Íslenskur vínylmarkaður á Kexinu!

22.11.2012 - Georg Atli

Íslensk vínyl útgáfa stendur í miklum blóma þessi misserin enda er fátt eigulegra en góð (íslensk) tónlist á vínylplötu. Titlarnir hrúgast út í búðirnar í allskonar útgáfum, litaðar plötur, númeraðar plötur tvöfaldar plötur, 10″ plötur og allskonar margt fleira. Þess vegna er mér sérstaklega gleðilegt að birta þessa tilkynningu sem við fengum um Íslenskan vínyl markað semverður á Kex hostel á laugardag. Það Snorri Helgason sem stendur á bak við þetta skemmtilega framtak og þú getur (ef þú ert tónlistarmaður með “brakandi ferskan vínyl í pokahorninu”) meira að segja fengið að vera með, sendu bara póst á Snorra Helgason

Þeir sem ætla að vera með eru (ekki tæmandi listi því að það er alltaf að bætast nöfn við, best að fylgjast með á facebook):

Snorri Helgason, Borko, Tilbury, Retro Stefson, Ojba Rasta, Múm, Ásgeir Trausti, Ólöf Arnalds, Sin Fang, Legend, The Heavy Experience, Prinspóló, Hjálmar, Sigurður Guðmundsson og Memfismafían, Of Monsters and Men, For a Minor Reflection, Moses Hightower, Kira Kira, Valdimar, Berndsen og Lay Low.

Markaðurinn verður á Kex hostel á laugardaginn á milli 13 og 17 og það verður meira að segja lifandi tónlist líka! Hér er event-inn aftur.

Þangað til getið fengiuð smá innsýn inn í plötusafn Cut Chemist (Ozomatli, Jurassic 5)

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Wondrous Wednesdays í boði Símans fram að Airwaves

2.10.2012 - Kristjana

Miðvikudagskvöld á Faktorý verða unaðsleg fram að Airwaves ársins. Einn styrktaraðila hátíðarinnar, Síminn, stendur fyrir fríum tónleikum vikulega fram að hátíð og dagskráin er ekki af verri endanum. Fyrsta kvöldið verður á morgun, 3. október, og munu þá stíga á stokk Snorri Helgason og Ásgeir Trausti

Næstu kvöld verður svo hægt að sjá:

10. október
Samaris
1860
Sóley

17. október
RetRoBot
Berndsen
Sykur

24. október
Stafrænn Hákon
Tilbury

Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og er, sem fyrr segir, frítt inn.

Tags: , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristjana | Comments Off

Sarpurinn

4.7.2012 - Georg Atli

Í staðinn fyrir að skrifa um einhverja eina plötu ætla ég að skrifa smá um einn tónlistarmann. Reyndar þá koma löginn öll af eintakinu af eina geisladisknum mínum (með þessum tónlistarmanni) en það er nú reyndar bara vegna þess að ég komst allt í einu að því að ég átti enga tölvutæka tónlist með honum… ég átti bara vínyl.

Allavegana þá er sarpslistamaður vikunnar Harry Nilsson. Ég kynntist þessum tónlistarmanni frekar seint, reyndar bara fyrir 2-3 árum þegar að ég var að sumarvinna í alveg ótrúlega heiladeyfandi sumarvinnu þá hlustaði ég alltaf á Poppperraþáttinn Yoko Dónó með Snorra Helgasyni (sem var á X-inu). Málið er nefnilega það að mitt helsta “vandamál” sem tónlistaráhugamanns er það að ég er of “current” eða þannig sko… ég er þokkalega vel inni í tónlistinni sem er í gangi í dag og síðast liðinna ára en ég er vandræðarlega lítið inni í fortíðinni, vantar grunninn. Þess vegna hlusta ég oft af miklum áhuga á þætti eins og þennnan og reyni að læra eitthvað nýtt.

Harry Nilsson kom sem sagt fyrir í einum þættinum og ég verð að segja það að ég féll strax fyrir honum. Fyrir utan það að hann syngur fáránlega vel þá eru textarnir hans stórkostlegir og það er líklega þannig sem að hann er best þekktur. Hann var gríðarleg fjölhæfur lagasmiður og samdi lög m.a. fyrir The Monkees og The Yardbirds sem hlýtur að teljast ansi gott eitt og sér. Eftir að fyrsta platan hans slá sæmilega í gegn þá hætti hann í dagvinnunni sinni og einbeitti sér að tónlistarferlinum og má þakka Bítlunum fyrir það að namedrop-a hann því þá fór fólk að taka almennilega eftir honum (þeir nefndu hann sem uppáhaldstónlistarmanninn sinn í viðtali), en ef maður hlustar á Harry Nilsson þá heyrir maður líka alveg að bítlarnir hafa hlustað nokkrum sinnum á plöturnar hans og öfugt.

Ég þori líka að fullyrða það að það eru ekkert rosalega margir sem hafa betra lag á því að semja grípandi lög eins og Harry Nilsson enda hafa lögin hans farið ansi víða t.d. samdi hann lagið One sem er líklega þekktara í öðrum útgáfum en hans eigin (Three Dog Night, Aimee Mann, Filter og að sjálfsögðu Beta Band), skemmtileg staðreynd um það lag er að takturinn sem hljómar undir byggður á tóninum sem heyrist þegar að síminn hringir út og það svarar enginn. Tvö af mestu hitturunum eru svo (nokkuð undarlega) lög sem eru ekki eftir hann sjálfan, lögin Without You og Everybody’s Talkin.

En ég á reyndar ótrúlega erfitt með að velja út einhver lög því að mér finnst svo rosalega margt frábært við Harry Nilsson en ég mæli eindregið með plötununm Nilson Schmilsson, Son of Schmilsson og Aerial Ballet… þær er virkilega frábærar í alla staði! En ég held að þetta lag sé í mestu uppáhaldi hjá mér núna, Mournin’ Glory Story

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Sarpurinn | Comments Off

KEXP og Kex Hostel halda útitónleika

29.6.2012 - Kristjana

Í jafn unaðslegu veðri og hefur verið það sem af er sumri er fátt annað að gera en skella í útitónleika og gleði. Það er akkurat það sem Kex Hostel og bandaríska útvarpsstöðin KEXP ætla að gera laugardaginn 14. júlí í KEXPort (portið við Kex Hostel). Tónleikarnir munu hefjast kl. 12 á hádegi og ljúka um miðnætti.

Aðgangur verður ókeypis en þar sem stöðin treystir á framlög hlustenda í rekstri sínum mun fólki verða gert kleift að styðja bakið við henni með frjálsum framlögum. Meðal þeirra sem fram munu koma eru: Ghostdigital, Sóley, Hjálmar, Sudden Weather Change, Tilbury og Snorri Helgason. Alls munu 12 hljómsveitir koma fram á klukkutíma fresti á þessum maraþon tónleikum.

KEXP

Tónleikarnir eru haldnir til stuðnings útvarpsstöðinni KEXP í Seattle. Stöðin er líklega orðin flestum íslenskum tónlistarunnendum vel kunnug enda hefur hún verið áberandi á Airwaves hátíðum síðastliðin ár auk þess að vera ansi dugleg að breiða út boðskapinn um íslenskar hljómsveitir. Á síðustu Airwaves hátíð var KEXP með beinar útsendingar frá hátíðinni á Kex Hosteli. Á Airwaves ársins mun stöðin aftur verða með beinar útsendingar og ókeypis tónleika alla hátíðina.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tilkynning | Comments Off

“Stutt” viðtal við Snorra Helgason – Reykjavík Music Mess meðmæli #4

26.5.2012 - Georg Atli

Núna í kvöld nær Reykjavík Music Mess hápunkti sínum með frábærri dagskrá á Faktorý. Þar ætlar Snorri Helgason að spila (ásamt mörgum öðrum) og það er ennþá hægt að kaupa miða fyrir kvöldið í kvöld. Við settumst niður í stutt spjall í tilefni af hátíðinni. Snorra ætti ekki að þurfa að kynna fyrir lesendum síðunnar, því að platan hans Winter Sun var ein af hápunktum síðasta árs og var meðal annars valin plata ársins hjá mér. Viðtalið er aðeins snyrt hjá mér og á nokkrum stöðum bætti ég inn útskýringum og það er þá merkt með [hornklofa]. Neðst á síðunni er síðan myndband af liveútgáfa af laginu The Morning is the Loving Hour.

Topp 5: Hvert er næsta skref hjá þér? Nú eru plöturnar þínar [Winter Sun og I‘m Gonna Put my Name on your Door] ansi ólikar, hvert er næsta skref?

Snorri Helgason: Það er eiginlega ekki alveg ákveðið, þannig sko. Ég er náttúrulega alltaf að semja á fullu en það var ekki beint meðvitað hversu ólík hún varð. Það var bara eitthvað sem gerðist í ferlinu.

T5: Var þetta þá bara alveg samvinnu verkefni milli þín og Sindra [úr Sin Fang og Seabear]?

SH: Já í raun og veru, ég mætti bara til Sindra með mjög hráar útgáfur. Ég bara spilaði inn lögin, gerði demó og sendi honum án allra reffa eða svoleiðis. Ég vildi bara fá hans eyra inn, alveg opið og hann tók alveg virkann þátt í að hugsa formattið á þessu og ég býst við að næst geri ég eitthvað svipað þessu. Ég bara veit ekki hvernig það verður . Ég er búinn að vera að tala við Sindra og mig langar að gera meira með honum.

T5: og ertu þá að hugsa um að fara í aðra plötu með honum?

SH: já hugsanlega. Það er erfitt fyrir okkur að finna tíma og þá sérstaklega fyrir hann því hann er með mikið í gangi. En á síðustu plötu þá gerðum við 2 lög sem voru svona smá tilraunadæmi, þar sem hann sendi mig heim með takta og ég samdi lög við það og okkur langar geðveikt að prófa að vinna meira úr því, úr þannig pælingum.

T5: og voru það lög sem enduðu á plötunni?

SH: Já þetta voru lögin Mockingbird og Caroline Knows sem er bara samin sama daginn og okkur langar að vinna meira með einhverjar svona pælingar. Og svo unnum við þessa plötu eiginlega bara á viku og það er svo mikið sem að við eigum eftir að prófa. Okkar áhugasvið skarast á svo stórum fleti að það er margt sem við eigum eftir, eða það er mín tilfinning að við getum gert alveg helling. En svo er ég mikið búinn að vera vinna með bandinu mínu, Sillu og Gumma (Sigurlaug Gísladóttir m.a. úr Mr. Silla) og Guðmundur Óskar Gumundsson m.a. úr Hjaltalín). Við erum búin að vera mikið að vinna saman og ég býst við að það næsta sem ég ageri verði alveg í samstarfi við þau.

T5: Þannig að næsta plata verður miklu meiri hljómsveitar plata?

SH: Já miklu meira en hitt og jafnvel verð ég miklu meira í því að taka meira upp sjálfur eða þá ég og silla og Gummi. Við erum búin að vera að gera það mikið, við höfum verið að taka upp coverlög og svoleiðis fyrir allskonar verkefni sem hafa ekkert komið út en við erum búin að vera að taka þetta upp hér og þar. Við erum búin að sjá það að af því við erum ekki með neinar trommur þá getum við alveg gert þetta sjálf og okkur langar til halda áfram að vinna með það.

T5: Já það er einmitt mjög skemmtilegur hljómurinn á Winter Sun af því að það eru engar eiginlegar trommur.

SH: Já það var ógeðslega mikið frelsi þegar að við áttuðum okkur á því að við gátum gert það. Þá gátum við eiginlega gert hana í raun og veru tveir. Við gerðum hana eiginlega alla tveir og svo fengum við Gumma til að koma og spila bassa og svo Sillu til að spila bakraddir og svo Sóleyju náttúrulega til að spila smá píanó. Annar var þetta bara þannig að hann bjó til Click track og ég tók upp grunn og svo hlóðum við ofan á það og það er rosalega þægileg leið því þetta er eiginlega bara kassagítar sem maður þarf að að ná inn. En ég veit svo sem ekki hvernig næsta dót verður sko, það gæti vel verið að það verði aðeins stærra og einhver önnur hljóðfæri þarna inní.

T5: Stærri umgjörð utan um hljóðið þá?

SH: Já, hin platan er eiginlega mjög einföld það eru yfirleitt ekki nema 10 – 15 rásir í mesta lagi á henni. Þannig að ég gæti vel farið að pæla í því en ég held hins vegar að ég muni ekki fara í neitt alvöru stúdíodæmi. Ég fann það svo mikið þegar að ég gerði Winter Sun að þannig dæmi hentar mér milu betur, að hittast í stuttan tíma og í afslöppuðu umhverfi. Við tókum alla grunnana upp í stúdíóinu hans Sindra og svo tók ég upp vókalana upp í svefnherberginu mínu í London.

T5: Nú varstu eingöngu í því að semja tónlist þegar að þú bjóst í London. Breyttist þessi nálgun þín á það hvernig þú semur tónlist við það að gera tónlistina svona að fullu starfi? Geriru þetta eitthvað öðruvísi núna?

SH: Já það breyttist náttúrulega mjög mikið við það að fara þarna út. Það tekur svo ógeðslega langan tíma að gera allt þarna í London. Eins og til dæmis að spila á tónleikum, það var ekkert almennilega farið í gang. Ég var ennþá að spila alvveg ógeðslega mörg ömurleg gigg, en þetta var allt farið að verða betra undir lokin en það fyrsta sem ég áttaði mig á þegar að ég fór til London er að ég væri bara ekki nógu góður. Ég þurfti bara virkilega að spíta í lófana til þess að geta þetta. Þegar að maður er hér þá eru allir, og það ernáttúrúlega það góða og það slæma við þetta, þá eru allir einhvern veginn að klappa þér á bakið og hjálpast að og það getur verið svo einangrandi einhvern veginn að vera í þannig aðstæðum. Þá er mjög gott að geta tekið skref frá og geta séð nákvæmlega það sem þú hefur í höndunum.

Það sem ég hafði í höndunum á þeim tíma var náttúrulega fyrri platan mín og hún var bara einhvern veginn það sem að ég var að pæla þá, sem var eitthvað svona retro hljómandi dót. Hún einhvern vegin var það sem að hún var og þau lög sem ég hafði í höndunum þá en ég vissi að ég þurfti að gera eitthvað annað næst. Úti hafði ég svo rosalega mikinn tima til að bara spila og á tónleikum og ég túraði rosalega mikið og það kennir manni bara að spila á gítarinn og syngja allt öðruvísi og ég lærði alveg ótrúlega mikið af því að vera þar.

T5: Er þá erfitt að komast að þarna úti, að koma á einhverjum giggum?

SH: Já. Í London, geturu ímyndað þér hvað það eru margir gaura með kassagítar að spila eitthvað dót? Það eru örugglega milljón eða eitthvað sem eru að gera nálvæmlega það sama og ég. Þetta er svolítið fyndið því að þetta eru einhvern vegin alltaf sömu staðirnir sem að fólk byrjar á, sömu staðirnir og sömu acoustic kvöldin sem að maður er að komast inn á. Það er kannski miklu meira mál að komast þarna inn ef þú ert hollenskur eða þýskur eða eitthvað en það að vera íslensku gefur manni sérstöðu. Bara það að geta skrifað það í subjectið að þú sért íslenskur eykur líkurnar aðeins á því að þeir opni póstinn frá manni.

T5: maður fær nokkra hipstera punkta fyrir það að vera íslenskur.

SH: Já ég get allavega ímyndað mér það að það sé erfiðara fyrir venjulegann breta að komast en en mig. EN það er svosem ekkert mikið mál að komast að þessu grunn stöðum en að komast uppúr þeim hring, að komast frá fyrsta skrefi yfir í annað er alveg fáránlega erfitt. Það sem að hjálpaði mér voru íslendinga tengslin, að fá að hita upp fyrir íslensku böndin þegar að þau koma í gegn og bara að fá hjálp frá Önnu Hildi [fyrrv. formaður Útón] og Grími Atla og svoleiðis liði og fá ráðleggingar og hjálp frá þeim. Það er svo fáránlega gott leynifélag sem að maður er í þegar að maður er íslendingu í svona borgum og ég gat alltaf sent þeim email eða hitt þau í kaffi eða eitthvað til að fá ráðleggingar.

T5: En svona hátíðir eins og Reykjavík Music Mess og Iceland Airwaves er þetta miklil lyftistöng fyrr þig? Færðu athygli í útlöndum fyrir það að spila á þeim? Nú heyrir maður nefnilega að það kemur alveg hrúga af erlendum fréttamönnum á hátíðirnar sem koma hingað til land að fylgjast með, er það að virka?

SH: Jájájá, þetta skiptir alveg tvímælalaust öllu máli fyrir senuna í heild. Persónulega hefur ýmislegt komið útúr því hjá mér en það er líka einhver óræðari áhrif. Ég persónulega hef ekki fengið útgáfu bara út á þetta en fólk veit af manni, það hefur séð nafnið og svona og þetta er stærra dæmi sem að vinnst af þessu.

T5: Er þetta gott á CV-ið?

SH: Já og líka bara fyrir alla senuna á Íslandi. Maður heyrir alveg að það er alveg ógeðslega mikið af skemmtilegum hlutum að gerast, sem einmitt akkúrat núna og það að fá svona marga tónlistarspekúlanta inn í einu þá verður svo augljóst fyrir þetta fólk að sjá hvað er mikið í gangi í þessum litla bæ og það skiptir ógeðslega miklu máli að fólkið geti hittst og séð það með eigin augum hvað það er mikið í gangi hérna. Sem er náttúrulega alveg magnað. Það er líka gaman þegar að maður sér öll þessi bönd live. Ég fór mikið á tónleika úti í London en fann aldrei neina senu eða neitt að gerast. Maður fór og sá einhver drasl bresk bönd og fólk var bölvandi mér fyrir að draga sig að sjá eitthvað drasl en að geta farið á tónleika hérna og þar er eiginlega alltaf bara eitthvað skemmtilegt í gangi. Það er klikkað og það er ein af ástæðunum fyrir því að ég flutti heim, hér er miklu meira stuð og það er miklu auðveldara að verða inspíreraður og að framkvæma hluti að gera eitthvað það er svo ógeðslega auðvelt.

T5: Er svo eitthvað meira að gerast hjá þér annað en RvkMM?

SH: Já ég er að fara að spila á Gogoyoko Wireless 31. Maí og svo er ég að fara á Ruðasand að spila þar á fríu festivali og svo er ég að fara að taka túr um Ísland, 7 tónleikar á 7 stöðum í lok júlí með Mr. Sillu og Hugleiki Dagssyni. Það verður örugglega geðveikt. Við byrjum á Höfn og förum þaðan á Seyðisfjörð, Húsavík, Flateyri, Patreksfjörð, Flatey og Hafnarfjörð.

Eftir þetta fjarar viðtalið út en við þökkum Snorra Helgasyni kærlega fyrir spjallið og hvetjum auðvitað alla til að fara á Faktorý í kvöld. Minnum líka á það er góð hugmynd að tjékka á plötunum hans.

Tags:
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Reykjavík Music Mess kveður Nasa með aukatónleikum

23.5.2012 - Kristjana

Reykjavík Music Mess gleðin eykst með hverjum deginum því nú hefur verið tilkynnt að sérstakir aukatónleikar verði haldnir á Nasa á fimmtudaginn, þann 24. Dikta, Tilbury, Cheek Mountain Thief og Morðingjarnir munu koma fram og tónleikarnir hefjast upp úr kl. 21. Reykjavík Music Mess miði mun veita aðgang en einnig verður hægt að kaupa miða einungis fyrir fimmtudagskvöldið á miði.is og við inngang og er miðaverðu einungis 1.000 kr.

Eins og við höfum áður nefnt munu alls 18 hljómsveitir koma fram á hátíðinni yfir helgina – á Nasa, Kex Hosteli og Faktorý. Meðal þeirra eru Reykjavík!, Benni Hemm Hemm, My Bubba & Mi frá Danmörku, Snorri Helgason og Laura J. Martin frá Englandi. Dagskrá hátíðarinnar má nálgast á heimasíðu hennar www.reykjavikmusicmess.com. Svo er um að gera að minna enn og aftur á að frítt er inn á þá viðburði sem haldnir verða á Kex Hostel.

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Hjaltalín, Snorri Helgason, Tilbury, Mr. Silla og Borko á styrktartónleikum

8.5.2012 - Kristjana

Á fimmtudaginn verða haldnir styrktartónleikar í Gamla Bíói. Allur ágóði tónleikanna mun renna til uppbyggingar á listasmiðju Galtarvita. Tónlistin, sem boðið verður upp á, er ekki af verri endanum en Hjaltalín, Snorri Helgason, Tilbury, Mr. Silla og Borko munu öll koma fram. Ekki slæmt það!

Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og miðaverð er 1.500 kr. Nánari upplýsingar hér.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tilkynning | Comments Off

Reykjavík Music Mess haldin í annað sinn

27.4.2012 - Kristjana

Tónlistarhátíðin Reykjavík Music Mess verður haldin í annað sinn helgina 25. til 27. maí næstkomandi. Hátíðin mun fara fram á Faktorý Bar og Kex Hosteli. Meðal þeirra sem munu koma fram á hátíðinni eru Benni Hemm Hemm, Snorri Helgason, Jarse (FI), My Bubba & Mi (DK), Cheek Mountain Thief (UK/IS), Legend, Úlfur og fleiri. Tilkynnt verður um endanlega dagskrá og uppröðun þann 4. maí.

Reykjavík Music Mess var haldin í fyrsta sinn síðasta vor og komu þá fram meðal annars Deerhunter, Mugison, Lower Dens, Sin Fang og Nive Nielsen.

Miðasala á hátíðina hefst föstudaginn 4. maí og mun hún fara fram á www.midi.is. Frítt verður inn á þá viðburði sem haldnir verða á Kex Hosteli.

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tilkynning | Comments Off

Alþjóðlegi plötubúðardagurinn!!

20.4.2012 - Georg Atli

Á morgun (laugardaginn 21. apríl) er alþjóðlegi plötubúðardagurinn (Record Store day) í útlöndum er mikið um dýrðir og þar eru allskonar sérstakar útgáfur af plötum og lögum sem koma út í tilefni dagsins auk þess sem að margar plötubúðir halda tónleika af ýmsum stærðum.

Til allrar hamingju þá hefur boðskapurinn borist til Íslands á síðustu árum og á hverju ári verður dagskráin viðameiri og betri. Núna í ár stefnir t.d. í sérstaklega skemmtilega dagskrá í plötubúðinni Kongó . Þar verða Snorri Helgason og The Vintage Caravan með tónleika og þar verður líka vínylplötumarkaður. Dagskráin hljómar svona:

Dagskrá alþjóðlega plötubúðadagsins í Kongó:

13:00 Opnun
16:00 The Vintage Caravan
17:00 Snorri Helgason
18:00 Bjórtími á Forrréttabarnum

Kongó er til húsa á Mýrargötu (beint á móti Slippnum)

Fáum eitt skemmtilegt vídjó með Snorra og fyrir neðan það kemur svo fréttatikynningin sem við fengum í tilefni dagsins. Topp 5 hvetur alla til að skella sér í bæinn á Plötubúðardeginum og næla sér í góðann íslenskan vínyl, því hann hljómar bara einhvern veginn miklu betur!

- Tónleikar með Snorra Helga og The Vintage Caravan -

Alþjóðlegi plötubúðardagurinn verður haldin hátíðlegur laugardaginn 21. apríl í verslun Kongó (Mýrargötu, Liborius húsinu). En þá fagna hljómplötubúðir um allan heim tilvist hljómplötunnar með allskyns tónleikum, útgáfum og viðburðum.

Við ætlum að halda uppá þennan alþjóðlega merkisdag með því að halda tónleika og setja upp vínylplötumarkað. Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason og hljómsveitin The Vintage Caravan munu koma fram í verslun Kongó og skemmta gestum með fallegum lögum. Eins hefur Kongó sankað að sér allskyns músík síðustu vikurnar og býður til sölu frábært úrval af vínylplötum og geisladiskum á góðu verði. Þar verður að finna glænýjar útgáfur á borð við nýútkomna vinýlútgáfu LEGEND á plötunni FEARLESS sem og eldri titla, bæði íslenska og erlenda.

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

LEGEND á Hressó – styrktartónleikaröð gogoyoko og Hressó

18.4.2012 - Kristjana

Hressó og gogoyoko hafa startað nýrri tónleikaröð fyrir þá sem vilja láta gott af sér leiða. Hljómsveitin sem fram kemur hverju sinni velur sér málefni til að styrkja og verða tónleikagestir hvattir til þess að leggja málefninu lið með frjálsum framlögum, en frítt verður inn. Auk þess hafa gogoyoko og Hressó fengið 10 fyrirtæki með sér í lið sem, hvert um sig, munu leggja fram 50 þúsund krónur í söfnunina.

Tónleikaröðin hófst síðasta fimmtudag. Þá komu fram þau Elín Ey, Daníel Jón og Ylfa Marín en þau söfnuðu fyrir Médecins sans frontières eða Lækna án landamæra.

Annað kvöldið verður svo haldið á morgun, fimmtudaginn 19. apríl. Í þetta skiptið mun LEGEND mæta á Hressó og spila til styrktar Samhjálp.

LEGEND

LEGEND er skipuð þeim Krumma Björgvinssyni og Halldóri Á. Björnssyni en þeir hafa áður starfað saman í hljómsveitinni Esju. Legend varð til árið 2009 og heitir í höfuðið á samnefndri ævintýramynd Ridley Scott frá árinu 1985.

LEGEND sendu nýverið frá sér sína fyrstu breiðskífu, Fearless, sem trónir nú efst á vinsældarlista gogoyoko.com. Á Fearless má heyra drungalegt norrænt rafpopp í anda Depeche Mode, Bauhaus og The Knife.

Svo er hægt að plana fram í tímann – því þetta eru þeir sem fram munu koma á styrktartónleikunum:

12. apríl – Elín Ey og Day (Daníel Jón og Ylfa Marín)
19. apríl – LEGEND
26. apríl – Ljósvaki, M-Band og ReTroBot
3. maí – Kiriyama Family
10. maí – Snorri Helgason
17. maí – For a Minor Reflection
24. maí – Eldar
31. maí – Kynnt síðar

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tónleikar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin