Topp 5 misskildir snillingar – Kristín Gróa
9.9.2011 - Kristín Gróa
Ég er búin að vera að velta þessum lista fyrir mér alla vikuna með litlum árangri. Misskildir snillingar? Hvað er það nákvæmlega að vera misskilinn? Ég veit það ekki og ég er hrædd um að þessi listi minn verði misskilinn fyrir vikið. Það er nefnilega eitt að vera misskilinn á þann veg að ná aldrei mainstream velgengni en vera svo mikils metinn í vissum hópum. Er viðkomandi þá almennt misskilinn en samt engan veginn misskilinn af sumum? Eða einfaldlega vanmetinn? Úff here goes nothing…
Bjartmar Guðlaugsson
Mér er alveg hvað þið segið en maðurinn samdi alla helstu slagara barnæsku minnar og maður fattar eiginlega ekki hversu margir þeir eru fyrr en maður rennir best of plötunni hans í gegn. Hann þótti svakalega hallærislegur á tímabili (kannski alltaf? ég veit ekki því ég var tíu ára og ekki dómbær á hallærislegheit) en hefur fengið uppreisn æru nýlega. Kommon þið getið ekki hlustað á þetta án þess að fara instantly í gott skap!
Bjartmar Guðlaugsson – Með vottorð í leikfimi
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Adam Green
Það rifjaðist upp fyrir mér þegar ég var að setja saman þennan lista hvað platan Sixes & Sevens er óþolandi catchy þó ég geti eiginlega ekki sagt að hún sé góð. Ég get ekki útskýrt það. Þetta er ótrúlega corny, pínu kómískt og dálítið croonerlegt og ég get eiginlega ekki ákveðið hvort það er gott eða slæmt. Mér finnst allavega gaman að hlusta á hana öðru hvoru og það er nú ekkert leiðinlegt að hlusta á The Moldy Peaches svo ég er ekki frá því að Adam Green sé dálítið misskilinn snillingur á bak við allt djókið.
Bill Callahan
Ég veit að Bill Callahan er engan veginn vanmetinn eða misskilinn af tónlistarfríkum. Hann er svo hæfileikaríkur og lögin hans svo góð að ég missi hálfpartinn andann og ég er ekki ein um það. Um leið veit ég að það er algjörlega útilokað að hann nái einhverntíma almennum vinsældum sem er mikil synd.
Damon Albarn
Nú er varla hægt að segja að Damon Albarn hafi ekki notið vinsælda því hann hefur verið algjört smash hit bæði með Blur og Gorillaz og hefur verið í allskonar öðrum verkefnum þar fyrir utan. Mér finnst samt eins og fólki þyki ekkert mikið til hans koma og hann fær voðalega lítið snillingscredit. Hann var auðvitað teen idolið mitt svo ég er ekki hlutlaus en mér finnst hann hafa gert alveg ótrúlega mikið af magnaðri tónlist í gegnum tíðina og hefur þróast alveg gríðarlega sem tónlistarmaður. Mér finnst hann bara pínu snillingur.
Neil Young
Ókei kannski var ég bara orðin uppiskroppa með hugmyndir og langaði til að nota tækifærið til að setja inn Neil Young lag. Það eru margir sem gera sér alveg grein fyrir hvað hann er mikill snillingur en það eru rosalega margir sem stimpla hann sem gamlan kall með pirrandi whiny rödd. Það er mikill misskilningur og grátleg þröngsýni. Ég get ekki lýst því með orðum hvað mér þykir Neil vera rosalegur snillingur. Ef þið getið hlustað á þetta lag og verið ósammála mér þá fer ég í alvöru að gráta.
Tags: Adam Green, Bill Callahan, Bjartmar Guðlaugsson, Blur, Damon Albarn, neil young, Smog
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Topp 5 Góð plötucover – Georg Atli
26.8.2011 - Georg Atli
Plötuumslög eru auglýsingartæki. Þegar að þú labbar í gegnum plötubúð (eru ekki örugglega fleirri en bara ég sem gera það??) þá eru þau það fyrsta sem þú sérð og þau eru stundum það eina sem að selja þér plötuna… amk í mínu tilviki. Ég hef nefnilega gert það þó nokkru sinnum að kaupa plötu eingöngu vegna þess að mér lýst vel á umslagið og eins merkilegt og það er þá gengur það næstum alltaf upp. Það er að segja að platan sem ég kaupi með þessum hætti er bara frekar góð. Hér að neðan koma 5 plötuumslög sem að seldu mér plötuna (í engri sérstakri röð):
Gorky’s Zygotic Mynci – Gorki 5
Þetta er eitthvað velskt band sem ég veit í rauninni ekkert um. Stundum syngja þeir á ensku stundum á velsku. Platan er frá 1998 og þetta er frekar óvenjulegt bretlandseyja rokk. Rakst á umslagið í einhverri London ferð, held að það hafi verið Virgin frekar en einhver hipp og kúl plötubúð. Mér finnst þetta bara þó nokkuð skemmtileg plata og hljómsveitin er örugglega löngu hætt. Ef einhver var að velta því fyrir sér þá þýðir gorky víst hálfviti eða eitthvað svoleiðis, zygotic er einhverskonar tilbúið orðskrípi en zygote er frjógvað egg og mynci er (að mig minnir) velskt orð sem þýðir api en er hérna skrifað eftir framburði… ég fletti þessu upp á sínum tíma og ég held að þetta sé rétt munað hjá mér.
Gorky’s Zygotic Mynci – Let’s Get Together (In Our Minds)
Grant Lee Buffalo – Fuzzy
Sá þennan í Hagkaup á 300 krónur og skellti mér bara á hann. Þetta reyndust vera góð kaup og ég hef meira að segja sett hann “undir geislann” á þessu ári.
Laurent Garnier – Unreasonable Beahvior
Var um tíma með smá blæti fyrir franskri raftónlist og á þeim tíma rak ég augun í þetta gríðarlega skærlitaða umslag.
Bogdan Raczynski – My Love I Love
Ég tek oft tarnir á útgáfufyrirtæki og í eitt skiptið þá var ég að kynna mér Rephlex útgáfufyrirtækið (sem Aphex Twin stofnaði) og sá þennan disk. Miðað við útlitið og hvaðan hann kom þá hlaut þetta bara að vera snilld… sem hann svo er. Geðveikt skrítinn og erfiður og öll lögin heita My Love I Love
Bogdan Raczynski – My Love I Love
Smog – Supper
Án þess að vita nokkuð um Smog eða Bill Callahan þá rakst ég á Supper í 12 Tónum og fékk að hlusta, ég held að ég hafi ekki náð að klára fyrsta lagið (Feather by Feather) áður en ég keypti diskinn og líka Dongs of Sevotion, sem er önnur Smog plata… ég bara vissi strax að þetta var eitthvað fyrir mig.
Tags: Bogdan Raczynski, Gorky's Zygotic Mynci, Grant Lee Buffalo, Laurent Garnier, Smog
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off
Topp 5 söngvarar
9.4.2010 - Georg Atli
Ég átti erfitt með að ákveða hvernig ég ætti að velja á þennann lista, annað hvort var hægt að lista það sem mér finnst vera topp 5 bestu söngvararnir (Tim Buckley, Rufus Wainwright, Nick Drake) eða topp 5 uppáhaldssöngvararnir (Elliott Smith, Mark Lanegan, Will Oldham) eða eitthvað allt annað…. ég valdi eitthvað allt annað. Ég hef nefnilega alltaf verið rosa sökker fyrir ákveðnum hlutum í tónlist. Það er t.d. mjög líklegt að ég fíli lagið ef það er sungið af gaur í falsettu, innihaldi slide gítar eða einhverskonar strokhljóðfæri (sérstaklega selló) annað sem ég fell ótrúlega oft fyrir er þegar sá sem er að syngja kann ekkert endilega að syngja en gerir það samt (og það hljómar vel), hérna kemur þess vegna: Topp 5 “lélegir” söngvarar.

5. Bill Callahan (Smog)
Söngvarinn úr Smog er töff og lögin hans eru góð og röddin hans er ansi sérstök.
Lag: Truth Serum

4. Ómar Ragnarsson
Ómar er einn af gersemum íslenskrar dægurmenningar,hann er einn allra besti textahöfundur, dagskrárgerðarmaður og skemmtikraftur þjóðarinnar (og jafnvel flugmaður líka). Og ef maður er einhvern tímann í vondu skapi þá skellir maður plötunni Ómar Syngur Fyrir Börnin og á er ekki séns á því að vera lengur í vondu skapi. Mér finnst að það ætti að finna einhverja leið til þess að virkja hressleika og sniðugleika, tengja svo Ómar og Hemma Gunn við tækið og þá væri aldrei aftur skortur á orku neinsstaðar í heiminum.
Lag: Eitthvað út í Loftið

3. Alec Ounsworth (Clap Your Hands Say Yeah)
Einn helsti sjarminn við hljómsveitina Clap Your Hands Say Yeah er hvernig Alec Ounsworth syngur. Honum tekst einhvern veginn að syngja í öllum tónhæðum og tegundum og aldrei hittir hann á réttan tón… en einhvern vegin þrælvirkar þetta.
Lag: Idiots in the Rain

2. Þórir Georg Jónsson (My Summer As A Salvation Soldier)
Heyrði fyrst í honum á tónleikum í iðnó og fannst fyrstu 2 lögin léleg en svo allt í einu small eitthvað hja mér og restin var alger snilld. Hreinskilið en ekkert sérstaklega þægilegt. og svo heitir hann þessu rosa töff millinafni.

1. Daniel Johnston
Ég veit ekki alveg hvað maður getur sagt um Daniel Johnston… hann er snarklikkaður snillingur en ekkert voðalega góður söngvari.
Lag: Silly Love
Tags: Alec Ounsworth, Bill Callahan, Clap Your Hands Say Yeah, Daniel Johnston, My Summer as a Salvation Soldier, Ómar Ragnarsson, Smog, Þórir
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off
Topp 5 plötur ársins… nr 2 – Georg Atli
14.1.2010 - Georg Atli
Númer 2… Bill Callahan með plötuna Sometimes I Wish I Were an Eagle

Bill Callahan er einn af þessum tónlistar mönnum sem virðast ekki geta gefið út lélegar plötur, hann er búinn að vera að gefa út plötur síðan 1992 (þá undir nafninu Smog) og ekki ein einasta plata hefur verið léleg (sumar þeirra eru aðeins minna góðar en samt góðar). Núna er hann farinn að kalla sig sínu rétta nafni og hljómurinn hans er ekki alveg eins og hinn “klassíski” Smog hljómur en eru t´nlistarlega séð líklega rökrætt framhald af meistaraverkinu Supper og A River Ain’t to Much to Love sem voru síðustu tvær plötur Smog. Þessi plata er einhvern veginn bara Supper nr.2 (sem er ansi gott) en samt bara aðeins öðruvísi (ef þið fílið Smog þá fattiði kannski hvað ég er að reyna að segja). Fyrsta lagið á plötunni heitir Jim Cain og mér finnst einvern veginn eins og hann sé að reyna að útskýra (og kannski afsaka) af hverju hann skipti um nafn, og drap Smog, fyrir aðdáendum.
Tónlistinni hans var einusinni líst sem “a one man acoustic Joy Division” í einhverri grein sem ég las. Mér fannst þetta svo góð lýsing að hún límdist við hausinn á mér og ég er bara að hugsa um að reyna að láta hana útskýra allt. Reyndar eru síðustu plöturnar kannski aðeins of tækni tengdar til að teljast acoustic en samt…
Lög:
My Friend
Roccoco Zephyr
Jim Cain
Myndbönd:
Tags: 2009, Árslisti, Bill Callahan, Joy Division, Smog, Uppgjör
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off










