Sigur Rós á Airwaves
8.5.2012 - Kristjana
Line-upið á Airwaves ársins lítur ansi vel út og í morgun var tilkynnt að Sigur Rós mun koma fram á hátíðinni í fyrsta skipti í 11 ár (Georg reyndist semsagt sannspár). Hátíðargestir fá víst 11 manna band og lög af öllum plötum hljómsveitarinnar í Laugardalshöllinni á sunnudagskvöldinu.
Hins vegar kostar aukalega á þessa lokatónleika, 3.900 kr ef maður á armband á hátíðina (hægt verður að kaupa miða frá 16. maí á miði.is). Hvað finnst ykkur – sanngjarnt eða kjánalegt að taka eina tónleika út fyrir sviga og skella auka verðmiða á þá?
Tags: Airwaves 2012, Sigur Rós
Flokkað undir Airwaves, Kristjana | Comments Off
Nýtt frá Sigur Rós!
26.3.2012 - Georg Atli

Núna í morgun voru Sigur Rós að senda frá sér fyrsta lagið af nýju plötunni sinni. Lagið heitir Ekki Múkk og er þó nokkuð ólíkt síðustu verkum Sigur Rósar þar sem að hljómurinn er mun minni og í raun alls ekki jafn stórfenglegur og búast mátti við. Lagið dregst hægt áfram og er reyndar best lýst með orðum hljómsveitarmeðlimanna sjálfra: minímalískur og fljótandi. Sjá heimasíðu hljómsveitarinnar: www.sigur-ros.co.uk
Platan heitir Valtari og kemur út 28. maí og hér er lagalistinn, ef einhver hefur áhuga á honum:
Valtari:
1. Ég Anda
2. Ekki Múkk
3. Varúð
4. Rembihnútur
5. Dauðalogn
6. Varðeldur
7. Valtari
Laginu fylgdi líka myndband sem að Inga Birgisdóttir gerði, ég er reyndar ekki viss en ég held, amk líkist þetta hennar verkum. Fallegt og passar vel við tónlistina.
Sigur Rós er síðan á leið á tónlistarhátíðartúr þannig að það verður væntanlega hægt að heyra fullt af nýju efni þar en við vonum svo bara að þeir komi svo til Íslands að spila (Airwaves!?)
Tags: Sigur Rós
Flokkað undir Georg Atli | 1 athugasemd »
Inni með Sigur Rós opnunarmynd RIFF 2011 – opnunarkvöldið á NASA.
15.9.2011 - Georg Atli
Tónlistarmyndin “Inni” með Sigur Rós verður opnunarmynd Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, eða RIFF, í ár. Um Norðurlandafrumsýningu verður að ræða á opnunarkvöldi RIFF fimmtudaginn 22. september en myndin hefur aðeins verið sýnd áður á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum fyrir fáeinum vikum, þar sem hún hlaut glimrandi viðtökur. Vettvangur frumsýningarkvöldsins á hátíðinni er nýstárlegur í ár en það er tónleika- og skemmtistaðurinn NASA við Austurvöll. Helgast það ekki síst af opnunarmyndinni en “Inni” er tónlistarmynd sem umfaðmar áhorfandann í milliliðalaus samskipti við hljómsveitina, ekki ósvipað því að upplifa Sigur Rós á tónleikum. Ein önnur sýning á “Inni” fer í almenna sölu meðan á hátíðinni stendur og fer hún fram síðar á opnunarkvöldinu á NASA.
“Inni” er önnur kvikmynd Sigur Rósar og fylgir í kjölfar marglofuðu heimildarmyndarinnar “Heima“. Leikstjóri hennar er Vincent Morriset, sem áður hefur meðal annars unnið með kanadísku hljómsveitinni Arcade Fire. Morisset gerði 16 mm afrit af upprunalegum stafrænum upptökum og síðan fleiri afrit, stundum í gegnum ljósstrending og fyrir vikið er “Inni” því líkust sem hún sé fjársjóður aftan úr forneskju. Inn á milli er síðan skotið myndbrotum frá síðasta áratug, sum allt frá því 1998. Þessi hliðsetning gefur áhorfandanum glögga mynd af uppruna Sigur Rósar, þróun hljómsveitarinnar, frumleika hennar og þau áhrif sem hún hefur haft.
“Inni” var tekin upp á tvennum tónleikum Sigur Rósar í Alexandra Palace í London í nóvember 2008. Nokkrum dögum síðar kom Sigur Rós fram á eftirminnilegum tónleikum í troðfullri Laugardalshöll og hefur haft hægt um sig síðan.
Miðasala á RIFF er hafin í forsölu á heimasíðu hátíðarinnar, riff.is og miðasala í upplýsingamiðstöð hátíðarinnar hefst í dag, fimmtudag kl. 12:00, í Eymundsson við Austurstræti. RIFF stendur yfir dagana 22.september til 2.október”
Tags: arcade fire, Riff, Sigur Rós
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off
Lockerbie – Ólgusjór
1.9.2011 - Georg Atli
Hljómsveitin Lockerbie gaf út sína fyrstu plötu (Ólgusjór) fyrir nokkrum mánuðum (nánar tiltekið 7. júli) í gegnum plötútgáfuna Record Records. Hljómsveitin vakið nokkra athygli m.a. vann hún sumarlagakeppni Rásar 2 og hefur túrað þó nokkuð (m.a. með For A Minor Reflection) og var valin hljómsveit vikunnar hjá þýska útvarpsþættinum Breitband (sem er á dagskrá hjá þýska ríkisútvarpinu) og komist á samning úti í Japan. Þetta finnst mér ansi gott fyrir hljómsveit sem að var stofnuð 2008!
Strax í fyrstu lögunum skilur maður alveg afhverju hljómsveitin vekur þessa athygli. Hljómsveitarmeðlimir eru hæfileikaríkir og það heyrist alveg að þeim finnst gaman að spila tónlist saman. Þeir spila tónlist sem fellur undir skilgreininguna post-rokk og fara í þann flokk með hljómsveitum eins og Stafrænn Hákon, Sigur Rós (strákarnir hafa greinilega hlustað töluvert á Sigur Rós) og For a Minor Reflection.
Það verður samt að segjast að Lockerbie er miklu aðgengilegri en hinar hljómsveitirnar. Yfri þungum trommutakti og drynjandi gítar heyrist í klukkuspili, píanó, sílófóni og ýmsum strengja- og blásturshljóðfærum og ofan á allt þetta syngur Þórður Páll í ljúfri næstum því falsettu. Þannig að það er óhætt að segja að hljóðheimurinn sé stór og íburðarmikill en samt sem áður er hann alltaf frekar léttur og poppaður. Ég verð líka að viðurkenna að stundum finnst mér léttleikinn verða aðeins of mikill (Reyklykt) og tónlistinni vanta smá spark í rassinn og fari í harðari tóna.
Lockerbie – Laut II
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Það er samt eiginlega því “að kenna” að stundum á plötunni heyrist smá af þessum harðari tónum og það glittir í hreina snilld frá þeim og þegar að Lockerbie fer á flug í þeim lögum, finnst mér þetta alveg geðveikt flott band. Þetta má til dæmis vel heyra í 3 lögum plötunnar Laut (sérstaklega seinni hlutinn), Laut II og Snjóljón sem standa upp úr að mínu mati. Einnig er lagið Esja sem er unnið úr ljóði Halldórs Laxness, Únglingurinn úr Skóginum afar vel heppnað.
Lockerbie – Esja
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Í heildina er þetta alveg mjög vel heppnuð plata og ég mæli alveg með henni fyrir alla. Það er greinilega mikið lagt í hana og tónlistarfólkið sem kemur fram á henni er allt saman hæfileikaríkt en fyrir minn part vantar samt eitthvað smá, kannski bara herslumunin í það að þetta verði alveg “solid” plata. Það er samt einhvern veginn ekki sérstaklega stór galli, frekar svona áminning um það að það verði bara að tjékka á næstu plötu líka, af því að það gæti verið að hún verði alveg geðveik!
Platan Ólgusjór með Lockerbie (sem er fáanleg á gogoyoko og örugglega í flestum plötubúðum landsins) kemur út í gegnum Record Records.
Svona í lokin má líka alveg benda á það að Lockerbie er mjög skemmtilegt live band (þó að hljóðgæðin séu ekki frábær í þessu vídjói).
Tags: For a Minor Reflection, Lockerbie, Sigur Rós, Stafrænn Hákon
Flokkað undir Georg Atli, Plötuumfjallanir | Comments Off
Nýtt frá Sigurrós!?
11.8.2011 - Georg Atli
Núna rétt áðan voru strákarnir í Sigur Rós að senda frá sér þetta fína stutta myndskeið:
Þessi trailer gæti annað hvort verið fyrir heila nýja plötu (sem Daníel Bjarnason ætlar að sjá um strengjaútfærslur á) eða nýjan DVD live disk sem að búið að vera slúðra um á netinu (sem á að vera upptaka af þessum tónleikum frá 2008). Mér finnst seinni valkosturinn líklegri útaf áhorfandaskaranum sem sást í og svo voru þeir greinilega að spila á einhverjum tónleikum… Mér fannst það líka sérstaklega merkilegt að myndbandsbrotið er allt í mónókróm og ef að DVD-ið er allt þannig þá gefur það alveg örugglega mjög skemmtilegan fílíng.
Hvað sem þetta verður þá verður það alveg örugglega rosalega flott og eigulegt…
Tags: Daníel Bjarnason, Sigur Rós
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Sarpurinn: 90s tónlist
10.3.2010 - Kristín Gróa
Sarpur dagsins er ekki alveg týpískur en er tilkominn vegna geisladiskaimportverkefnisins sem ég stend í þessa dagana. Ég er sem sagt að færa alla diskana yfir á mp3 og það er EKKERT undanskilið, ekki einu sinni Gary Barlow smáskífan sem ég sver að einhver prangaði upp á mig saklausa táningsstúlkuna (hehemm). Sarpur dagsins fjallar því ekki um eina plötu heldur 90′s tónlistina sem ég fann í diskasafninu. Ójá.
Fyrsta lagið kemur af meistaraverkinu U Got 2 Know með hljómsveitinni Cappella sem ég keypti í Bókaskemmunni á Akranesi á sínum tíma. Þetta var dæmigert 90′s dúó með ljóshærði dreddaðri söngkonu sem veinaði eina línu aftur og aftur á milli þess sem svarti vinur hennar “rappaði”. Hljómsveitin sjálf var eiginlega ítölsk og var víst hugarfóstur einhvers Ítala en það var breytilegt hverjir performuðu. Á þessari plötu frá árinu 1994 voru það Bretarnir Kelly Overett og Rodney Bishop sem sáu um flutninginn. Munið þið eftir þessu lagi?
Cappella – U Got 2 Let The Music
Næsta lag kemur frá hljómsveit sem fylgdi sömu formúlu og Cappella en var miklu vinsælli. Það er auðvitað gullpar næntísins í 2 Unlimited. Það sorglega við það að ég skuli eiga plötuna Real Things (limited edition, no less) er það að mig langaði virkilega í hana og sparaði pening til að geta keypt hana. Ég var villuráfandi, hvað get ég sagt. Ég man líka alveg að áður en ég átti pening fyrir plötunni þá hlustaði ég á Bylgjuna mörg kvöld í röð til að reyna að ná að taka titillag plötunnar upp á kassettu. Þvílíkur sigur þegar það tókst loksins!
Til að þið gubbið nú ekki alveg yfir ykkur þá skulum við enda Sarpinn á jákvæðari næntís nótum. Ég fann nefnilega í fórum mínum gullmolann The Dungeon Tapes frá árinu 1995 með projectinu hans Kenny “Dope” Gonzalez sem kallaðist The Bucketheads. Þessa plötu keypti ég líka í Bókaskemmunni á Akranesi en veiddi hana upp úr 99 krónu körfunni ásamt Von með Sigur Rós. Ég vildi óska að ég gæti sagst hafa verið svona töff og sniðug en ég keypti þessar plötur bara af því þær kostuðu 99 krónur. Hvern hefði grunað að eftir 15 ár stæðu þær upp úr Bókaskemmuplötunum öllum?
The Bucketheads – The Bomb! (These Sounds Fall Into My Head) (Kenny’s Remix)
Tags: 2 Unlimited, Cappella, Gary Barlow, Kelly Overett, Kenny 'Dope' Gonzalez, Rodney Bishop, Sigur Rós, The Bucketheads
Flokkað undir Kristín Gróa, Sarpurinn | Comments Off
Topp 5 lög ársins – Kristín Gróa
8.1.2010 - Kristín Gróa

Við skulum byrja á að rifja upp lagalistann minn frá því í fyrra:
5. Lykke Li – Dance, Dance, Dance af Youth Novels
4. Sigur Rós – Inní mér syngur vitleysingur af Með suð í eyrum við spilum endalaust
3. The Walkmen – In The New Year af You & Me
2. MGMT – Time To Pretend af Oracular Spectacular
1. The Dodos – Jodi af Visiter
Næst koma 10 runners up ársins 2009:
Bat For Lashes – Daniel af Two Suns
The Big Pink – Dominos af A Brief History Of Love
Bon Iver – Blood Bank af Blood Bank EP
Fever Ray – If I Had A Heart af Fever Ray
The Pains Of Being Pure At Heart – Young Adult Friction af The Pains Of Being Pure At Heart
Phoenix – Lizstomania af Wolfgang Amadeus Phoenix
Miike Snow – Animal af Miike Snow
Delorean – Seasun af Ayrton Senna EP
The Very Best – Warm Heart Of Africe (feat. Ezra Koenig) af Warm Heart Of Africa
Kurt Vile – Freeway af Constant Hitmaker
TOPP 5 LÖG ÁRSINS AÐ MATI KRISTÍNAR GRÓU!

5. Bibio – Ambivalence Avenue af Ambivalence Avenue
Fimmta sætið er alltaf erfiðast því þar skilur á milli þeirra sem komast á listann og þeirra sem gera það ekki. Ég verð að viðurkenna að fyrsta uppkast að þessum lista var með laginu Lizstomania með Phoenix í fimmta sæti en eftir því sem ég pældi meira í þessu þá fannst mér meira vit í því að láta Bibio ná inn á lista. Þetta frábæra byrjunarlag hinnar þokkalegu samnefndu plötu er því miður ekki alveg merki um heildargæði plötunnar (að mínu mati) en þetta lag eitt og sér er nægt tilefni til að gefa henni séns.

4. Julian Casablancas – Out Of The Blue af Phrazes For The Young
Það er nú reyndar lagið 11th Hour sem hefur feng en mér finnst þetta upphafslag hinnar frábæru Phrazes For The Young alveg kreisí gott og enn betra en hitt. Þessi plata kom mér reyndar algjörlega í opna skjöldu svo það er nokkuð óvænt sem Casablancas kemst á lista. Fyrir utan hvað kórusinn fær mig til að langa til að vera hífuð og syngja allt of hátt og snúa mér í hringi með hendurnar út í loftið (seriously… ég er að reyna að hemja mig akkúrat þessa stundina) þá er eitthvað svo frábært hvað gaurinn er ekkert að hlífa sér… Those who helped me along the way, I smacked them as I thanked them… Yes I know I’m going to hell in a leather jacket. Love it!

3. Animal Collective – My Girls af Merriweather Post Pavillion
Mér þykir mjög leiðinlegt að setja lag á lista sem bæði Pitchfork og Pop Matters settu á topp síns lista en ég get bara ekki litið framhjá því að þetta lag er eiginlega yfirnáttúrulegt. Percussionið, raddanirnar og öll skrítnu hljóðin gera þetta að einhverju algjörlega nýju og undarlegu en samt er það melódískt og grípandi og poppað.

2. Girls – Lust For Life af Album
Þegar gagnkynhneigður karlmaður byrjar fyrstu plötuna sína á Oh I wish I had a boyfriend þá langar mig að hlusta áfram. Tilfinningin hérna er svona “já ég er geðveikt klikkaður og messed up en þetta er allt á uppleið… kannski… vonandi”. Mér persónulega finnst Album vera frekar gloppótt plata (þrátt fyrir GRÍÐARLEGT hype) en það er ekki hægt neita því að væbið heillar mann og þarna eru nokkur killer lög, sérstaklega Lust For Life og Hellhole Ratrace.

1. Camera Obscura – French Navy af My Maudlin Career
Ég hef aldrei verið neinn sérstakur aðdáandi þessarar hljómsveitar þannig lagað en vá þetta lag er bara something else. Þetta fær pottþétt verðlaunin kórus ársins því ég iða í sætinu og sveifla hausnum til og frá þegar hann kemur. Þetta er óneitanlega stelputónlist en herregud þvílík stelputónlist!
Tags: 2009, Animal Collective, Árslisti, Bat For Lashes, Bibio, Bon Iver, Camera Obscura, Delorean, Fever Ray, Girls, Julian Casablancas, Kurt Vile, Lykke Li, MGMT, Miike Snow, Phoenix, Sigur Rós, The Big Pink, The Dodos, The Pains of Being Pure at Heart, The Very Best, The Walkmen, Uppgjör
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 2 athugasemdir »
Topp 5 jarðarfararlög – Kristín Gróa
13.11.2009 - Kristín Gróa

Ég hef aldrei leitt hugann að því hvaða lög ég myndi vilja láta spila í jarðarförinni minni svo hér koma mín frekar fyrirsjáanlegu jarðarfararlög.
5. Eric Clapton – Tears In Heaven
Clapton söng um dauða sonar síns en þetta á held ég alltaf við.
4. Sigur Rós – Dánarfregnir og jarðarfarir
Þetta lag er eiginlega ultimate dauðalagið í mínum huga og Sigur Rós flytja það á dramatískan hátt.
It’s a motherfucker being here without you. Nákvæmlega.
2. George Harrison – All Things Must Pass
Lífið líka.
1. Vilhjálmur Vilhjálmsson – Söknuður
Mér finnst ég varla heill né hálfur maður og heldur ósjálfbjarga því er verr. Segir þetta ekki allt sem segja þarf?
Tags: Eels, George Harrison, Sigur Rós, Tears in Heaven, Vilhjálmur Vilhjálmsson
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Fuglaskinnssveinn
29.5.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Anywhere I Lay My Head – Tom Waits
Well I dont need anybody,
because I learned, I learned to be alone
Well I said anywhere, anywhere,
anywhere I lay my head, boys
Well I gonna call my home
Með gangstéttarkantinn sem kodda, hattin sem sæng og heiminn sem bæli býður sögumaðurinn góða nótt.
Dánarfregnir og jarðarfarir – Sigur Rós
Kraftmikill útfararsálmur í flutningi Sigur Rósar.
I See A Darkness – Bonnie “Prince” Billy
Well I hope that someday buddy
We have peace in our lives
Together or apart
Alone or with our wives
And we can stop our whoring
And pull the smiles inside
And light it up forever
And never go to sleep
My best unbeaten brother
This isn’t all I see
Þungt, hægt og melankólískt. Í seinn tíð koma brókbaksbræðurnir mér stundum í huga er ég hlusta á það. Djúp og tilfinningarík von um betri tíð í öllu myrkrinu.
Two-Headed Boy Part 2 – Neutral Milk Hotel
Í skrítnum takti (í eyrum amatúrsins) er sungið um drenginn, Önnu, pabba, Guð, tómata, útvarpsvíra, kraftaverk, allt og alla á óskiljanlegan hátt.
Cortez the Killer – Neil Young
Þrjú afar innihaldsrík grip í 7 og hálfa mínútu leidd af gítar Youngs og frásögnum hans af indíánum og stúlkunni sinni.
Tags: Bonnie Prince Billy, neil young, Neutral Milk Hotel, Sigur Rós, Tom Waits
Flokkað undir Listar | Comments Off
læri, læri, tækifæri – zvenni
18.4.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
lag eitthvað af bjúga bjúga – Sigur Rós
Afar slakandi og ljúft, á erfitt með að hlusta á flókna texta við lærdóm, sérstaklega lestur svo instró verður venjulega fyrir valinu.. og það gerist varla betra en þetta.
All Blues – Miles Davis
Ætla ekki að þykjast þekkja kauða af neinu viti en hef hlustað stíft á 2 plötur hans við kenningalega rýni og ákafar skriftir. Afslappandi og þægilegt en um leið innblástur og hvatning. Fínn kokteill.
Tubular Bells (Moonshine) – Mike Oldfield
Banjó… gott við námsleiða.
Subliminal Sleep Learning – Dick Sutphen
Sem eilífðarstúdent hefur maður lært nokkur trix við lærdóminn. Í einum af mörgum rannsóknarleiðangrum mínum inn í undirheima óhefðbundinna lækninga og nýaldarsinna rakst ég á þetta. Þeta undirmeðvitundar lærdómur með Delta púlsinn tikkandi eins og greifinn af St. Germain í trylltasta þróunarhring… skuggalegur skítur.
The Purple Bottle – Animal Collective
Fyrir lokasprettinn er þetta afbragð, þó sungið sé af miklum móð þá meika textarnir með Animal Collective skemmtilega lítið sens svo það allt er í góðu…
Tags: Animal Collective, Dick Sutphen, Mike Oldfield, Miles Davis, Sigur Rós
Flokkað undir Listar | Comments Off






