Topp 5 korter í lokun – Erla Þóra
4.12.2010 - Erla Þóra
Ó en skemmtilegur listi! Frá því ég byrjaði að hugsa um hann hef ég verið í agalegum djammfílíng ![]()
Here it goes..
5. Raggi Bjarna – Góða nótt
Hversu ótrúlega svalt er að hafa bara í öll þessi ár ALLTAF endað á þessu lagi? Alveg sama hvort hann er að halda tónleika eða var að spila á balli í den þá endar hann alltaf á þessu. Alveg eins og pabbi hans gerði þegar hann var í hljómsveit í rosa mikið den. Ég fann ekkert myndband af þessu lagi og þar sem ég er í vinnunni get ég ekki skellt sjálfu laginu inn. Google it.
4. Elton John – Tiny Dancer
“Hold me closer tiny dancer…” perfect til að knúsast við korter í lokun.
3. Royksopp – What else is there (Trentemoller remix)
Best til að trylla lýðinn áður en allir fara heim. Tjúúúútt!
2. Rolling Stones – She’s like a rainbow
Ég á afar fond memory af okkur systrum að labba heim af gömlu ellefunni rétt fyrir lokun og löbbuðum fram hjá alþjóðahúsinu eða hvað þetta nú hét (sem núna er, incidentally, nýja ellefan!) og það var ákkúrat verið að byrja að spila þetta lag. Við hoppuðum inn, dönsuðum af okkur rassinn í hamingjurússi, og héldum svo áfram för okkar heim þegar lagið var búið. Svona simple moments eru perfect.
1. Edward Sharpe and the Magnetic Zeros – Home
Djamm-anthem ársins 2010. Best að senda fólk heim brosandi og hamingjusamt (eins og maður einmitt verður við að hlusta á þetta lag).
Tags: Edward Sharpe and the Magnetic Zeros, Elton John, Raggi Bjarna, Rolling Stones, Röyksopp, Trentemøller
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | 2 athugasemdir »
Röyksopp
25.3.2009 - Kristín Gróa

Ég fékk nýju Röyksopp plötuna, Junior, í hendurnar um daginn og var satt að segja ekkert rosalega spennt fyrir henni. Einhvernveginn gerðist það þó að ég fór að hlusta og viti menn… ég fíla þetta! Þessa stundina er Karin Dreijer að heilla mig mest í laginu Tricky Tricky en það er af nógu að taka hérna. Robyn syngur hið frábæra The Girl And The Robot og ekki er síðra lagið Miss It So Much í flutningi krúttsins Lykke Li. Já og ef þið viljið komast í dansandi gott skap þá þurfið þið bara að hlusta á fyrsta síngúlinn Happy Up Here og dillið mun færast í kroppinn. Ég er öll æst yfir þessari plötu.
Tags: Karin Dreijer, Lykke Li, Robyn, Röyksopp
Flokkað undir Kristín Gróa, Óflokkað | Comments Off
Topp 5 remix – Krissa
7.11.2008 - Kristjana

Tags: Crystal Castles, Death From Above 1979, Justice, Kings of Convenience, Klaxons, Koop, Röyksopp, Tepr, Yelle, Zero 7
Flokkað undir Kristjana, Listar | 2 athugasemdir »









