Uppgjör Árna á árinu 2008
10.1.2009 - Árni Sverrir
Sæl öllsömul og afsakið listaleysið mitt að undanförnu.
Hér kemur árið mitt…
1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
Held að ég hafi aldrei verið jafnlatur við að sækja tónleika og í ár en bestu tónleikar ársins eru:
Neil Young á Hróa…hef sjaldan séð nokkurn mann spila á gítarinn sinn af jafnmikilli hörku.
Grinderman á Hróa…gredda og grár fiðringur en samt með snyrtileikann í fyrirrúmi.
Reykjavík! á Kaffibarnum…þegar við gengum inn þá stóðum við á milli bassaleikarans og trommarans. Svo var Bóas klifrandi upp á öllu, fólk að góla í míkrófóninn, guttar að grípa í gítara og spila með, Jack Daniels flöskur sem gengu um meðal áhorfenda og svo bara svaka gaman.
Stones tribute á Dillon sportbar…óskilgetinn sonur Jaggers kom þarna fram því líkindin voru skuggaleg.
Síðast en ekki síst er þegar Heiða í Unun tók Lög unga fólksins á Menningarnótt í Friðarhúsinu…takk Óskar fyrir óskalagið
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
Hef átt góðar stundir með Koggu frænku minni að hlusta á tónlist og hef því uppgötvað Pílu pínu og Glám og Skrám á nýjan leik. Mjög góð lög, ekki síst hjá Röggu Gísla.
Fór loksins að hlusta almennilega á Neil Young í tilefni af hróa. Silver and gold stendur upp úr af þeirri hlustun.
Megas og Passíusálmarnir. Fór að kenna 17. öldina og sálmarnir létu mig ekki í friði.
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
Að hafa ekki farið á Þursana, Sigur rós, Björk í Norræna húsinu, Aldrei fór ég suður, Síldarbræðsluna í Borgarfirði eystri og Airwaves.
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Fleet foxes
Kings of Leon
MGMT
Bonnie Prince Billie
FM Belfast
Ólafur Arnalds
Heima með Sigur rós
5. Hver er bjartasta vonin?
Bon Iver er svaka skemmtilegt
Sin fang bous kom sterkur inn rétt fyrir jól
6. Ætlarðu á Hróa 2009?
hugsanlega…
Tags: 2008, Airwaves, Aldrei fór ég suður, Árslisti, Björk, Bon Iver, Bonnie Prince Billy, Bræðslan, Fleet Foxes, FM Belfast, Glámur og Skrámur, Grinderman, Heiða, Hróarskelda, Kings of Leon, Megas, MGMT, Mick Jagger, neil young, Ólafur Arnalds, Píla pína, Ragga Gísla, Reykjavík!, Rolling Stones, Roskilde, Sigur Rós, Sin Fang Bous, Unun, Uppgjör, Þursaflokkurinn
Flokkað undir Listar, Árni | Comments Off
Lokauppgjör 2008 – Kristín Gróa
9.1.2009 - Kristín Gróa
1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
Ég sá reyndar alveg fáránlega mikið af flottri tónlist á árinu en þeir fara allir í einn graut því ég afrekaði strax í febrúar að sjá bestu tónleika lífs míns. Ég gerði mér ferð til Kaupmannahafnar til að sjá hetjuna mína hann Neil Young spila og ég kem aldrei til með að upplifa annað eins. Hálft settið var hann einn acoustic og svo kláraði hann þetta með hljómsveit og gaf allt í botn með old black á öxlinni. Að sjá átrúnaðargoðið sitt spila öll sín bestu lög í fantagóðu formi í tvö þúsund manna sal er eitthvað sem er ekki hægt að toppa. Ég sá hann reyndar aftur á Hróarskeldu og það var geðveikt en þessir tónleikar í Kaupmannahöfn voru út úr kortinu.
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
So the great affair is over but whoever would have guessed
It would leave us all so vacant and so deeply unimpressed
It’s like our visit to the moon or to that other star
I guess you go for nothing if you really want to go that far
Leonard Cohen. Tjah kannski fullmikið sagt að ég hafi verið að uppgötva hann á árinu en lengi vel var New Skin For The Old Ceremony eina platan sem ég hafði hlustað á. Ég bætti þremur plötum í safnið á árinu og féll pínku fyrir kallinum. Textarnir hans eru kreisí góðir.
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
The Notwist platan The Devil, You + Me. Ég keypti hana algjörlega óheyrða af því ég hafði lesið svo rosalega margt jákvætt um hana en jánei… mér fannst hún eiginlega bara leiðinleg. Ótrúlega unremarkable plata.
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Microcastles með Deerhunter hefur enn ekki fengið að hljóma í mínum eyrum en hún þykir almennt einn af hápunktum ársins. Ég var reyndar örugglega eina manneskjan sem kveikti aldrei á Cryptograms og samt á ég hana uppi í hillu… svo kannski fíla ég nýju ekkert heldur? Hmmm.
5. Hver er bjartasta vonin?
Á topp fimm plötulistanum mínum voru þrjár debut plötur en vinninginn hafa Fleet Foxes, það er engin spurning. Ótrúlega þroskuð og vönduð frumraun sem þeir sendu frá sér.
6. Bónusspurning að eigin vali
Hverjar voru bestu íslensku plötur ársins?
FM Belfast – How To Make Friends, Sigur Rós – Með suð í eyrum við spilum endalaust og Ultra Mega Technobandið Stefán – Circus.
Tags: 2008, Árslisti, Deerhunter, Fleet Foxes, FM Belfast, Hróarskelda, Leonard Cohen, neil young, Roskilde, Sigur Rós, The Notwist, Ultra Mega Technobandið Stefán, Uppgjör
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Lokauppgjör – Georg Atli
9.1.2009 - Georg Atli
1.Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
Tindersticks, klárlega. Ég var búinn að bíða allt of lengi með það að sjá þá live og loksins komst ég svo að sjá þá og varð ekki fyrir vonbrigðum, magnaðir tónleikar í alla staði og Stuart Staples er massa svalur.
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
Humm… Seasick Steve… telst hann sem gamalt dót?? Hann er a.m.k. gamall og spilar á eldgamlan gítar þó svo að ekkert langt sé síðan plöturnar hans komu út…
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
Að komast ekki á Hróarskeldu þegar næstum allir aðrir fóru…og lænöppið var líklega það besta í langan tíma
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Animal Collective og Neutral Milk Hotel. Þekki þessi bönd engan veginn nógu vel (en líkar vel við það sem ég hef heyrt) og hef líka alltaf ætlað að hella mér í djass og gamlan blús…..
5. Hver er bjartasta vonin?
Úff… margar nýjar góðar á 2008… Fleet Foxes, Bon Iver, Marnie Stern…. hef heyrt góða hluti með The Temper Trap fyrir 2009.
6. Hvern/hverja værir þú mest til í live 2009?
Tom Waits, ekki spurning alltaf Tom Waits, og Arctic Monkeys, Fleet Foxes, Bon Iver og Apparat Organ Quartet.
Tags: 2008, Animal Collective, Apparat Organ Quartet, Arctic Monkeys, Árslisti, Bon Iver, Fleet Foxes, Hróarskelda, Marnie Stern, Neutral Milk Hotel, Roskilde, Seasick Steve, Stuart Staples, The Temper Trap, Tindersticks, Tom Waits, Uppgjör
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off
Kings Of Leon + of Montreal
7.8.2008 - Kristín Gróa
Vignir skrifaði um nýju plötu hönkanna í Kings Of Leon um daginn og póstaði þar laginu Crawl sem hljómar ansi vel í mínum eyrum. Nú er komið á flakk annað lag af plötunni sem heitir Sex On Fire og er alveg æði… ég er reyndar með það innprentað í hausinn á mér hvernig Caleb leit út á Hróarskeldutónleikunum svo ég er tilbúin að gúddera allt sem ég heyri hann syngja en það er nú allt annað mál. Ég meina sjáið manninn… þetta er bara ekki hægt. Hehemm en þetta er í alvöru gott lag samt.
Kings Of Leon – Sex On Fire

Einnig er væntanleg á næstunni nýjasta afurð Kevin Barnes og félaga í of Montreal. Platan sú kemur til með að heita Skeletal Lamping og fyrsta lagið er farið að þeytast um internetið. Þetta er ekkert sjokkerandi fráhvarf frá því sem þau voru að gera á Hissing Fauna, Are You The Destroyer? nema það er ennþá meira diskó í gangi. Veit ekki alveg hvað mér finnst ennþá en þetta lofar allavega góðu.
Tags: Caleb Followill, Hróarskelda, Kings of Leon, Of Montreal, Roskilde
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | Comments Off
Hróarskelda
8.7.2008 - Kristín Gróa
Þá er ég komin heim frá Hróarskeldu og ég veit eiginlega ekki alveg hvar ég á að byrja. Sólin skein stanslaust, bjórinn flæddi, ferðafélagarnir voru endalaus uppspretta gleði og tónleikarnir voru hverjir öðrum betri. Ég var tiltölulega lítið stressuð yfir að ná að sjá allt en náði að sjá heil eða hlutasett með MGMT, Radiohead, Band Of Horses, Gnarls Barkley, Kings Of Leon, Seasick Steve, Robyn, Grinderman, Battles, José González, Queen Ifrica, Neil Young, The Chemical Brothers, Slayer, Cat Power, Bob Hund og Bonnie “Prince” Billy. Var svekktust yfir að hafa klikkað á Yeasayer og No Age, sérstaklega af því að eina ástæðan fyrir að ég fór ekki að sjá þá er að ég var of syfjuð til þess. Augljóst ellimerki það.
Radiohead, Bonnie “Prince” Billy, Kings Of Leon og Seasick Steve stóðu upp úr en það kemur væntanlega lítið á óvart að Neil Young var hápunkturinn í mínum huga. Það er reyndar alveg glatað að sjá einhvern sem maður dáir svona mikið á stærsta sviðinu á tónlistarhátíð því það er enginn friður til að njóta tónleikanna og rólegu lögin drukkna í blaðri. Það skemmdi pínku fyrir mér og ég hvæsti m.a.s. á vini mína (ein geggjað upptrekkt) sem voru að hrópast á ofan í Oh, Lonesome Me (sorry guys). Neil Young sjálfur var auðvitað engum líkur enda þvílíkur kraftur sem er í þessum manni. Hann tók líka allan skalann, alveg frá rólega Neil með The Needle And The Damage Done yfir í kreisí Neil með No Hidden Path sem tók örugglega rúmar 20 mínútur með ekta NY gítarsólói. Úff gæsahúð. Setlistinn hans leit svona út:
1. Love And Only Love
2. Hey Hey, My My
3. Powderfinger
4. Spirit Road
5. Cinnamon Girl
6. Fuckin’ Up
7. All Along The Watchtower
8. Oh, Lonesome Me
9. Mother Earth
10. The Needle And The Damage Done
11. Unknown Legend
12. Heart Of Gold
13. Old Man
14. Get Back To The Country
15. Words
16. No Hidden Path
—
17. A Day In The Life
Maðurinn coverar bæði Dylan og Bítlana án þess að blikna og gerir það þar að auki óaðfinnanlega. We’re not worthy.
Að lokum stutt klippa af Hey Hey, My My:
Tags: Hróarskelda, neil young, Roskilde
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | Comments Off
hróa lokið…
8.7.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Hróarskelda 2008 hefur gengið sinn garð og tókst afar vel að mati undirritaðs. Upp úr stóðu gamlingjarnir Neil Young (Kristín Gróa tekur hann eflaust fyrir áður en lang um líður) og Grindermanngaurarnir. Einnig voru Kings of Leon, Radiohead, Bob Hund, José González, Battles, Bonnie Prince Billy, Band of Horses, Catpower og MGMT afar hress.
Grái fiðringurinn ræður ríkjum hjá Grindermanninum sem tæklar hann á afbragðs máta, safnar hári og skeggi þrátt fyrir að sprettan fari minnkandi með árunum og suddast og klæmist í bandi. Greddan og orkan á sviðinu var mikil og Cave og Ellis hristu skanka og mjaðmir í takt við fiðlu- og gítarmisþyrmingar sínar undir stöðugum ruþmatakti félaga sinna. Flest ef ekki öll lög sveitarinnar voru tekin og þegar þau voru búinn tilkynnti Cave að þeir ættu ekki meiri lög og tóku Tupelo sem lokalag sem var mikill bónus fyrir Bad Seeds aðdáendur.
Fann eina klippu af tónleikunum, ekki sóðalegasta eða harðasta lag kvöldsins en nær að fanga stemmninguna.
Grinderman – Grinderman
Tags: Grinderman, Hróarskelda, Nick Cave, Roskilde, Warren Ellis
Flokkað undir Óflokkað | Comments Off
Hrói kallar…
7.5.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Topp 5 ákvað að vera ögn skipulagðari þetta sumarið og ætlar því að gera tvo hópa út af örkinni í leit að áhugaverðri músík en annar fer til Danmerkur og hinn til Englands.
Þetta verður allt síðan samræmt og fjarstýrt úr bækistöðvum á 101 og komið á vefinn.
Undirritaður tilheyrir baunahópnum og til að hita upp birtast nokkur tóndæmi með listamönnum sem verða á Hróarskeldu í sumar.
Battles – Atlas
Grinderman – No Pussy Blues
Radiohead – Idioteque
Bonnie Prince Billy – I See a Darkness
Tags: Battles, Bonnie Prince Billy, Grinderman, Hróarskelda, Radiohead, Roskilde
Flokkað undir Óflokkað | Comments Off

