorý verður aldeilis veisla á fimmtudagskvöldið því Rökkurró og Sudden Weather Change ætla að troða upp. Húsið opnar 21:00 en tónleikarnir hefjast 22:00. Þúsundkall inn. Sjá nánar hér.
Á Dillon stíga Gang Related á svið kl. 22:00. Á eftir koma Markús and the Diversion Sessions og að lokum . Ókeypis inn. Sjá nánar hér.
Gogoyoko heldur fyrstu tónleikana í nýrri tónleikaröð í samvinnu við Hressingarskálann, samkvæmt facebook-eventinum þá “munu gogoyoko.com og Hressó standa fyrir tónleikum fyrsta fimmtudag hvers mánaðar með frambærilegustu böndum landsins.” Bloodgroup er fyrsta bandið til að spila og þau byrja kl. 22:00 og það er ókeypis inn.
Föstudagur
Á Dillon verður Creedence Clearwater Revival heiðurskvöld og er það hljómsveitin Gutl sem mun sjá um spileríið. Tónleikarnir hefjast 22:30 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.
Á NASA verður danssprengja og mikil gleði því Alex Metric verður með DJ set og Bloodgroup munu hita upp fyrir hann. Miðaverð í forsölu er 1500 kall og er miðasalan á midi.is. Sjá nánar hér.
Laugardagur
Fyrsta Kanilkvöldið fer fram á Faktorý á laugardagskvöld en það er röð af dansidjammkvöldum sem fer fram í hliðarsalnum á neðri hæðinni. Frítt inn! Sjá nánar hér.
Á efri hæðinni verður ekki síðri dagskrá því þar munu Berndsen, Jungle Fiction og Ultra Mega Technobandi Stefán halda uppi stuðinu. Húsið opnar 23:00 og það er frítt inn! Sjá nánar hér.
Á Sódómu fer fram hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle þar sem sex hljómsveitir munu berjast um heiðurinn að komast út til Þýskalands að spila á Wacken Open Air og taka þátt í lokakeppninni. Í viðbót við hljómsveitirnar sex munu sveitirnar Skálmöld, WistariaMoldun koma fram. Byrjar 20:30 og kostar þúsundkall inn. Sjá nánar hér.
Á Bakkus verður sannkölluð karnivalstemning í tilefni carnivalsins í Rio De Janeiro. Fram koma Tropicaliasveit Kristínar og Samúel Jón Samúelsson Big Band. Húsið opnar 21:00 og það er frítt inn! Sjá nánar hér.
Á Relax (sem er á Dalshrauni í Hafnarfirði) verða Blues Willis og Mighty Good Times með tónleika. Ókeypis inn og partíið byrjar kl 23:00
Sunnudagur
Á Faktorý verður sunnudagsjazzinn eins og alltaf. Byrjar kl. 21:00, ókeypis inn og “Áhugasamir jazzarar eða söngvarar eru velkomnir í hópinn.”
Eins og áður biðjumst við velvirðingar á því ef eitthvað vantar en bendum ykkur jafnframt á að láta okkur vita af því með athugasemd eða tölvupósti á toppfimmafostudegi[at]gmail.com eða með því að skrifa á Facebook vegginn okkar.
Tags: Alex Metric, Berndsen, Bloodgroup, Blues Willis, Creedence Clearwater Revival, Gang Related, Gutl, Jungle Fiction, Markús and the Diversion Sessions, Mighty Good Times, Moldun, Nick Cave, Note To Self, Rökkurró, Samúel Jón Samúelsson Big Band, Skálmöld, Sudden Weather Change, Tropicaliasveit Kristínar, Ultra Mega Technobandið Stefán, Wistaria
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off
Tónleikasamantekt *uppfært*
16.2.2011 - Georg Atli
Það er komið að samantektinni, en sökum þess að það er bara ansi mikið að gera hjá okkur núna þá erum við að setja hana saman í smá skömmtum. Þess vegna er alveg líklegt að við séum að missa af einhverju og þið verðið bara að tjékka reglulega á okkur næstu daga til að sjá hvort að þessi færsla verði ekki uppfærð (mér finnst það líklegt).
Ef þið vitið um eitthvað sem er ekki hérna inni þá er um að gera að senda okkur ábendingu um það í tölvupósti: toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com setja comment eða bara að skella því á facebook vegginn okkar
Miðvikudagur
Í kvöld far náttúrulega allir á Faktorý að sjá myndina hans Vincent Moon. Byrjar um 21:00 og það er frítt inn!
Fimmtudagur
Í Austurbæ verða Agent Fresco með útgáfutónleika. Húsið opnar kl. 20:00 og miðaverðið er 1500 kall í forsölu en 2000 við hurð.
Prinspóló ætlar líka að vera með útgáfutónleika, þeir verða á Faktorý og byrja kl. 22:00. Einungis 1000 kr. inn.
Lights on the Highway verða á Sódómu. Tónleikarnir byrja kl. 21:00, 1000 kall inn og Arnar Ingi (The Johnny Cash Kid) sér um upphitun.
Brother Grass ætluðu svo að vera með tónleika á Rósenberg en þeim þurfti því miður að fresta þar til 8. mars.
Föstudagur
Á Sódómu verður Föstudagsgleði með Rökkurró, For a Minor Reflection, Útidúr og Lockerbie
Saytan og Nolo verða á Bakkus, tónleikarnir byrja kl. 22:00 og það kostar ekkert inn.
Two Tickets To Japan,Morgan Kane og Moy verða á Dillon. Herlegheitin byrja kl. 22:00 og eins og oftast þá kostar ekkert inn.
Laugardagur
Endless Dark verða með útgáfutónleika á Sódómu. Þarna verða tvennir tónleikar annars vegar kl. 16, þar sem að allir aldurshópar eru velkomnir og Helgi Valur spilar líka þá. Seinni tónleikarnir kl. 22:00, en þar er 18 ára aldurstakmark og þá bætist BlazRoca við flytjendur.
Mighty Good Times, Caterpillarmen og Dorian Gray spila á Dillon. Húsið opnar kl. 21:00 og það er ókeypis inn
Sunnudagur
Það verður Jazzað á Faktorý á sunnudagskvöld. Jazzkvöldið byrjar uppúr 21:00
Tags: Agent Fresco, Arnar Ingi, BlazRoca, Brother Grass, Caterpillarmen, Dorian Gray, Endless Dark, For a Minor Reflection, Helgi Valur, Lights on the Highway, Lockerbie, Mighty Good Times, Morgan Kane, Moy, Nóló, Prinspóló, Rökkurró, Saytan, Two Tickets To Japan, Útidúr
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Topp 5 íslenskar plötur – Georg Atli
14.1.2011 - Georg Atli
Mér fannst þetta síðasta ár vera alveg rosalega gott tónlistarár og sérstaklega þegar ég hugsa um íslenska tónlist. Fjölbreytnin er svakaleg og það er ekkert smá flott íslensk tónlist sem kemur út í næstum því hverri viku. Það er erfitt að fylgjast með allri þessari frábæru íslensku tónlist og ég verð eiginlega bara að biðjast afsökunar á því að hafa ekki hlustað nærri því nógu mikið á íslenska tónlist á árinu og þar með nefna ekki einhverja plötur hérna sem að ættu að vera hér….
en hér koma fyrst nokkrar plötur sem að komust næstum inn á loka Topp 5 listann minn :
(í engri sérstakri röð)
Retro Stefson – Kimbabwe -> Rosa flott plata.
Orphic Oxtra – Orphic Oxtra -> Íslenskt Balkan/Klezmer band… getur eiginlega ekki klikkað.
Stafrænn Hákon – Sanitas -> Aðgengilegasta platan þeirra hingað til og sú besta.
Prinspóló – Jukk -> Óvæntasta plata ársins og fáránlega skemmtileg, einlæg, fyndin og góð
Rökkurró – Í Annann Heim -> Virkilega flott plata.
Apparat Organ Quartet – Pólýfónía -> Snillingar
Agent Fresco – A Long Time Listening -> Loksins kom platan og hún var alveg þess virði að bíða.
Útidúr – This Mess We Made -> Er mjög spenntur fyrir þessu bandi, frábær á tónleikum
Nolo – No-Lo-Fi -> Eðal
Topp 5 íslensku plötur ársins:

5. Ólafur Arnalds – …And They Have Escaped The Weight of Darkness
Ég veit ekkert hvernig ég á að útskýra hvers konar tónlist þetta er… nema með því að segja að hún sé ótrúlega falleg. Ólafur Arnalds er alveg örugglega færasta tónskáld okkar Íslendinga.
Lag: Þú ert Sólin

4. Miri – Okkar
Miri-liðar sendu frá sér svo góða plötu að þeir endurvöktu fyrir mér löngu dauða tónlistartegund. Æðisleg plata í alla staði.
Lag: Góða Konan

3. Seabear – We Built a Fire
Seabear er topp hljómsveit og sendi frá sér frábæra plötu. We Built a Fire er hressari en fyrri platan og það er alls ekkert verra. Þetta er svona plata sem þú hlustar á einu sinni og tekur kannksi ekkert rosalega eftir henni í fyrstu hlustun en hún síaðist samt inn í hausinn þinn og þú hreinlega verður að hlusta aftur og þá fattaru að hún er geðveikt góð.
Lag: Lion Face Boy
2. Hljómsveitin Ég – Lúxus Upplifun
Ég er hef verið ánægður með þessa hljómsveit alveg frá því að Plata Ársins kom út og hef aldrei almennilega skilið afhverju hún þykir ekki meira kúl en hún er. Lúxus Upplifun er alveg rosalega góð, hún er einlæg, skemmtileg og vex með hverri hlustun.
Lag: Já/Þessir Vísindamenn

1. Sóley – Theater Island (E.P.)
Það er kannski smá svindl að setja E.P. plötu í efsta sætið en mér er alveg sama,. Sóley úr Seabear sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu á árinu og hún er klárlega plata ársins. Hún er frekar einföld, dregin áfram á píanó og söng og það er ekkert verið að gera einhverja flækjur bara til að gera flækjur. Ég vona bara að hún sendi eitthvað meira frá sér fljótlega.
Lag: Blue Leaves
Tags: Agent Fresco, Apparat Organ Quartet, Hljómsveitin Ég, Miri, Nóló, Ólafur Arnalds, Orphic Oxtra, Prinspóló, Retro Stefson, Rökkurró, Seabear, Sóley, Útidúr
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off
Tónleika samantekt! *uppfært*
13.1.2011 - Georg Atli

Það virðast vera einhver rólegheit í tónleikahaldi borgarinnar þessa helgina en á móti kemur að þeir tónleikar sem verða örugglega flottir.
Fimmtudagur
NASA heldur svakalega stuðningstónleika á fimmtudagskvöldinu, þeir verða til stuðnings 9-menningunum. Það er alveg fáránlega flott line-up en fram koma m.a.
Páll Óskar, Sin Fang, Diskóeyjan, KK og Ellen, Parbólurnar, Reykjavík!, Múm, Steini úr Hjálmum, Prinspóló, Ellen K og Pétur H., Elín Ey og svo verður óvæntir leynigestir. Þannig að þetta verður væntanlega alveg svakalegt. Það kostar amk. 500 kr. inn (þar sem þetta eru styrktartónleikar þá má alveg borga meira) og tónleikarnir byrja kl. 20:30.
Fimmtudagsrokkið er á sínum stað á Dillon og þar ætla hljómsveitirnar Draumhvörf, Moy og Thetans of Punchestown að spila. Það kostar ekkert inn og tónleikarnir byrja kl. 22
Föstudagur
Ókeypis rokkið heldur áfram á Dillon en nú eru það El Camino, Finnegan og Foreign Monkeys að spila. Byrjar kl. 22 og eins og fyrr sagði er ókeypis inn.
Laugardagur
Á Sódóma verða Agent Fresco, Rökkurró og Loji að trylla lýðinn (býst ég við). Það kostar 1000 kall inn og byrjar kl. 22:00 ->Two Tickets to Japan bættust við þetta kvöld
Á Dillon verða enn og aftur rokktónleikar, Cliff Clavin, Finnegan og Tamarin spila. Þeir byrja kl. 22:00 og nú kostar 500 kall inn.
Allar nánari upplýsingar (linkar á m.a. facebook eventa o.fl.) má finna á tónleikadagatalinu okkar (bara smella á dagsetninguna). Erum við að gleyma einhverju?? Sendu okkur þá línu á toppfimmafostudegi@gmail.com
Tags: Agnet Fresco, Cliff Clavin, Diskóeyjan, Draumhvörf, El Camino, Elín Ey, Ellen K og Pétur H., Finnegan, Foreign Monkeys, KK og Ellen, Loji, Moy, Múm, Páll Óskar, Parbólurnar, Prinspóló, Reykjavík!, Rökkurró, Sin Fang, Steini úr Hjálmum, Tamarin, Thetans of Punchestown
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Tónleika samantekt!!
5.1.2011 - Georg Atli
Eins og næstum alltaf þá er fullt að gerast í tónleikahaldi í Reykjavík.
Miðvikudagur
Þessi póstur kemur pínu seint fyrir miðvikudagstónleikana en kl. 22:00 verður hljómsveitin Blæti á Hemma og Valda
Fimmtudagur
Júníus Meyvant, Rökkurró, Mukkaló og Myrra Rós ætla að spila í Fríkirkjunni í Reykjavík. Tónleikarnir byrja kl. 20:00 og það kostar 1000 kr. inn
Á Faktorý ætla Moses Hightower og Forgotten Lores að spila saman og það meira að segja bókstaflega, því að á einhverjum tímapunkti verða hljómsveitirnar saman á sviðinu. Það ætti að verða mjög áhugavert því að þessar hljómsveitir eru svakalega flottar á sviði og það verður örugglega gaman að heyra það sem þau spila saman, svo verður líka áhugavert að sjá hvort að það komist allir fyrir á sviðinu í einu…. svo kostar bara 1000 kall inn og tónleikarnir byrja stundvíslega kl. 22:00
Síðan verða Retro Stefson með ókeypis tónleika á Bakkus og þar ætlar einhver leynigestur/hljómsveit að mæta líka. Partýið byrjar kl 10:30
Föstudagur
Á Sódómu verður FALK kvöld og þar verða Manslaughter, Krakkkbot, Krakkkslaughter, AMFJ, Oberdada von Brútal og Auxpan og á milli atriða ætlar DJ Djammhamar að spila.
Á Faktorý verða útgáfutónleikar We Made God en þeir voru að gefa út plötuna It’s Getting Colder með þeim ætla Rökkuró og Sleeps Like an Angry Bear að spila. Húsið opnar kl. 22:00 og fyrsta band fer á svið kl. 23:00, 500 kr. inn en fyrir 2000 færðu bæði plötuna og tónleikana.
Laugardagur
Á Laugardeginum verða svo ferðastyrktartónleikar Who Knew (eins og við sögðum frá í gær). Þeir fara fram á Sódómu og með Who Knew spila Sing for Me Sandra og Nolo að sjá um stuðið, 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja 22:00
Allar nánari upplýsingar eru að finna í tónleikadagatalinu okkar (sem er til hægri) við erum hægt og rólega að vinna í því að fylla inn í það lengra fram í tímann.
Eins og alltaf er svo hægt að senda okkur tónleika ábendingar á póstfangið toppfimmafostudegi@gmail.com eða þá pósta því á facebook vegginn okkar (endilega að like okkur og jafnvel deila gleðinni!). Svo má alltaf líka senda okkur eitthvað annað áhugavert efni sem er ekki tónleikatengt.
Tags: AMFJ, Auxpan, Blæti, DJ Djammhamar, Forgotten Lores, Krakkkbot, Krakkkslaughter, Manslaughter, Moses Hightower, Mukkaló, Myrra Rós, Nóló, Oberdada von Brútal, Retro Stefson, Rökkuró, Rökkurró, sing for me sandra, Sleeps Like an Angry Bear, úníus Meyvant, We Made God, Who Knew
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | 2 athugasemdir »
Agent Fresco gefur út A Long Time Listening
11.11.2010 - Kristjana
Agent Fresco er í uppáhaldi hjá mér. Mér fannst því svooolítið mikið gaman að fá þetta sent:
Agent Fresco var stofnuð í byrjun árs 2008 og vakti sveitin fyrst verðskuldaða athygli þegar hún sigraði Músíktilraunir 2008. Í kjölfarið gaf sveitin út sína fyrstu smáskífu Eyes of a Cloud Catcher sem fékk mjög góðar viðtökur og náði m.a. topp sæti X-dómínós listans á X-inu FM 97,7. Í desember sama ár kom EP platan Lightbulb Universe út og fékk hún frábærar viðtökur tónlistarunnenda og gagnrýnenda. Ber þar m.a. að nefna að platan hlaut verðlaun hjá Kraumi tónlistarsjóði, gagnrýnandi Morgunblaðsins veitti plötunni fjórar og hálfa stjörnu og breska tónlistarritið Kerrang gaf smáskífunni fullt hús stiga. Á íslensku tónlistarverðlaununum var Agent Fresco kosin Bjartasta vonin árið 2008.
Upptökur á breiðskífunni A Long Time Listening hófust í júlí á þessu ári. Í september sl. kom fyrsta smáskífan af laginu Translations út og hefur lagið verið í spilun á útvarpsstöðvum undanfarnar vikur.
Þann 22. nóvember n.k. sendir hljómsveitin frá sér sína fyrstu breiðskífu sem ber heitið A Long Time Listening. A Long Time Listening hefur verið í vinnslu í rúm 2 ár en meðlimir hljómsveitarinnar þeir Arnór Dan Arnarson, Hrafnkell Guðjónsson, Þórarinn Guðnason og Vignir Rafn Hilmarsson sem gekk til liðs við sveitina í júlí 2010, hafa undanfarna 3 mánuði lokað sig af inni í stúdíói við upptökur. A Long Time Listening inniheldur 17 lög sem mynda eina heild, þar af eru 12 splunkuný en fimm laganna, hér í nýrri upptöku, er einnig að finna á smáskífuplötunni Lightbulb Universe sem út kom árið 2008.

Á lokastigi upptökuferilsins fengu strákarnir góða vini til að syngja kór í titillagi plötunnar. Þar ber m.a. að nefna hljómsveitarmeðlimi hljómsveitanna Mammút, Dikta, Rökkurró, For A Minor Reflection o.fl.
Agent Fresco bjóða í hlustunarpartý á breiðskífunni A Long Time Listening á Kaffibarnum 17. nóvember kl 21:00. Boðið verður upp á léttar veitingar og platan spiluð í heild sinni. Úgáfutónleikar verða haldnir á nýju ári.
Tags: Agent Fresco, Dikta, For a Minor Reflection, Mammút, Rökkurró
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off
Tónleikar vikunnar!
10.11.2010 - Georg Atli
Það er ekki alveg jafn mikið að gerast í þessari viku og síðustu, enda væri það erfitt. Samt er fullt að gerast ens og alltaf:
Á miðvikudag er raftónlistarveisla á Kaffibarnum, þar ætla Dj AnDre, Beatmakin Troopa, Pulse, Jafet Melge og leynigestur að leika fyrir dansi. Þar byrjar partýið kl. 21:00, 1000 kr inn og fordrykkur fylgir.

Fimmtudag er seinna kvöld veislunnar á Kaffibarnum. Í þetta skiptið eru það Stereo Hypnosis, Pulse, Ruxpin, Johann Eiriksson og Dj AnDre sem sjá um stuðið. Eins og á miðvikudeginum byrjar ballið kl. 21:00, 1000 kall inn og fordrykkur fylgir. Á Faktorý verða huggulegheitin í algleymingi þar sem Lay Low, Rökkurró og Of Monsters and Men verða að spila. 1000 krónur við hurð og tónleikarnir byrja stundvíslega kl. 21:00. Sódóma verður með Deep Purple tribute tónleika og þar fer Eyþór Ingi fer fyrir bandinu. 1200 kall inn og tónleikarnir hefjast kl. 21:00. Langi Seli og Skuggarnir verða með ókeypis tónleika kl. 22:30 á Dillon. Á NASA ætla Dikta og Cliff Clavin að vera með tónleika í boði Nova. Tónleikarnir byrja kl. 22:30 og ef þið eruð með Nova síma er ókeypis inn! Að lokum langar mig að benda á að Sinfóníuhljómsveit Íslands ætlar að spila undir kvikmynd Charlie Chaplin, Borgarljós. Það fer fram í Háskólabíó kl. 20:00 og miðinn kostar 2500 kr sem hlýtur að vera góður díll fyrir sinfóníu tónleika og klassíska bíómyndasýningu!

Á föstudaguskvöldið verða Varsjárbandalagið á Rósenberg og Chaplin og Sinfó verða aftur í Háskólabíó undir nákvæmlega sömu formerkjum og á fimmtudegi. Jaðarpönkrokkararnir í Gun Outfit ætlar að koma frá USA og spila á Faktorý ásamt hljómsveitunum My Summer as a Salvation Soldier, Saktmóðigur og Me the Slumbering Napoleon, 1000kall inn og byrjar kl. 22:00. Það verða svo Pearl Jam tribute tónleikar á Sódóma en Magni “Rockstar” Ásgeirsson og Franz “Ensími” Gunnarsson ætla að rokka Eddie Vedder style ásamt hljómsveitinni sinni Elsu Sultan, þar byrjar allt kl. 23:00 og það kostar 1500 inn.

Varsjárbandalagið verða aftur á Rósenberg á laugardeginum og á Sódóma verður rokkað allan daginn, eða nánast. XIII og Sólstafir ætla að vera með tónleika fyrir alla aldurshópa kl 16:00 (500 kall inn) og svo um kvöldið verða þau aftur en þá bætast við hljómsveitirnar Stafrænn Hákon og Skálmöld. Kvölddagskráin (næturdagskráin?) hefst kl. 00:00 og þá kostar 1000 kr. Á Faktorý verða svo Bjartmar og Bergrisarnir og þar kostar 1000 kr. inn og þeir ætla að byrja kl. 23:00. Techno.is verða svo með techno kvöld á NASA það kostar 2990 kr inn og það byrjar kl. 23:30. Pendulum, Exos, A.T.L., Agzilla, Plugg’d og fleiri ætla að sjá um stuðið.
Á sunnudagskvöld verður svo fínt að ná sér niður eftir techno geðveikina með því að fara á Rósenberg og hlusta á hljómsveitina Brother Grass, sem spilar bluegrass og meðal hljóðfæra er þvottabali og gyðingaharpa. Þar kostar 1000 kall inn (500 fyrir námsmenn) og samkvæmt facebook eventinum þá eru þau víst posalaus þannig að þetta eru cash-only tónleikar.
Í flestum tilfellum er hægt að finna nánari upplýsingar (facebookeventa og svoleiðis) í Tónleikadagatalinu okkar hér til hliðar. Ef þú veist um einhverja tónleika sem ekki eru á listanum okkar þá máttu endilega senda uplýsingar um það á toppfimmafostudegi@gmail.com, við setjum alla tónleika sem við vitum af inn á dagatalið okkar. Langar líka að benda á facebook takkann sem er efst til hægri á síðunni en þar er hægt að bæta sér á Topp 5 facebook síðunna okkar og fylgjast með því sem er að gerast á síðunni!
Tags: A.T.L., Agzilla, Beatmakin Troopa, Bjartmar og Bergrisarnir, Brother Grass, Dj AnDre, Elsu Sultan, Exos, Eyþór Ingi, Franz Gunnarsson, Gun Outfit, Jafet Melge, Johann Eiriksson, Langi Seli og Skuggarnir, Lay Low, Magni Ásgeirsson, Me the Slumbering Napoleon, My Summer as a Salvation Soldier, of monsters and men, Pendulum, Plugg'd, Pulse, Ruxpin, Rökkurró, Saktmóðigur, Skálmöld, Sólstafir, Stafrænn Hákon, Stereo Hypnosis, Varsjárbandalagið, XIII
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off


