Wondrous Wednesdays í boði Símans fram að Airwaves

2.10.2012 - Kristjana

Miðvikudagskvöld á Faktorý verða unaðsleg fram að Airwaves ársins. Einn styrktaraðila hátíðarinnar, Síminn, stendur fyrir fríum tónleikum vikulega fram að hátíð og dagskráin er ekki af verri endanum. Fyrsta kvöldið verður á morgun, 3. október, og munu þá stíga á stokk Snorri Helgason og Ásgeir Trausti

Næstu kvöld verður svo hægt að sjá:

10. október
Samaris
1860
Sóley

17. október
RetRoBot
Berndsen
Sykur

24. október
Stafrænn Hákon
Tilbury

Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og er, sem fyrr segir, frítt inn.

Tags: , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Kristjana | Comments Off

KEXP og Kex Hostel halda útitónleika

29.6.2012 - Kristjana

Í jafn unaðslegu veðri og hefur verið það sem af er sumri er fátt annað að gera en skella í útitónleika og gleði. Það er akkurat það sem Kex Hostel og bandaríska útvarpsstöðin KEXP ætla að gera laugardaginn 14. júlí í KEXPort (portið við Kex Hostel). Tónleikarnir munu hefjast kl. 12 á hádegi og ljúka um miðnætti.

Aðgangur verður ókeypis en þar sem stöðin treystir á framlög hlustenda í rekstri sínum mun fólki verða gert kleift að styðja bakið við henni með frjálsum framlögum. Meðal þeirra sem fram munu koma eru: Ghostdigital, Sóley, Hjálmar, Sudden Weather Change, Tilbury og Snorri Helgason. Alls munu 12 hljómsveitir koma fram á klukkutíma fresti á þessum maraþon tónleikum.

KEXP

Tónleikarnir eru haldnir til stuðnings útvarpsstöðinni KEXP í Seattle. Stöðin er líklega orðin flestum íslenskum tónlistarunnendum vel kunnug enda hefur hún verið áberandi á Airwaves hátíðum síðastliðin ár auk þess að vera ansi dugleg að breiða út boðskapinn um íslenskar hljómsveitir. Á síðustu Airwaves hátíð var KEXP með beinar útsendingar frá hátíðinni á Kex Hosteli. Á Airwaves ársins mun stöðin aftur verða með beinar útsendingar og ókeypis tónleika alla hátíðina.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Tilkynning | Comments Off

Stuttskífa frá Sin Fang

25.4.2012 - Kristjana

Í lok maí mun stuttskífan Half Dream með Sin Fang koma út á vegum Morr Music. Skífan verður einungis gefin út á 12″ vínyl og mun innihalda fimm lög. Fyrsta lag Half Dream, sumarslagarinn Only Eyes, hefur þegar verið kynnt til leiks og myndband við það er væntanlegt í næstu viku. Segja má að Half Dream sé hálfgerður eftirmáli síðustu plötu Sin Fang, Summer Echoes og formáli þeirrar næstu, Flowers, en fyrsta smáskífa hennar mun koma út í haust og platan sjálf í byrjun árs 2013.

Í lok maí mun Sin Fang halda í 3 vikna tónleikaferðalag um Evrópu ásamt Sóley en útgáfutónleikar verða svo haldnir á Íslandi í júní, strax eftir tónleikaferðina.

Tags: ,
Flokkað undir Kristjana, Tilkynning | Comments Off

Sóley í samstarf með danska tvíeykinu Darkness Falls

28.3.2012 - Georg Atli

Við fengum fréttatilkynningu um frekar áhugavert samstarf milli dönsku hljómsveitarinnar Darkness Falls og Sóleyjar. Þær ætla að spila saman á tvennum tónleikum á næstunni og ég alveg viss um að útkoman á eftir að vera skemmtileg.

Söngkonan Sóley Stefánsdóttir og danska dúóið Darkness Falls munu rugla saman reitum á tvennum tónleikum á komandi mánuðum. Fyrri tónleikarnir verða hluti af opnunarkvöldi tónlistarhátíðarinnar Spot Festival þann 4 maí, sem fer fram í Godsbanen, nýju og glæsilegu menningarhúsi í Árósum. Seinni tónleikarnir verða haldnir í Berlín síðar á þessu ári.

Samvinna tónlistarkvennanna þriggja er hluti af Dansk-Þýsku samstarfsverkefni (en Sóley er á mála hjá Morr Music útgáfunni í Berlín.). Darkness Falls og Sóley voru valdar af fjölskipaðri dómnefnd sem í sátu fulltrúar danskra og þýskra fjölmiðla og einstaklingar úr tónlistarsenum landanna. Dönsku fulltrúarnir voru þeir Jan Sneum (yfirritstjóri DR P6 Beat), Søren B. Kristensen (eigandi tónlistarútgáfunnar Rocktraum) og Esben Marcher (tónlistarstjóri SPOT Festival og stjórnendi tónleikahússins Forbrændingen í Kaupmannahöfn) en þau Michael Schuster (framkvæmdastjóri Cargo Records), Mona Rübsamen (framkvæmdastjóri og dagskrárstjóri útvarpsstöðvarinnar Flux FM í Berlín) og Christoph Diekmann (framkvæmdastjóri almannatengsla fyrirtækisins Area Entertainmen) voru fulltrúar Þýskalands.

Það eru þær Josephine Philip (söngur og hljómborð) og Ina Lindgreen (bassi og gítar) sem í sameiningu mynda Darkness Fall. Tónlist þeirra má lýsa sem sérstakri blöndu drungalegrar popp tónlistar, post-punk áhrifa og innilegrar gítartónlistar í anda sjöunda áratugarins. Hinn víðfrægi raftónlistarmaður Anders Trentemøller stjórnaði upptökum á fyrstu plötu þeirra, Alive in US.

Ætla má að tónheimur Darkness Falls muni falla vel að grípandi melódíum og ómþýðum píanóleik Sóleyjar, sem mun m.a. leika efni af nýjustu plötu sinni We Sink sem hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda um víða veröld.

„Ég held að það gæti orðið skemmtilegt fyrir okkur að leika tónlist hverrar annarrar þar sem þeir stílar sem við höfum tamið okkur eru svo ólíkir“, sagði Sóley Stefánsdóttir. Josephine Philip tók í sama streng og bætti við „Þetta er líka frábær leið til að auka samstarf listamanna á Norðurlöndum. Okkur hlakkar mikið til!“

Tags: ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Íslensk tónlistarmyndbönd á Northern Wave Film Festival

31.1.2012 - Georg Atli

Næstkomandi mars (2.-4. mars 2012) verður haldin alþjóðleg stuttmyndahátíð í Grundarfirði. Þó svo að það eitt og sér sé skemmtilegt verður valið íslenska tónlistarmyndband ársins í leiðinni og mér finnst það ennþá skemmtilegra. Ykkur til yndisauka þá ákvað ég að birta lista yfir þau myndbönd sem hafa verið tilnefnd hér að neðan og m.a.s. að linka á þau líka. Dyggir lesendur hafa alveg örugglega séð mörg myndbandanna áður hérna hjá okkur en þau eru samt mjög góð/skemmtileg þannig að það má alveg horfa aftur. Ég mæli meira að segja eindregið með því að þið horfið á öll myndböndin. Hins vegar nenni ég ekkert að skrifa um þau en bendi þess í stað á mjög skemmtilegt blogg frá Gogoyokoliðum. Það er líklega rétt að taka tvennt fram, í fyrsta lagi þá er listinn hér að neðan fenginn að láni af heimasíðu hátíðarinnar (northernwavefestival.com/) og í öðru lagi þá eru það áðurnefndir Gogoyokopennnar sem tilnefna myndböndin á listann.

ÍSLENSK TÓNLISTARMYNDBÖND TILNEFND AF GOGOYOKO.COM

123 Forever með Apparat Organ Quartet
Leikstjóri: Gerda Klotz
Feels Like Sugar með Hjaltalín
Leikstjóri:Rúnar Ingi
Because Of The Blood með Sin Fang
Leikstjóri:Máni M. Sigfússon
Sneaky Boots með Kiriyama Family
Leikstjóri:Gunnar Örn Birgisson
Hellbound Heart með Reykjavík!
Leikstjóri:Bowen Staines
River með Snorra Helgasyni
Leikstjóri:Máni M. Sigfússon
Tranquility með Who Knew
Leikstjóri:Einar Baldvin Arason
Implosions með Agent Fresco
Leikstjóri:Jónatan Grétarsson
Sharpen The Knife með Who Knew
Leikstjóri:Sigurjon Bjarni Sigurjonsson
Oh Dae Su II með We Made God
Leikstjóri:Óskar Bragi Stefánsson
Slowlights með Sin Fang
leikstjórn: Máni M. Sigfússon
Over með GusGus
Leikstjórn Ellenar Lofts & Thorbjarnr Ingasonar
Smashed Birds með Sóley
Leikstjórn: Inga Birgisdóttir
Kimba með Retro Stefson
Leikstjórn: Árni Sveinssonar
Never Forever með Singapore Sling
Leikstjórn: Þórður Grímsson
Skeletons Having Sex on a Tin Roof með Orphic Oxtra
Leikstjórn: Bergrún Snæbjörnsdóttir
I Don’t Want To Go To Sleep Either með FM Belfast
Leikstjórn: Árni Rúnar Hlöðversson
Bed of Needles með Steed Lord
Leikstjórn: Steed Lord (ásamt Sonya Tayeh)
American með FM Belfast
Leikstjórn: Árni Rúnar Hlöðversson
Two Boys með Sin Fang
Leikstjórn: Inga Birgisdóttir

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Topp 5 íslenskar plötur ársins 2011 – Georg Atli

13.1.2012 - Georg Atli

2011 var frábært ár fyrir íslenska tónlist, ég held að ég hafi aldrei haft eins mikið að góðum og frábærum plötum á árslista. Þetta voru reyndar svo margar plötur að ég neyðist til þess að svindla eina erðina enn og koma með miklu lengri lista… og meira að segja að tvískpta listanum sem er ekki topp 5 listinn!. Fyrst koma plötur sem voru sérstaklega góðar eða skemmtilegar eða áhugaverðar og örstutt um hverja plötu.

Mugison – Haglél – Mér finnst þetta vera sæmileg plata með 11 frábærum lögum (sem er kannski ekki rökrétt en samt satt)
Gus Gus – Arabian Horse – Partýplata ársins
FM Belfast – Don‘t Want to Sleep – Eftirpartýplata ársins
Gang Related – Stunts and Rituals
– Hressandi nútímastrandarpopprokk í anda Beach Boys
Ham – Svik, Harmur og Dauði – Endurkoma ársins
Futuregrapher – TomTom Bike – Frábært plata sem fór allt of lítið fyrir
Samaris – Hljóma Þú E.P. -Krútraftónlist
Fist Fokkers – Emilio Estavez E.P. – Frábært. Með epískari live böndum íslands.
Dad Rocks! – Mount Modern – Íslenskur Bill Callahan. Reynið að hlusta á lagið Funemployment án þess að fíla það.

Næst koma plötur sem að voru ótrúlega nálægt 5 sætinu á listanum mínum:

Daníel Bjarnason & Ben Frost – Solaris – Klassíska plata ársins
NOLO – Nology – Skemmtilegasta plata ársins.
Skurken – Gilsbakki – Raftónlistarplata ársins.
Of Monsters and Men -My Head is an Animal – Poppplata ársins.
Náttfari – Töf – Síðrokkplata ársins og 6. sætið á listanum mínum

oooog svo Topp 5 plötur ársins!

5. Sóley – We Sink
Ég var búinn að bíða spenntur eftir þessari plötu síðan e.p. platan hennar kom út í fyrra. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Sóley tekst að búa til einhvern ótrulega fallegan hljóðheim sem að maður getur ekki annað en sogast inn í.

4. Lay Low – Brostinn Strengur

Lay Low gerði frábæra plötu með frábærum lögum við frábær ljóð nokkura kvenna. Það passar ótrúlega vel við hana að syngja á íslensku og hún nær rosa vel inn á þessa íslensku tilfinningu.

3. Reykjavík! – Locust Sounds

Stórkostleg plata í alla staði. Reykjavík! náði að rífa hljóminn sinn upp á alveg nýtt plan og gæði tónlistarinnar urðu miklu meiri.

2. Sin Fang – Summer Echoes

Sindri er örugglega einn af ferskari og frumlegri tónlistarmönnum Íslands. Hann hleður upp hljóðum og tónum í einhverja ótrúlega flókna tónlistarsúpu þar sem að maður heyrir eitthvað nýtt við hverja hlustun.

1. Snorri Helgason – Winter Sun

Einfaldlega besta plata ársins. Frábær í alla staði, lögin og útsetningarnar eru góðar, textinn er góður og hljóðfæra leikurinn góður. Snorri Helgason fann sig greinilega ótrúlega vel í stúdíóinu með Sindra (Sin Fang og Seabear).

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Topp 5 íslenskar plötur 2011 – Kristín Gróa

13.1.2012 - Kristín Gróa

Árið 2011 er í mínum huga ár íslenskrar tónlistar. Það kom út alveg gríðarlegt magn af vönduðum og skemmtilegum plötum og ég hef persónulega aldrei hlustað jafn mikið á íslenska tónlist. Húrra fyrir íslenskum tónlistarmönnum! Að vanda skulum við byrja á 10 plötum sem náðu ekki á topp fimm en mér þykir samt vert að minnast á:

Lay Low – Brostinn strengur
GusGus – Arabian Horse
Snorri Helgason – Winter Sun
Nolo – Nology
Vigri – Pink Boats
FM Belfast – Don’t Want To Sleep
Orphic Oxtra – Kebab diskó
Gang Related – Stunts & Rituals
ADHD – ADHD2
Ben Frost & Daníel Bjarnason – SÓLARIS

5. Reykjavík! – Locust Sounds

Rokkplata ársins! Gríðarlega metnaðarfull og skemmtileg plata sem rokkar fyrir allan peninginn. Ég hafði fram að þessu aldrei hlustað mikið á Reykjavík! en hafði horft dáleidd á þá live enda leitun að betra live bandi. Nú er ég farin að hlusta og mun aldrei hætta.

4. Mugison – Haglél

Þetta er líklega plata ársins svona almennt séð enda náði hún til allra. Ég hef aldrei hitt neinn sem hefur nokkuð slæmt um Mugison eða hans tónlist að segja og þar held ég einmitt að töfrarnir séu. Hann er allra. Hann er nógu kúl fyrir hipsterana en nógu alþýðlegur fyrir ömmurnar. Allir vinna. Það er frábært að sjá viðtökurnar við þessari plötu og þær eru algjörlega verðskuldaðar. Þetta er í raun látlaus lítil plata en stundum er minna meira.

3. Sin Fang – Summer Echoes

Þessi plata er líklega andstaðan við Haglél. Hér er ekkert lítið, látlaust eða einfalt heldur allt svo gríðarlega flókið og samofið að þegar ég hlusta þá get ég ekki annað en velt því fyrir mér hvernig í fjáranum maðurinn fer að því að láta þetta allt passa svona fullkomnlega saman. Mér finnst platan sterk út í gegn en ég heillaðist samt mest af laginu Fall Down Slow sem varð mitt fyrsta ofspilaða lag ársins 2011.

2. Sóley – We Sink

Ég viðurkenni að þegar ég hlustað á Theater Island í fyrsta sinn þá náði ég henni ekki alveg en eftir að hafa séð Sóley spila live þá gaf ég henni annan séns og heillaðist algjörlega. Ég beið því We Sink með mikilli eftirvæntingu og varð engan veginn fyrir vonbrigðum. Mér finnst ég vera að fara inn í annan heim þegar ég set þessa plötu af stað og í hvert sinn hlusta ég frá upphafi til enda… nema kannski þegar ég er að spila Smashed Birds á repeat en það er algjörlega uppáhalds. Það er líka alveg ofboðslega gaman að heyra lögin af plötunni live en Sóleyju og Jóni Óskari tekst á einhvern undraverðan hátt að spila bara tvö en koma samt öllu til skila.

1. Of Monsters And Men – My Head Is An Animal

Það má alveg ásaka mig um að vera hlutdræga þegar kemur að Of Monsters And Men og ég skal alveg gangast við því. Ég get hins vegar lofað því að ég myndi ekki setja þau á toppinn á árslistanum mínum óverðskuldað og staðreyndin er sú að hef ekki hlustað jafnmikið á nokkra íslenska plötu á árinu. Mér finnst hún alltaf skemmtileg, fæ aldrei leið á lögunum og syng með hverju lagi. Mér finnst ekki eitt slakt lag á þessari plötu og ég er ekki hissa á að EP platan Into The Woods hafi toppað Billboard Heatseekers listann. Framtíðin er björt!

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Annáll Kimi Records

13.1.2012 - Kristín Gróa

Kimi Records átti glimrandi gott ár í músík og stóð að útgáfu nokkurra hljómplatna sem hafa fengið prýðilegar viðtökur, eins sáu þeir um dreifingu og kynningu á nokkrum titlum. Árið hófst með útgáfu á annarri breiðskífu Sin Fang, Summer Echoes, en hún kom út í mars. Fékk hún prýðilegar viðtökur, en fólki þykir þetta að öllu jöfnu mjög góð plata. Því næst kom platan Don’t Want to Sleep með FM Belfast (Morr music gaf út). Platan fór í verslanir þann 3. júní síðastliðinn. Í ágúst gáfum við út aðra breiðskífu Snorra Helgasonar og nefnist hún Winter Sun. Sú plata féll vel í kramið hjá skrípentum og hlustendum og meðal annars valdi Dr. Gunni hana sem plötu ársins.

Um mitt sumar fór allt að tryllast á skemmtistöðum miðborgarinnar sökum óvæntasta smells ársins. Niðrá strönd í sexy schidt endurgerð fékk fólk til að æpa af fögnuði og gleði. Í tilefni því gaf Kimi lagið út á rafrænu formi í þessari dansvænu útgáfu og var því vel tekið.

Í lok ágúst gáfu jaðarjazzararnir í ADHD út sína aðra breiðskífu, ADHD 2 og sömuleiðis komu út plöturnar Stop That Noise með Hellvar og Hermigervill leikur fleiri íslenzk lög, en Kimi sá um dreifingu á þessum titlum.

2. september gáfum við út plötuna We Sink (í samstarfi við Morr music) með henni Sóley. Sú plata endaði ofarlega á flestum árslistum og þykir platan frábær í alla staði.

Þann 1. október kom platan Haglél út með Mugison og hefur hún slegið öll met og hefur meðal annars verið seld í um 28 þús eintökum. Um miðjan október komu svo út tvær plötur. Við upphaf Airwaves hátíðina kom út platan Mount Modern með Dad Rocks! í tilefni af fyrstu tónleikum hans hér á landi, en Snævar Albertsson er að öllu jöfnu búsettur í Danmörku. Svo kom út platan Locust Sounds með Reykjavík!, 14 laga plata sem fer alla leið í rokkinu.

Sömuleiðis gáfum við í Kima út okkar fyrstu kvikmynd, í samstarfi við Kjartansson ehf, en myndin Backyard kom út á DVD og fylgir hljómdiskur með myndinni og inniheldur hann lög úr myndinni.

Í nóvember kom svo út platan Nology með Nolo. Unggæðingarnir úr úthverfum höfuðborgarinnar enduðu útgáfuárið okkar með bravúr, en platan þykir unaðsleg.

Í apríl hélt Kimi Records sína fyrstu tónlistarhátíð og kölluðum við hana Reykjavík Music Mess, þar úði og grúði af músík og minnistæðustu tónleikar hátíðarinnar voru frábærir tónleikar Deerhunter, goðsagnakennd framkvæmd Sudden Weather Change á tónlist Ghostigital, en þar nutu þeir aðstoðar Einars Arnar Benediktssonar. Reykjavík Music Mess verður svo haldin aftur á þessu ári, en að þessu sinni í maí.

Allt í allt gott ár hjá þeim tónlistarmönnum sem Kimi leggur lag sitt við.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa | Comments Off

Árslistatíð!

2.1.2012 - Georg Atli

Eitt það allra besta við desember og janúar eru allir árslistarnir. Nú keppast tónlistarsíður og dagblöð og tímarit við það að birta sína lista yfir bestu lög og plötur ársins. Topp 5 gerir þetta að sjálfsögðu líka (lög ársins komu í þríriti síðasta föstudag. Hér eru linkar á lista Snorra, Kristínar Gróu og Georgs Atla) og næsta föstudag (7. janúar) koma listar yfir bestu erlendu plötur ársins 2011 og föstudaginn eftir það (14. janúar) er komið að íslensku plötunum. Gaman að því.

Til að létta ykkur biðina þá koma hlekkir á nokkra merkilega (íslenska) lista.

Rjóminn var með 2 lista og þar varð Bon Iver efstur allra útlenskra og Sóley átti bestu íslensku plötuna.

Dr. Gunni skipti þessu í tvennt og Snorri Helga átti íslensku plötuna og Kvelertak þá erlendu

Benson is Fantastic fannst St. Vincent vera allra best á árinu en efsta íslenska platan var Locust Sounds þeirra á Reykjavík! í 14. sæti

Tónlistarveitan Gogoyoko er síðan búin að starta nýju tónlistarbloggi og þar varð Kurt Vile efstur og Sin Fang var í 3. sæti.

Kraumur birti líka sinn úrlvalslista nokkru fyrir jól.

Að lokum má benda á listana frá bæði Fréttatímanum (bls. 28) og Fréttablaðinu (innlent og erlent) en þar fengu Topp 5 að vera með í listagerðinni, gaman að því!

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Úrvalslisti Kraums

7.12.2011 - Georg Atli

Nú er desember og árslok nálgast óðfluga, en þá er einmitt frábærlega gaman (og erfitt) að vera tónlistarnörd og kynna sér alla árlistanna. Hér á Íslandi er það yfirleitt (amk undanfarin ár) tónlistasjóðurinn Kraumur sem ríður á vaðið með sinn 20 plötu úrvalslista. Sá listi var birtur í gær en endanlegur listi verður svo birtur 16. des.

Samkvæmt heimasíðu Kraums fer valið fram á eftirfarandi hátt:

Framkvæmd Kraumslistans 2011 er með þeim hætti að sex manna dómnefnd valdi 20 plötur á Úrvalslista Kraumslistans en við honum tekur 20 manna dómnefnd og velur bestu plöturnar þannig að eftir standa 5 til 6 verðlaunaplötur

Dómnefnd Kraumsverðlaunanna er skipuð 20 aðilum sem allir hafa mikla reynslu af því að hlusta á og fjalla um íslenska tónlist á ýmsum sviðum fjölmiðla. Formaður dómnefndar er Árni Matthíasson.

Í úrvalslistanefnd áttu sæti ásamt Árna Matthíassyni: Andrea Jónsdóttir, Trausti Júlíusson, Egill Harðarson, Helena Þrastardóttir og Hildur Maral Hamíðsdóttir.

Þessar plötur komust á úrvalslistann:

  • ADHD – ADHD2
  • Anna Þorvalds – Rhízoma
  • Ben Frost og Daníel Bjarnason – SÓLARIS
  • Dead Skeletons – Dead Magick
  • FM Belfast – Don’t want to sleep
  • For a Minor Reflection – EP
  • Helgi Hrafn Jónsson – Big Spring
  • Hljómsveitin Ég – Ímynd Fíflsins
  • Lay Low – Brostinn Strengur
  • Nolo – Nology
  • Of Monsters and men – My Head is an Animal
  • Ofvitarnir – Stephen Hawking/Steven Tyler
  • Ragga Gröndal – Astrocat Lullaby
  • Reykjavík! – Locust Sounds
  • Samaris – Hljóma Þú (ep)
  • Sin Fang – Summer Echoes
  • Skurken – Gilsbakki
  • Snorri Helga – Winter Sun
  • Sóley – We Sink
  • Sólstafir – Svartir Sandar

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

June  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin