Fimmtudagsmeðmæli – Airwaves 2012
1.11.2012 - Georg Atli
Valkvíðinn eykst smám saman alla daga Airwaves þannig að á hverjum degi er aðeins erfiðara að ákveða hvað á að sjá og hverju maður verður að sleppa. Hérna kemur dagskrá dagsins eins og ég myndi vilja hafa hana. Byrjar snemma eða kannski frekar þaða ð listinn komi seint en ef þið flýtið ykkur náiði fyrsta bandi dagsins.
16:15 Hressó (off-venue) – Half Moon Run Það er gott að hafa það aðeins rólegra í byrjun, útlenskt
17:00 Eymundsson (off-venue) – Low Roar áfram rólegri en virkilega fallegri tónlist
18:00 Bar 11 (niðri) (off-venue) – Jesuslesfilles Hérna er svo komið að því að rokka, pönkað indí rokk á frönsku frá Kanada
19:00 Bíó Paradís (off-venue) – Stafrænn Hákon Ný e.p. plata á leiðinni, virðast halda áfram á poppaðri braut en halda samt góðu post-rokki. Virðast líka vera í góðu formi
20:00 Amsterdam – Oyama Íslensk nýstirni, hafa verið að vekja mikla athygli, spila drynjandi shogaze.
20:50 Iðnó – Cheek Mountain Thief Þetta eru víst líka útgáfu tónleikarnir. Breti sem fluttist á Húsavík til að semja tónlist.
21:20 Silfurberg – Jamie N Commons Annar breti. Þessi er með alveg svakalega rödd.
22:30 Gamli Gaukurinn – Sudden Weather Change Nýkonir frá Ameríkutúr og sendu nýlega frá sér frábæra plötu. Ætti ekki að klikka.
23:00 Þýski barinn – THEEsatisfaction Gæti verið snjallt að reyna að ná snemma inn á Shabazz Palaces og svo eru þær líka ansi góðar.
00:00 Þýski Barinn – Shabazz Palaces Áttu eina af plötum ársins í fyrra, hip hop með tvisti.
01:00 Hressó – Ranglehlods Danskur elektóníkus sem nýtir sér ýmsa áhrifavalda í tónlistinni sinni og ætti að enda kvöldið á hressandi hátt.
Tags: Airwaves 2012, Cheek Mountain Thief, Half Moon Run, Jesuslesfilles, Low Roar, Oyama, Rangleklods, Shabazz Palaces, Stafrænn Hákon, Sudden Weather Change, THEEsatisfaction
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Airwaves – Stafrænn hákon
12.10.2012 - Georg Atli
Stafrænn Hákon byrjaði sem eins manns verkefni Ólafs Josephssonar en er nú orðið að heilli hljómsveit og án efa ein af betri síð-rokk böndum íslands. Síðasta platan þeirra Sanitas kom út árið 2010 og það var þeirra 6. plata. Sú plata skar sig þó nokkuð úr fyrri verkum Hákons en Sanitas var léttari og í átt við eitthvað sem gæti hugsanlega kallast popp, útkoman var mjög góð og Sanitas var ein af betri plötum ársins, að margra mati.
Síðan þá hefur lítið heyrst frá þeim (lagahöfundur upptekinn við góðahluti með Náttfara) en nú í dag kom út nýtt lag og tilkynning um nýja plötu með hausti. Það þykja mér góðar fréttir.
Stafrænn Hákon verður að spila á Amsterdam kl. 00:10 á miðvikudagskvökdinu og í 3 skipti off-venue.
Tags: Airwaves 2012, Stafrænn Hákon
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off
Wondrous Wednesdays í boði Símans fram að Airwaves
2.10.2012 - Kristjana
Miðvikudagskvöld á Faktorý verða unaðsleg fram að Airwaves ársins. Einn styrktaraðila hátíðarinnar, Síminn, stendur fyrir fríum tónleikum vikulega fram að hátíð og dagskráin er ekki af verri endanum. Fyrsta kvöldið verður á morgun, 3. október, og munu þá stíga á stokk Snorri Helgason og Ásgeir Trausti
Næstu kvöld verður svo hægt að sjá:
10. október
Samaris
1860
Sóley
17. október
RetRoBot
Berndsen
Sykur
24. október
Stafrænn Hákon
Tilbury
Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og er, sem fyrr segir, frítt inn.
Tags: 1860, Airwaves, Airwaves 2012, Ásgeir Trausti, Berndsen, ReTroBot, Samaris, Síminn, Snorri Helgason, Sóley, Stafrænn Hákon, Sykur, Tilbury
Flokkað undir Airwaves, Kristjana | Comments Off
Nýtt lag og næstum ný hljómsveit
13.8.2012 - Georg Atli
Síðunni barst bréf! Ja eða sko tölvupóstur. Andri Ásgrímsson úr stórsveitunum Leaves og Náttfara er með í nýrri hljómsveit sem kallast Rif. Með honum í hljómsveitinni er liðsmenn úr Miri, Feldberg og Stafrænum Hákoni. Þið getið lesið meira um hljómsveitina hér að neðan og hlustað á lagið og ég bendi líka á að það er líka hægt að sækja lagið… ókeypis!
Hljómsveitin RIF hefur verið starfandi í u.þ.b. eitt ár og er nú að koma fram á sjónarsviðið með sitt fyrsta lag, Fagur dagur af væntanlegri plötu. Liðsmenn sveitarinnar koma úr ýmsum áttum. Verkefnið spratt upp úr hljómsveitinni Náttfara sem gaf út plötuna Töf síðastliðinn vetur en Andri og Haraldur eru meðlimir hennar auk þess að spila með Leaves, Feldberg og Stafrænum Hákoni. Ívar lemur húðir með hinni austfirsku Miri og er nýgenginn til liðs við RIF.
Sveitin hefur verið dugleg í stúdíóinu í vor og afrekstrinum má búast við á komandi vetri. Þetta er alþýðupopp-rokk, þjóðararfurinn er vel nýttur með textum eftir Stein Steinarr, Davíð Stefánsson í bland við frumsamda texta.
Tags: Feldberg, Miri, Náttfari, Rif, Stafrænn Hákon
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off
Topp 5 unglingsárin – Georg Atli
29.6.2012 - Georg Atli
Það verður bara að segjast að þegar að maður er unglingur þá er maður frekar asnalegur. Sorrý til allra (!?) unglingana sem lesa þetta, þetta er ekkert persónulegt og þið eruð örugglega ölla rosa næs en svona án djóks þá er þetta satt… þið fattið þetta seinna.
Ég var engin undantekning, alls ekki. Maður veit ekkert hvernig maður á að vera eða hvað maður á að gera eða neitt. EN það er eitt sem er sérstaklega frábært við unglinga og það er hversu margt þeir eru að uppgötva… svona tónlistarlega séð, og það var ótrúlega margt sem að ég fattaði að væri sniðugt og skemmtilegt að hlusta á á þessum tíma. Meðal annars þá byrjaði ég að hlusta á eftirtalda 5 listamenn og þeir höfðu allir gríðarlega mikil áhrif á hvernig og hvaða tónlist ég hlusta á í dag. Auðvitað hlustaði maður á allskonar ógeð en þetta er það besta af því sem að situr eftir. Ég ætla líka bara að hafa youtube myndbönd til heiðurs MTV því að þegar ég var unglingur þá spilaði MTV fullt af tónlist og var oft ágætis staður fyrir óharðnaða unglinga til að kynnast allskonar tónlist.
5. Radiohead
Það er náttúrulega frekar basic og kannski klisjukennt að nefna Radiohead en OK Computer er plata sem bara alveg fáránlega góður punktur til að byrja að pæla í tónlist. The Bends var fyrsta Radiohead platan mín en OK Computer er uppáhalds.
4. Megas
Einu sinni fannst mér Megas vera glataður kall og glataðari söngvari en sem betur fer eltist það af mér og smám saman þá fattaði ég hvað hann er frábær. Tvær stjörnur er eitt af allra bestu lögum Íslands fyrr og síðar.
3. Godspeed You Black Emperor!
Það verður að segjast að tónleikar þessara merku hljómsveitar höfðu töluverð áhrif á mig. Stafrænn Hákon hitaði upp. Hann gerði gott mót og spilaði á gítarinn sinn með skiptilykli, sem var mjög skemmtilegt og GYBE! rokkuðu meira og betur en nokkur önnur hljómsveit sem ég hafði séð. Endalaust epísk lög!
2. Beastie Boys
Ég þarf ekkert að skrifa hérna, það er alveg nóg að setja þetta lag… það útskýrir bara allt.
1. Tricky
Þegar að ég heyrði fyrst í Tricky þá var það í fyrsta skipti sem ég heyrði eitthvað sem var í alvöru alveg nýtt fyrir mér og mér fannst það frábært. Eftir þetta þá sökkti ég mér alveg í trip-hop og þaðan fór ég að hlusta á elektróník og hiphopp og rokk og soul og ég veit ekki hvað og hvað. Platan kom út 1995 og sprengdi algjörlega á mér hausinn.
Tricky – Hell Is Around The Corner by Tricky
Tags: Beastie Boys, Godspeed You Black Emperor, Radiohead, Stafrænn Hákon, Tricky Megas
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off
Jólajólalög
7.12.2011 - Georg Atli
Desember og allt sem honum fylgir er farið að íþyngja sumu fólki. Á meðal þeirra hluta sem geta farið í taugarnar á fólki svona í kringum jólin eru léleg/leiðinleg jólalög, það virðist nefnilega vera alveg ótrúlega mikið af þeim til og líka alveg ótrúlega mikið af fólki sem vill spila þau upp á nýtt og þá jafnvel í verri útgáfum. Sem betur fer eru samt ekki öll jólalög leiðinleg. Til dæmis þá gaf Stafrænn Hákon út heila jólaplötu í fyrr sem er afspyrnu skemmtileg og Morðingjarnir gerðu líka jólalag og m.a.s. var (fín) jólaábreiða á þeirri smáskífu.
Í ár koma líka jólalög og núna um daginn sendi Melchior frá sér jólalag sem er hægt að kaupa á hjá gogoyoko.
Það er svo orðin árlegur viðburður að jaðarútgáfan Bedroom Community sendi frá sér jólatengdann safndisk (kom líka út í fyrra, er það ekki þá orðin hefð?!). Lagalistinn í ár lítur svona út:
Puzzle Muteson — Will You Love Me Tomorrow
Nico Muhly — Once in Royal David’s City
Daníel Bjarnason — Spindrift / Montauk in February Remix
Valgeir Sigurðsson — Flesh and Wine and Firewood
Ben Frost — Stomp / Scanner Remix
Nico Muhly — The Holly and the Ivy
Ben Frost — The Gravity of Numbers
Daníel Bjarnason — Air to Breath / Montauk in February Remix
Sam Amidon — How Come That Blood / FM Belfast Remix
og að lokum þá sendi hljómsveitin Gang Related (sem á eina af topp plötum ársins) frá sér jólalag á dögunum og það er ókeypis að sækja á soundcloud síðunni þeirra, næs!
Gang Related – Jesú Jólasveinn
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Tags: Ben Frost, Daníel Bjarnason, Gang Related, Melchior, Morðingjarnir, Nico Muhly, Puzzle Muteson, Sam Amidon, Stafrænn Hákon, Valgeir Sigurðsson
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off
Topp 5 Airwaves tilhlökkun – Kristín Gróa
12.10.2011 - Kristín Gróa
Það er alveg ótrúlegt að það sé komið að Airwaves hátíðinni enn einu sinni. Mér telst svo til að ég sé búin að fara á hverju ári síðan 2002 sem gerir þetta að tíundu hátíðinni minni í röð og geri aðrir betur! Ef það kemur ár sem ég fer ekki á Airwaves (án þess að vera hreinlega erlendis eða á sjúkrahúsi eða eitthvað álíka) þá veit ég að ég er orðin gömul. Ég er spennt fyrir rosalega mörgu í þetta sinn og þó ég hafi ákveðið að fylla listann minn með frekar fyrirsjáanlegum erlendum tónlistarmönnum þá mun ég reyna að missa ekki af eftirfarandi íslenskum tónlistarmönnum:
Berndsen
Borko
El Camino
Elín Ey
Fist Fokkers
Gang Related
GusGus
Hljómsveitin Ég
Just Another Snake Cult
Kiriyama Family
Markús and the Diversion Sessions
Mugison
Náttfari
NOLO
Of Monsters And Men
Orphic Oxtra
Prins Póló
Sin Fang
Snorri Helgason
Sóley
Stafrænn Hákon
Vigri
Ef ég næ að sjá helminginn af þessu þá verð ég mjög kát. Það má svo auðvitað ekki gleyma því að það skemmtilegasta við Airwaves er allt það sem maður sér óvart og heillar mann samstundis. Ég veit að þetta er orðin pínu klisja en þetta er það sem gerir hátíðina svona skemmtilega. Á hverju ári lendi ég í því að hugsa viku fyrir hátíð “ó shit ég er ekki búin að kynna mér hverjir eru að spila” en svo skiptir það aldrei máli. Það er ekki hægt að undirbúa Airwaves… það er bara hægt að njóta.
Jæja without further ado þá eru þetta þær erlendu sveitir sem ég er spenntust fyrir að sjá!
5. Iceage
Ungir danskir strákar sem eru búnir að vera fastir í hæpmaskínunni síðustu mánuði og það er alveg verðskuldað. Platan þeirra New Brigade er algjört monster og þetta ættu að verða alveg brjálæðislegir tónleikar. Það liggur við að mig langi til að vera tvítugur strákur í eina kvöldstund svo ég geti misst mig yfir þeim eeeen ég verð væntanlega aftast með krosslagðar hendur að missa mig innan í mér.
4. John Grant
Ég sé fyrir mér að þetta verði mjög tilfinnaþrungnir og innilegir tónleikar þar sem John Grant er rosalega mikið þannig. Textarnir hans eru alveg ótrúlega góðir og hreinskilnir. Lagið I Wanna Go To Marz er líka virkilega gott.
John Grant – I Wanna Go To Marz
3. Glasser
Það hefur ekki farið mikið fyrir Glasser en Ring var ein af betri plötum síðasta árs og hún læddist pínu aftan að mér. Þetta eru tónleikar sem gætu verið hit eða miss en ég hallast frekar að hit, sérstaklega ef maður þekkir lögin.
2. tUnE-yArDs
W H O K I L L er ein hæpaðasta plata ársins svo ég er væntanlega ekki ein um það að ætla að sjá tUnE-yArDs. Hæpið finnst mér reyndar algjörlega verðskuldað því þetta er líklega ein besta og jafnframt óvenjulegasta plata ársins og þau live clip sem ég hef séð eru ansi mögnuð. Algjört must-see.
1. Beach House
Þetta er líklega stærsta nafnið á hátíðinni í ár ef maður er svona pínu indísnobbari (eins og ég). Ég er búin að vera mjög hrifin af þeim frá því þau gáfu út plötuna Beach House árið 2006 og þau verða bara betri með hverri plötu.
Tags: Airwaves, Airwaves 2011, Beach House, Berndsen, Borko, El Camino, Elín Ey, Fist Fokkers, Gang Related, Glasser, GusGus, Hljómsveitin Ég, Iceage, John Grant, Just Another Snake Cult, Kiriyama Family, Markús and the Diversion Sessions, Mugison, Náttfari, Nóló, of monsters and men, Orphic Oxtra, Prins Póló, Sin Fang, Snorri Helgason, Sóley, Stafrænn Hákon, tUnE-yArDs, Vigri
Flokkað undir Airwaves, Kristín Gróa, Listar, Tónleikar | Comments Off
Lockerbie – Ólgusjór
1.9.2011 - Georg Atli
Hljómsveitin Lockerbie gaf út sína fyrstu plötu (Ólgusjór) fyrir nokkrum mánuðum (nánar tiltekið 7. júli) í gegnum plötútgáfuna Record Records. Hljómsveitin vakið nokkra athygli m.a. vann hún sumarlagakeppni Rásar 2 og hefur túrað þó nokkuð (m.a. með For A Minor Reflection) og var valin hljómsveit vikunnar hjá þýska útvarpsþættinum Breitband (sem er á dagskrá hjá þýska ríkisútvarpinu) og komist á samning úti í Japan. Þetta finnst mér ansi gott fyrir hljómsveit sem að var stofnuð 2008!
Strax í fyrstu lögunum skilur maður alveg afhverju hljómsveitin vekur þessa athygli. Hljómsveitarmeðlimir eru hæfileikaríkir og það heyrist alveg að þeim finnst gaman að spila tónlist saman. Þeir spila tónlist sem fellur undir skilgreininguna post-rokk og fara í þann flokk með hljómsveitum eins og Stafrænn Hákon, Sigur Rós (strákarnir hafa greinilega hlustað töluvert á Sigur Rós) og For a Minor Reflection.
Það verður samt að segjast að Lockerbie er miklu aðgengilegri en hinar hljómsveitirnar. Yfri þungum trommutakti og drynjandi gítar heyrist í klukkuspili, píanó, sílófóni og ýmsum strengja- og blásturshljóðfærum og ofan á allt þetta syngur Þórður Páll í ljúfri næstum því falsettu. Þannig að það er óhætt að segja að hljóðheimurinn sé stór og íburðarmikill en samt sem áður er hann alltaf frekar léttur og poppaður. Ég verð líka að viðurkenna að stundum finnst mér léttleikinn verða aðeins of mikill (Reyklykt) og tónlistinni vanta smá spark í rassinn og fari í harðari tóna.
Lockerbie – Laut II
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Það er samt eiginlega því “að kenna” að stundum á plötunni heyrist smá af þessum harðari tónum og það glittir í hreina snilld frá þeim og þegar að Lockerbie fer á flug í þeim lögum, finnst mér þetta alveg geðveikt flott band. Þetta má til dæmis vel heyra í 3 lögum plötunnar Laut (sérstaklega seinni hlutinn), Laut II og Snjóljón sem standa upp úr að mínu mati. Einnig er lagið Esja sem er unnið úr ljóði Halldórs Laxness, Únglingurinn úr Skóginum afar vel heppnað.
Lockerbie – Esja
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
Í heildina er þetta alveg mjög vel heppnuð plata og ég mæli alveg með henni fyrir alla. Það er greinilega mikið lagt í hana og tónlistarfólkið sem kemur fram á henni er allt saman hæfileikaríkt en fyrir minn part vantar samt eitthvað smá, kannski bara herslumunin í það að þetta verði alveg “solid” plata. Það er samt einhvern veginn ekki sérstaklega stór galli, frekar svona áminning um það að það verði bara að tjékka á næstu plötu líka, af því að það gæti verið að hún verði alveg geðveik!
Platan Ólgusjór með Lockerbie (sem er fáanleg á gogoyoko og örugglega í flestum plötubúðum landsins) kemur út í gegnum Record Records.
Svona í lokin má líka alveg benda á það að Lockerbie er mjög skemmtilegt live band (þó að hljóðgæðin séu ekki frábær í þessu vídjói).
Tags: For a Minor Reflection, Lockerbie, Sigur Rós, Stafrænn Hákon
Flokkað undir Georg Atli, Plötuumfjallanir | Comments Off
Reykjavík Music Mess – Laugardagur
19.4.2011 - Georg Atli
Já nú er Reykjavík Music Mess búið og þá er alltaf gott að rifja aðeins upp hvað það var sem að maður sá, bendi sérstaklega á Twitterið okkar en við vorum að live twitta alla helgina! Fyrst ætla ég samt að segja að þessi hátíð var algjör snilld og þið sem að misstuð af henni misstuð af mjög miklu. Fullt að frábærum hljómsveitum skemmtilegur nýr staður (Norræna húsið), allskonar fullt fólk og millilaga grín og stór vodkaflaska og riiiisa stór diskókúla og svo voru hverjir tónleikar alltaf frekar stuttir þannig að maður fékk að að sjá mikið af tónlist á hverju kvöldi, það hefði alveg verið kjörið að hafa fullt af fólki.. Þetta var akkúrat svona hátíð sem að vantaði inn í fyrri hluta ársins. Meira svona takk!
Núna ætla ég að fara að tala um lagardagskvöldið því að hún Kristín Gróa er búin að skrifa um föstudaginn.
Ég ætla reyndar að byrja á því að segja aðeins og örstutt frá Stafrænum Hákoni á föstudeginum.
Föstudagur
Þegar að það var komið að því að Stafrænn Hákon byrjaði þa´verð ég að ég var orðinn ansi rokkþyrstur… áður en að hann byrjaði þá höfðu Nive Nielsen & the Deer Children (ekki gott live!) og Sóley (mjög gott live!) spilað sín sett og þrátt fyrir að maður geti sagt margt gott um þau atriði þá voru þau ansi róleg. Ég varð því ansi spenntur þegar að ég heyrði að Stafrænn myndi spila án söngvara því að það gat bara þýtt það að það væri meira rokk en það sem að áður var komið. Ég hafði rétt fyrir mér. Settið rann fram mjög svo áreynslu laust og hljómsveitin er greinilega nokkuð vön því að koma fram saman því að þeir voru mjög þéttir og öruggir í öllu sínu, ekta post-rokk sem byrjaði rólega en fór svo á fullt og náði hápunkti með laginu Val Kilmer (snilldar lag). Bendi svo á að Stafrænn Hákon (af sinni alþekktu góðmennsku) er búinn að setja alla tónleikana á netið og þið getið fundið þá með því að like-a hann/þá á facebook. Gott stöff, ég lofa.
en þá að laugardeginum!
Ég eyddi kvöldinu á NASA því að mér fannst það vera mest djúsí. Byrjaði á því að missa af Miri og ég er alveg ótrúlega súr yfir því. eins og allir (ættu að) vita þá gáfu þeir út eina af bestu plötum síðasta árs og ég var farinn að hlakka til að sjá þá á tónleikum).
Þegar að ég kom þá var Borko sem sagt að stilla sér upp og þess vegna tók ég gleði mína á ný. Ég hafði aldrei séð Borko spila og reyndar ekki einu sinni heyrt neitt almennilega í plötunni hans. Þessu ætla ég þó að ráða bót á hið snarasta, hann var ótrúlega góður á sviðinu. Septett Gylfa Blöndal fylgdi honum og þar eru brass leikarar og allt (alltaf verið pínu veikur fyrir góðu brassi). Þeir voru eiginlega óeðlilega góðir tónlistarmenn og allir náðu þeir vel saman með Borko og allt þetta kom mér skemmtilega á óvart. mér fannst það mjög gaman hvað hann Borko kynnti lögin sín vel, allir vissu alveg hvaða lag hann var að fara eða hafði verið að spila, það var þægilegt og fleiri mættu taka það upp… amk þeir sem að ég hef aldrei heyrt í. Hlustum á einn af hápunktunum af mjög góðu settinu:
Síðan var komið að Sin Fang. Ég hafði hlustað margoft á plöturnar hans og sú síðasta er þrælgóð. Alltaf þegar að ég fer á tónleika og ætla að fjalla eitthvað um þá reyni ég að vera smá pro og skrifa hjá mér athugasemdir sem að ég get svo stuðst við eftir á. Það eina sem að ég náði að skrifa við Sin Fang var:
“Hljómar betri en á plötunni sinni” og “sjitt, hvað Sin Fang er góður live!!!” Ég nefnilega var svo mikið að fíla tónleikana að ég gleymdi alveg að reyna að vera pro…
Það er samt alveg satt það sem að ég skrifaði og það súmmar eiginlega upp allt sem að ég hef að segja, einhvern veginn þá hljómar tónlistin hans bara miklu betur á sviði en af plötu (þó að þær séu rosa góðar) og þetta var alveg ótrúlega flott. Án efa einn af betri tónleikum ársins, þó þeir hafi verið stuttir.
Hipsterarnir í Lower Dens voru næst. Ég var ansi spenntur fyrir þeim, platan þeirra er rosalega góð…. rooosalega góð. Þar rokka þau feitt og það sem að ég hef séð af Jana Hunter þá er hún alveg svaka töff frontur. Tónleikarnir voru samt ekki jafn góðir og platan, engan veginn. Þau fóru út í það að vera bara með læti og þá ekkert rosalega góð læti. Hljóðið var reyndar eitthvað að stríða þeim og eitt lagið missti sig soldið í feedback og vesen en það er samt ekkert sérstaklega góð afsökun (finnst mér), svo leit ekkert þeirra út fyrir að nenna þessu og mér finsnt það alltaf vera mikill mínus þegar að hljómsveitir nenna ekki að spila fyrir aðdáendur. Tjékkiði samt á þessum Tiny Desk tónleikum sem þau geru fyrir NPR, þar eru þau miklu betri en það sem að ég sá:
Á eftir vonbrigðunum sem Lower Dens voru þá komu Kimono. Í Kimono er líklega flinkasti gítarleikari
Ísland, Gylfi Blöndal, og hann fór alveg á kostum. Það var mjög flott þegar að hann tók upp slegil og byrjaði annars vegar að plokka með skaftinu á honum og hins vegar að berja í gítarinn sinn til að mynda einhverskonar gítardrón, alvöru rokk. Það er líklega besta leiðin til þess að lísa tónlist Kimono manna, alvöru rokk. Það eru enginn óþarf gimmick hjá þeim eða neitt rugl þeir bara mæta og rokka feitt. Síðan settu þeir líka riiiisastóru diskókúluna í gang, það var næs.
Ég verð nú að viðurkenna að þegar þarna var komið þá var ég orðinn ansi þreyttur og var hálfpartinn á leiðinni heim en ég varð samt að sjá settið hjá Lazyblood sem að kom á eftir. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa því sem að ég sá þar öðruvísi en að það var geðveikt. Brjáluð tónlist sem að kom mér rosalega á óvart og brjálaður dans performans sem að kom mér líka á óvart. Gott stöff alla leið. Hérna fáiði smá sýnishorn:
Tags: Borko, Kimono, Lazyblood, Lower Dens, Reykjavík Music Mess, Sin Fang, Stafrænn Hákon
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Stafrænn Hákon verður á Rvk Music Mess
14.4.2011 - Georg Atli
Síðast þegar að ég sá Stafrænan Hákon spila á tónleikum þá hitaði hann upp fyrir hljómsveitina Godspeed You Black Emperor (2002?) á mögnuðum tónleikum í íslensku óperunni. Þar spilaði hann á m.a. á gítarinn sinn með skiptilykli… það var mjög skemmtilegt að sjá. Eftir það fór ég í Hljómalind og keypti mér plötuna hans Í Ástandi Rjúpunnar. Sú plata er ansi hæg og einkennist af draumkenndu gítar post-rokki og nokkur lögin ná ágætlega yfir 10 mín. á lengd, enginn útvarpshittari hér. Platan er engu að síður mjög góð og það er mikill heimabruggsstimpill á þessari plötu, meira að segja getur maður vel lesið merkinguna á Kodak CD-R disknum í gegnum límmiðann, en mér persónulega finnst það eiginlega bara skemmtilegra að hafa þetta svona ofur lo-fi heimabrugg.
Lag: Hvíti Hákarlinn
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.
En (svo að við snúum okkur að kjarna málsins) um næstu helgi ætlar Stafrænn Hákon að vera að spila á efnilegustu tónlistarhátíð landsins, Reykjavík Music Mess.
Í fyrra gaf hann út nýja plötu, hún heitir Sanitas og mér finnst hún vera besta platan hans til þessa (var mera að segja næstum inni á topp 5 ísl. plötur ársins í fyrra). Hún er mun poppaðri og hlustendavænni en fyrri plöturnar hans og það eru meira að segja lög hérna sem gætu vel talist vera smellir, samanber lagið Ratio 8-3 at least.
Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Á þessari plötu þá er Stafrænn Hákon kominn út í það að vera 7 manna hljómsveit og þykir frekar góð á sviði. Eins og áður þá er stutt í póst-rokkið en á Sanitas er samt mun léttara yfir öllu. Það er mun meira af söng á þessari plötu en fyrri verkum og það er sérstakt að þó að platan sé poppaðari þá er hljómurinn mun þyngri.
Stafrænn Hákon spilaði líka við á síðustu airwaves og útvarpsstöðin KEXP fékk þá til að taka fyrir sig nokkur lög.
Það má líka benda á það að Ólafur Josephsson, sem er maðurinn á bak við hljómsveitina, var líka að semja tónlistina fyrir leikritið “Þá skal ég muna þér kinnhestinn” (meira um það hér)
Stafrænn Hákon verður að spila á föstudag í Norræna Húsinu kl. 23:15 og samkvæmt áreiðanlegum heimildum (facebook) þá munu ný lög hljóma þar.
Tags: Stafrænn Hákon
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off








