Topp 5 Það sem ég er að hlusta á núna – Georg Atli

14.5.2012 - Georg Atli

Við ákváðum að skella þessum lista svona inn í áður auglýsta dagskrá af því að það er alltaf gaman að segja frá því sem að maður er að hlusta á í augnablikinu en einhvern veginn tókst mér bara að gleyma því fullkomlega. Ég set minn því bara inn núna og vona að öllum sé sama.

Ég dett alltaf inn í einhverjar ákveðnar stefnur og hlusta þá bara rosalega mikið af einhverri tónlist sem fellur á einn eða annann hátt undir þá tónlistarstefnu, fæ svo leið á því og færi mig í eitthvað annað. En svo getur það alltaf gerst ég heyri eitthvað sem er mjög ólíkt því sem ég er að hlusta á og þá bæti ég því alveg inn á milli en yfirleitt þá er það bara eitthvað eitt í einu, t.d. er ég núna að hlusta mikið á elektróníska tónlist og listinn minn í dag einkennist frekar mikið af því.

5. Aphex Twin – Windowlicker

Einhvern tímann þá heyrði ég málshátt sem var svona: “ef maður einusinni segir A þá verður maður að segja B.” Mér finnst þetta kjánalegur málsháttur en í þetta skiptið á hann við, því að ef að maður er byrjaður að hlusta á Squarepusher (sjá aðeins neðar) þá verður maður að hlusta á Aphex Twin. Það er þannig að maður getur gripið inn hvar sem er í Aphex Twin plötusafninu, það er allt gott þar.

4. Modeselektor (feat. Thom Yorke) -This

Ég er mikill aðdáandi Modeselektor og sá þá (svona á ská eða þannig) meðal annar á trylltum tónleikum í listasafninu á Airwaves 2010 (Undir Nafninu Moderat með snillingnum Apparat). Þeir voru að gefa út mjög fína plötu sem heitir Monkeytown, tjékkið á henni. Lagið sem ég er nánast með á repeat þessa dagana er lag sem Thom York syngur, það heitir This og er magnað!

3. Tilbury – Picture

Þetta er dæmi um lag/plötu sem er nógu góð til þess að brjóta comboið (er ekki raftónlist). Ég er að vinna í því að skrifa umfjöllun um þessa og þið getið vonandi lesið um hana sem fyrst en í rosalega stuttu máli þá er platan rosa góð og þetta lag er best, en meira um það næst.

2. Squarepusher – Dark Steering

Squarepusher er fáránlega snjall og þessi nýja plata hans er ótrúlega góð. Ég hef ekki töluna á því hversu oft ég hef hlustað á þetta lag á síðustu vikum en það er rosalega oft.

1. Beastie Boys – Sabotage

Adam ‘MCA’ Yauch dó úr krabbameini um daginn. Þegar að ég las fréttina þá verð ég að viðurkenna ég fékk smá afall. Ég hef fylgst með Beastie Boys í langann tíma og þeir urðu þess valdandi framar öðrum hljómsveitum að ég fór virkilega að pæla í tónlist. Ég fór að grennslast fyrir um öll frábæru sömplin sem þeir notuðu. Þetta var fyrsta uppáhalds hljómsveitin mín og eina hljómsveitin sem ég get sagt að ég kunni nánast allan lagakataloginn ca. utan að. Eftir mörg ár á ég örugglega eftir að muna hvar ég var þegar að ég heyrði að hann væri dáinn (og Michael Jackson en það er vegna þess að ég var að undirbúa afmæli afa míns), eitthvað sem er ólíkt öðrum tónlistarmönnum. Ég er samt ekkert einn um þetta því að það eru fullt af minningargreinum um hann út um allt á vefnum en það er samt eitt sem virðist gleymast. MCA var nefnilega fantagóður bassaleikari og lagið sem ég hef hlustað hvað oftast á undanfarna daga er eitt af vinsælustu lögum Beastie Boys og skartar gríðarlega einkennandi bassalínu (sérstaklega introið) sem Adam Yauch samdi einmitt og spilaði.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Breiðskífan “Gilsbakki” með Skurken kemur út á Möller Records

19.9.2011 - Georg Atli

Þann 15. september síðastliðinn kom breiðskífa listamannsins Skurken út á hinu alíslenska útgáfufyrirtæki Möller Records. Platan, sem hefur hlotið nafnið Gilsbakki, mun koma út á geisladiskaformi, sem og stafrænu.

Gilsbakki” er þriðja sólóplata Skurken. Á nýju breiðskífunni eru 13 lög, öll samin af honum sjálfum fyrir utan eitt. Það lag er samið í samvinnu við Prince Valium (Þorsteinn Ólafsson). Innblástur breiðskífunnar er sóttur allt frá hallærislegu ostapoppi níunda áratugarins til yfirgnæfandi bor og bassa (e. Drill&bass) þess tíunda. Lögin eiga það þó sameiginleg að vera hljómfögur, fálætisleg og jafnvel ofur leikræn. Á plötunni má heyra sterk áhrif frá Warp listamönnum á borð við Squarepusher og Plaid ásamt ýmsum skírskotunun, t.d. í gamla tölvuleikjatónlist, dægurtónlist liðinna tíma og óheðbundar taktskiptingar jazztónlistarinnar. Allt blandast þetta svo saman í þéttan og melódískan raftónlistarhrærigraut sem enginn tónlistarunnandi ætti að verða svikinn af.

Diskinn verður hægt að hægt að kaupa á heimasíðu Möller Records: www.mollerrecords.com (bæði í niðurhals og CD formi), í 12 Tónum (Skólavörðustíg/Hörpu) og Lucky Records á Hverfisgötu. Fleiri sölustaðir bætast við á næstunni.

Nánar um tónlistarmanninn Skurken:

Jóhann Ómarsson (Skurken) er fæddur í Reykjavík árið 1977. Hann er einn virtasti raftónlistarmaður landsins og eftir hann liggja nokkur verk, m.a. platan Í Þágu Fallsins, sem hann gaf út undir formerkjum Sk/um (ásamt Þorsteini Konráði Ólafssyni) hjá bresku útgáfunni Resonant Records, og platan Das Plakat, sem kom út árið 2010 á belgíska útgáfufyrirtækinu VU-US. Hann er einn af stofnendum Möller Records – ásamt Árna Grétari – sem standa að útgáfu á íslenskri raftónlist og halda utan um tónleikaseríuna Heiladans. Jóhann hefur einnig getið sér gott orð fyrir hljóðblöndun og endurhljóðvinnslu á raftónlist ásamt því að gera tónlist fyrir auglýsingar og stuttmyndir.

Tags: , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off

Reykjavík Music Mess Sarpur – Georg Atli

14.4.2011 - Georg Atli

Á föstudaginn hefst glæný tónleikahátíð í höfuðborginni sem að heitir Reykjavík Music Mess… hátíðin sko, ekki höfuðborgin… hún heitir Reykjavík. En já semsagt, af því að okkur finnst það svo frábært að fá nýja tónleikahátíð þá höfum við eiginlega bara verið að fjalla um hana og gleymt allskonar föstum liðum, þar á meðal Sarpinum. Ég ætla hér með að ráða bót úr þessu og jafnframt að sameina RvkMusicMess kynningarnar okkar og Sarpinn.


Mugison – Lonely Mountain

Þetta er fyrsta platan hans Mugison og uppáhalds Muga platan mín. Hún kom mér geðveikt á óvart þegar að ég heyrði hana fyrst. Ég hafði verið að gramsa eitthvað í einum af rekkunum í 12 tónum þegar að afgreiðslumaðurinn spurði mig hvort að ég hefði einhvern tímann heyrt þetta (og sýndi mér Lonely Mountain), þetta væri geðveikt. Stundum þá ákveð ég bara að kaupa plötur af því að mér lýst vel á umbúðirnar, (þetta er eitthvað sem að hefur næstum aldrei klikkað, merkilegt hvað flottar umbúðir og gott innihald fara oft saman í tónlistarbransanum!) Þannig að ég keypti bara diskinn og fór beint heim að hlusta.

Fyrst ætti ég að nefna hvernig platan leit út, því að það var sérstaklega vel heppnað. Diskurinn kom í pappahulstri (eitthvað sem að ég er alltaf smá sökker fyrir) og ekki nóg með það þá voru umbúðirnar hand saumaðar (það eru rauðu línurnar á myndinni fyrir ofan). Þetta leit semsagt allt mjööög heimabruggslega út.

En strax frá fyrsta laginu, Sea Y (sem að fyrst hét CY) heyrði maður að hérna var eitthvað nýtt og skemmtilegt á ferðinni. Allskonar elektrónískir tónar og heimagerð (ó)hljóð blandast saman við gítar á alveg ótrúlegaflottan hátt og yfir allt saman flýtur svo hálf hvíslandi og mjúk röddin hans Mugison. Lagið byggist svo smámsaman upp og í miðju laginu er komið ansi flott grúv sem að brotnar svo við öskur í Muga og uppbygging lagsins breytist svo í seinnihlutanum. Hlustum:

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Platan heldur svo áfram með svipaðri uppskrift, sem er samt passlega fjölbreytt og breytileg, þangað til að kemur að uppáhaldslaginu mínu, I’m on Fire byrjar á sömu hljóðunum og tónunum, gítar, elektróník og svo píanó en undir niðri heyrir maður að það er eitthvað í vændum sem að er öðruvísi. Það er alveg frá byrjun lagsins einhver dökkur tónn sem að brýst svo fram með rymjandi röddu Mugison (sem að hingað til hafði verið hvíslandi og mjúk) sem að hljómar eins og launsonur meistarans Tom Waits (húrra fyrir ofurdramatíska tónlistarbloggaranum!). Hlustiði á þetta lag hátt! (sérstaklega frá 1:18 þegar að lagið fellur og hrekkur svo upp aftur, snilld)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Í þessu lagi kemur um það bil allt sem að ég fíla í tónlist. Tom Waits, Portishead og Squarepusher hafa öll verið miklir áhrifavaldar í tónlistaáhugamannalífi mínu og allt í einu heyrði ég lag sem hefði getað verið samið af þeim öllum í einu.

Eftir þennan hápunkt fer að hægjast aftur á plötunni og hún endar svo á sing-a-long laginu Poke a Pal, sem að er algjörlega frábært að heyra á tónleikum. Það er rólegt lag sem að byggist upp í kringum spilamennsku annars frábær tónlistarmanns, Pétur Ben (sem að er með tónleika á morgun).

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Nú í dag er Mugison komin nkkuð langt frá þeim pælingum sem að hann var í á þessari plötu. Í stað þess að vera einn á sviði að fikta í fartölvu með gítarinn sinn er komin heil hljómsveit á bak við hann og hann er líka farinn að smíða sín eigin hljóðfæri (facebook-linkur). Það breytir því þó ekki að tónlistin er frábær og ég bendi ykkur á að fara inn á heimasíðuna hans þar sem að þið getið náð ykkur í lagið Haglél, sem er ansi gott. Ég þori að lofa góðum tónleikum frá/með honum.

Mugison verður í Norrænahúsinu á sunnudaginn kl. 21:00

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Sarpurinn, Tónleikar | Comments Off

Topp 5 eitt nafn – Georg Atli

19.2.2010 - Georg Atli

Krissa fann uppá þessum lista og þegar hún var að kynna hugmyndina kom hún með tvö nöfn hugmyndinni sinni til stuðnings, þau voru Sting og Cher, mér leist illa á þennann lista…

…en svo fór ég að skoða safnið mitt og mundi þá (sem betur fer) eftir allskonar góðum listamönnum sem kalla sig bara einu nafni.


5. Santogold – Shove It

Ég er svosem ekkert brjálaður aðdáandi Santogold (sem heitir Santigold núna) og það eru margir aðrir sem ættu í rauninni frekar að vera hérna en mér finnst þetta lag lag samt alger snilld.


4. Ajax – Ruffige

Ajax samdi örugglega bestu raftónlistina sem hefur verið gerð á Íslandi og nostalgían sem kemur hjá mér þegar ég hlusta á þetta lag er rosaleg, það er næstum því að ég fari að leita að glosticks og tómu iðnaðarhúsi til að halda risa rave (Bauhaus einhver???). Annars þá var þetta lag á hinni svakalegu safnplötu Icerave sem Björgvin Halldórsson (meðal annara) sá víst um að setja saman og ég veit að þeir voru tveir í hljómsveitinni en Þórhallur var aðalmaðurinn og þetta er líka bara svo magnað lag að ég ætla að svindla og setja það hingað inn!

3. Ø/Mika Vainio – Kesamaa/Summertime

Mika Vainio er finnskur snillingur. Raftónlistargaur sem finnst gaman að gera tilraunir, þessi tegund af tónlist heitir víst microsound. Mér finnst það gott nafn.


2. Megas – Tvær Stjörnur

Uppáhalds Megasarlagið mitt í dag, það breytist reyndar á hverjum degi. Þessi maður er meistarinn!


1. Squarepusher – Port Rhombus

Handahófskennt val úr Squarepusher safninu. Tom Jenkinson er ekki bara einn snjallasti raftónlistargæjinn í dag, hann er líka ótrúlega fær bassaleikari og spilar oftast sjálfur allar bassalínurnar í lögunum sínum live.

p.s. sést það nokkuð að ég er að hlusta mikið á elektróník þessa daganna??

Tags: , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin