Sleepless in Reykjavík þáttur 4
10.8.2011 - Georg Atli
Glænýr þáttur frá SIR fólkinu var að detta á netið. Núna er verið að tala við Vicky (sem eru að fara að senda frá sér nýja plötu) og kíkt á Apparat Organ Quartet á Innipúkanum.
The Sleepless In Reykjavik WebTv Show 2011 – Episode 4 from Gussi – Sleepless In Reykjavik on Vimeo.
Tags: Appartat Organ Quartet, Sleepless in Reykjavík, Vicky
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Nýtt frá Sleepless in Reykjavík
22.7.2011 - Georg Atli
Þriðji þáttur Sleepless in Reykjavík var að detta á netið. Í þetta skiptið er tjékkað á endurkomu tónleikum Quarashi á Bestu útihátíðinni.
The Sleepless In Reykjavik WebTv Show 2011 – Episode 3 from Gussi – Sleepless In Reykjavik on Vimeo.
Tags: Quarashi, Sleepless in Reykjavík
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Annar þáttur af Sleepless in Reykjavík
1.7.2011 - Georg Atli
Nú er annar þáttur Sleepless in Reykjavík kominn á netið. Í þetta skiptið er tjékkað á Endless Dark á Sódómu og kíkt á myndbandagerð með Emmsjé Gauta.
Like-ið SIR á Facebook til að fylgjast betur með þeim!
The Sleepless In Reykjavik WebTv Show 2011 – Episode 2 from Gussi – Sleepless In Reykjavik on Vimeo.
Tags: Emmsjé Gauti, Endless Dark, Sleepless in Reykjavík
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Nýr þáttur af Sleepless in Reykjavík
16.6.2011 - Georg Atli
Fyrsti þátturinn af annari seríu Sleepless in Reykjavík var að detta á netið.
Sleepless in Reykjavík er hugarfóstur Gunnars B. Guðbjörnssonar (gerði m.a. Where’s the Snow ásamt Bowen Stains). Í vefþáttaröðinni er farið yfir og fjallað um íslenska tónlist og margt skemmtilegt skoðað, óháð tónlistarstefnu. Þið getið kíkt á fyrri þætti á síðu þáttarins, en nýjasta þáttinn getiði séð hér fyrir neðan. Síðan væri sniðugt að like-a á facebook ef þið viljið fylgjast betur með þessu og hérna er eru miklu ítarlegri upplýsingar um hvern þátt.
Í þessum þætti er farið á Hlustendaverðlaun FM 957 og kíkt í Sundlaugina (stúdíóið) á Sólstafi. Gott stöff!
The Sleepless In Reykjavík WebTv Show 2011 – Episode 1 from Gussi – Sleepless In Reykjavik on Vimeo.
Tags: Sleepless in Reykjavík, Sólstafir
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Úthlutun Kraums 2011
12.5.2011 - Georg Atli
Í gær tilkynnti Kraumur hvaða verkefni hefðu fengið styrki þetta árið.
Síðan 2008 hefur Kraumur styrkt meira en 70 hljómsveitir og ýmis verkefni tengd tónlist. Þetta er alltsaman frábært og vonandi heldur Kraumur þessu lengi áfram. Í ár fengu 15 verkefni og hljómsveitir styrki sem að námu samtals 9 milljónum. Þessi fengu styrki í ár (tölur fengnar beint af heimasíðu Kraums):
Pascal Pinon, Tónleikahald og kynning á frumburði sínum erlendis – 1.200.000
Retro Stefson*, Tónleikhald og kynningarstarf, Norðurlönd og Evrópa – 1.000.000
Árstíðir, Tónleikahald og dreifing í Rússlandi og Austur Evrópu – 800.000
Dikta*, Tónleikahald og kynning á verkum sínum í USA – 800.000
Endless Dark, Undirbúningsvinna og kynning á verkum sínum erlendis- 700.000
adhd, Kynningarvinna og tónleikar innanlands – 600.000
Kalli, Kynningarvinna á erlendum vettvangi – 600.000
Anna Þorvaldsdóttir, Undirbúningur og upptökur á portrait hljómdisk – 600.000
Who Knew, Tónleikahald á erlendum tónlistarhátiðum – 600.000
Eistnaflug, Innrás: Tónlistarhátíð í Neskaupsstað – 500.000
Aldrei fór ég suður, Innrás: Námskeið fyrir tónlistarmenn og gesti – 400.000
Guðmundur Steinn Guðmundsson, Innrás: Tónleikar innanlands – 300.000
Póst rokk & ról, Innrás: Tónleikar Lockerbie og fleiri um landið – 300.000
Sjóræningahúsið, Innrás: Tónleikasería á Patreksfirði – 300.000
Sleepless in Reykjavik, Myndbandagerð um íslenskt tónlistarlíf – 300.000
Samtals: 9.000.000
*Kraumur hefur áður stutt við undirbúning og upptökur á breiðskífum Dikta (Get it Together) og Retro Stefson (Kimambwe), sem sveitirnar vinna nú að því að gefa út og kynna á erlendum vettvangi – með stuðningi Kraums.
Persónulega finnst mér skemmtilegast að sjá annars vegar allar þessa tónleika og tónlistarhátíðir sem fara fram út á landi og svo líka Sleepless in Reykjavík því að mínu mati er þetta rosa flott framtak er í gangi þar og ætti að fá mun meiri athygli.
Tags: adhd, Árstíðir, Dikta, Endless Dark, Guðmundur Steinn Guðmundsson, Kalli, Pascal Pinon, Retro Stefson, Sleepless in Reykjavík, Who Knew
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off


