Winter Sun kemur út á Gogoyoko

28.7.2011 - Georg Atli

Nýjasta útgáfa Kimi Records, platan Winter Sun með Snorra Helgasyni, mun fást í rafrænni forsölu á tónlistarveitunni www.gogoyoko.com frá og með deginum í dag, 28. júlí. Formlegur útgáfudagur plötunnar á geisladiski er svo 4. ágúst. Winter Sun er önnur breiðskífa Snorra Helgasonar undir eigin nafni, en áður hefur hann gefið út tvær breiðskífur með vinum sínum í Sprengjuhöllinni, þar á meðal hina geysivinsælu Tímarnir okkar. Winter Sun er tekin upp af Sindra Má Sigfússyni, hljóðblönduð af Snorra, Sindra og Bigga Sundlaugarverði og hljómjöfnuð af Alan Douches, en hann hefur meðal annars hljómjafnað plötur listamanna á borð við Fleetwood Mac, Animal Collective og Sufjan Stevens.

Snorri Helgason mun fagna þessum útgáfudögum, þeim fyrri með tónleikum á Innipúkanum laugardaginn 30. júlí kl. 22:00 og þeim seinni með útgáfutónleikum á Faktorý Bar fimmtudaginn 4. ágúst. Miðasala á báða viðburði er á www.midi.is

Tags: , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off

Topp 5 erlendar plötur 2010- Kristín Gróa

23.1.2011 - Kristín Gróa

Eins og vanalega þá panikkaði ég þegar kom að því að gera upp árið. Bæði er úr svo miklu að velja og svo veit ég líka að það er svo margt sem ég hlustaði aldrei á og missti af. Þannig er það víst alltaf. Ég get ekki sleppt því að minnast á tíu runner up plötur því þær eru of góðar sleppa þeim (svindlari!). Það kemur kannski ekki mikið á óvart á þessum lista en stundum er það bara þannig.

Í engri sérstakri röð:

The Roots – How I Got Over
Charlotte Gainsbourg – IRM
Sufjan Stevens – Age Of Adz
Erykah Badu – New Amerykah Part Two (Return Of The Ankh)
Robyn – Body Talk
Wavves – King Of The Beach
Beach House – Teen Dream
Gil Scott-Heron – I’m New Here
The Walkmen – Lisbon
Vampire Weekend – Contra

5. Surfer Blood – Astro Coast

Þessi plata er einfaldlega barmafull af góðum lögum. Hún byrjar á kicker með Floating Vibes, fer svo í Swim sem er hálfgerður surf-headbanger og svo þaðan yfir í Take It Easy sem er svona sólskinslag sem ég tengi einhverra hluta við Hawaii. Ég gæti þrætt mig í gegnum öll lögin en staðreyndin er sú að það er ekki eitt slakt lag á plötunni heldur er hún 40 mínútur af skemmtilegheitum.

Surfer Blood – Floating Vibes

4. The National – High Violet

Ó Matt Berninger, hve þú dáleiðir mig með rödd þinni og hefur gert frá því ég heyrði hana fyrst. Það eru yfirleitt engir augljósir megahittarar á plötum The National (þó Bloodbuzz Ohio komist ansi nálægt því) en þær eru algjörlega dáleiðandi. Ég get bara ekki gert upp við mig hvaða plata er í mestu uppáhaldi, Alligator, The Boxer eða High Violet. Það er ekki algengt að hljómsveitir bombi út þremur plötum í röð sem eru svo yfirgengilega góðar að maður getur ekki gert upp á milli þeirra svo ég bíð spennt eftir næstu plötu.

The National – Sorrow

3. The Arcade Fire – The Suburbs

Ég var rosalega sein til að byrja að hlusta á þessa plötu þó hún sæti þolinmóð í tónlistarsafninu og biði áheyrnar. Hún er pínu yfirþyrmandi svona klukkutíma löng með alveg 16 lög svo þar þarf smá þolinmæði til að hún nái að síast inn í heild. Það er hins vegar ekki hægt að neita því að hún er stútfull af alveg rosalega góðum lögum sem standa ein og sér en mynda samt sterka heild. Modern Man, Rococo, City Of Children, We Used To Wait og Sprawl II (Mountains Beyond Mountanis) standa upp úr hjá mér þessa stundina en staðreyndin sú að það er rosalega erfitt að velja á milli laganna. Þessi er á alveg á mörkunum að slá Funeral út en sú plata hafði þessi fyrstu plötu vá-sjokk-geðveikt áhrif með sér svo það er erfitt að bera þær saman.

The Arcade Fire – City With No Children

2. Kanye West – My Beautiful Dark Twisted Fantasy

Ég meika Kanye West auðvitað ekki fyrir fimm aura… eða ég hef ekki gert það fyrr en núna. Ég var fyrirfram alveg í mínus þegar ég byrjaði að hlusta á þessa plötu en ég get ekki neitað því að hún er alveg frábær. Skrítin, hreinskilin, catchy og stórfengleg. Þetta er algjör rússíbanareið. Strax í fyrsta lagi þegar ég heyrði stefið Can we get much higher?! þá var ég hooked. Ekki besta plata allra tíma og ekki alveg besta plata ársins en samt alveg djöfulli jaw dropping góð plata.

Kanye West – Gorgeous (feat. Kid Cudi)

1. Janelle Monáe – The ArchAndroid

Hvaðan kom þessi kona og þessi plata? Hún hafði allavega farið framhjá mér þangað til að ég fékk The ArchAndroid óvænt í hendurnar. Þetta er metnaðarfyllsta debut plata sem ég man eftir í svipinn. Hverslags crazy hæfileikarík manneskja hefur ferilinn á óflokkanlegri þemaplötu í þremur hlutum sem fjallar um ástir og örlög vélmennis og er með Saul Williams, Big Boi og Kevin Barnes á kantinum eins og ekkert sé eðlilegra? Það er vissulega hægt að nefna nokkur lög sem hápunkta (Tightrope, Cold War og Faster koma fyrst upp í hugann) en það er platan sjálf og það hversu heilsteypt hún er sem tryggir toppsætið.

Janelle Monáe – Come Alive (The War Of The Roses)

Tags: , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar, Óflokkað | Comments Off

Topp 5 lög ársins 2010 – Kristín Gróa

9.1.2011 - Kristín Gróa

Lög ársins? Úff! Ég verð að fá að gera tíu runners up. Í engri sérstakri röð:

Waka Flocka Flame – Hard In Da Paint
Fresh And Onlys – Waterfall
Gorillaz – On Melancholy Hill
Japandroids – Younger Us
Rihanna – Rude Boy
Vampire Weekend – White Sky
Prinspóló – Niðrá strönd
Gil Scott-Heron – New York Is Killing Me
Janelle Monáe – Cold War
Sufjan Stevens – I Walked

Að lokum, í mjög svo sérstakri röð:

5. Joanna Newsom – Good Intentions Paving Company

Þrátt fyrir að lagið sé sjö mínútur að lengd þá er ekki séns að fá leið á því. Það er gangur í því allan tímann og það er eiginlega ekki kórus en samt eiginlega næstum því. Ég féll ekki fyrir plötunni í heild sinni en þetta lag náði mér.

4. Sleigh Bells – Rill Rill

Rosalega catchy og krúttulegt. Þegar þetta lag byrjar að spilast á hljóðárásinni sem Treats er þá er það svona pínu break frá öllum hávaðanum.

3. Wild Nothing – Chinatown

Þetta lag er bara svo fallegt og hlýjar mér að innan og fær mig til að dilla mér og minnir mig á sól og drauma og ástina. Svo er stefið líka addictive.

2. The Arcade Fire – Sprawl II (Mountains Beyound Mountains)

Ég var rosalega lengi að koma mér í það að hlusta almennilega á The Suburbs . Ég fékk hana á sama tíma og ég fékk bunka af öðrum plötum og einhvernveginn varð hún útundan. Þar að auki er hún 16 lög og yfir klukkutími að lengd og athyglisgáfan mín er orðin svo skemmd að ég á erfitt með að melta svona mikið af tónlist í einu. Þegar ég loksins dembdi mér í þetta af alvöru og rakst á The Sprawl II (Mountains Beyound Mountains) þá var ég svo svekkt að hafa ekki hlustað fyrr. Ég missti úr alveg mánuð þar sem ég hefði getað verið að missa mig yfir þessu lagi!

1. Robyn – Dancing On My Own

Þetta er bara lag ársins í mínum huga og það kom aldrei neitt annað til greina. Það er til merkis um gæði lagsins að ég er búin að hlusta á það stanslaust síðan ég heyrði það fyrst en samt fæ ég ennþá pínu awesomeness kítl í magann þegar ég heyri það. Línan Stilettos on broken bottles, I’m spinning around in circles er ein besta lína í ástarsorgardansanthemi nokkurntíma!

Persónulega skiptir þetta lag mig líka máli því í byrjun maí fékk ég þá flugu í höfuðið að byrja að fara út að hlaupa þó ég gæti eiginlega ekki hlaupið á milli ljósastaura. Móð og másandi píndi ég mig áfram í margar vikur og var alltaf viss um að það myndi líða yfir mig sökum andnauðar. Ég gafst samt aldrei upp og núna hleyp ég eins og vindurinn! Alveg frá því í maí hefur Dancing On My Own verið á hlaupaplaylistanum svo í hvert einasta skipti sem ég heyri það þá hugsa ég um hvað ég er stolt af sjálfri mér fyrir að hafa aldrei gefist upp á því að vera móð með hlaupasting heldur að hafa alltaf þraukað og klárað. Go me! Lag ársins!

Tags: , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar, Óflokkað | Comments Off

Topp 5 jólagjafir fyrir tónlistarnördið – Kristín Gróa

19.12.2010 - Kristín Gróa

5. Life eftir Keith Richards

Hvað sem manni finnst um Rolling Stones eða Keith Richards þá held ég að þessi bók hljóti að vera merkileg lesning.

4. Ticket Stub Diary eftir Eric Epstein

Þetta er basically bara bók til að geyma tónleikamiða í. Þar sem ég á enn miðana frá nánast öllum major tónleikum sem ég hef farið á og geymi þá bara í brúnum bréfpoka þá er þetta eitthvað sem ég væri til í að eiga!

3. The Dark Stuff eftir Nick Kent

Í sumar vantaði mig bók til að taka með í sumarfríið svo ég rölti niður í Eymundsson þar sem ég rakst á þessa bók. Hún samanstendur af ritgerðum sem blaðamaðurinn Nick Kent hefur skrifað í gegnum árin, m.a. á meðan hann var blaðamaður hjá NME. Ég bjóst satt að segja ekki við miklu en þessi bók er gjörsamlega frábær. Kaflarnir eru vissulega misspennandi eftir því hvert viðfangsefnið er en flestir kaflarnir eru alveg magnaðir og hann er ekkert að fegra hlutina. Það er t.d. sérstaklega gaman að lesa kaflana um Brian Wilson, , Jerry Lee Lewis og Neil Young. Já og lýsingin á Sid Vicious og hvernig hann lét ráðast á bókarhöfundinn á mjög hrottafenginn hátt er líka alveg ótrúleg. Ég get bara ekki mælt nógu mikið með þessari bók!

2. Neil Young Archives Volume I (1963-1972)

Þetta hefði kannski átt að vera jólagjöf tónlistarnördsins í fyrra en þar sem þetta tónlistarnörd fékk þetta ekki í jólagjöf í fyrra þá fær það toppsætið! Þetta eru hin legendary archives sem Neil Young hefur oft talað um í gegnum árin en fólk var farið að halda að kæmi aldrei út. Pakkar 2-5 eru enn eftir. Jahú!

1. All expenses paid ferð fyrir tvo á tónleika Sufjan Stevens í óperuhúsinu í Sydney 28. janúar 2011

Maður má láta sig dreyma!

Tags: , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Plata mánaðarins

25.11.2010 - Kristín Gróa

Þá er komið að síðasta laginu af plötu nóvembermánaðar, hinni frábæru Age Of Adz með Sufjan Stevens. Núna heyrum við lagið þar sem kristni kórdrengurinn hrópar ítrekað I’m not fucking around!!!. Hressandi!

Sufjan Stevens – I Want To Be Well

Tags:
Flokkað undir Kristín Gróa, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata mánaðarins

17.11.2010 - Kristín Gróa

Plata mánaðarins er nýjasta afurð meistara Sufjan Stevens, hin ófyrirsjáanlega Age Of Adz. Burtséð frá öllu sem er óvenjulegt við þessa plötu þá má segja að það augljósasta sé það að laganöfnin eru rosalega stutt. Þessi stuttu laganöfn væru kannski ekki merkileg ef þetta væri ekki Sufjan plata en þetta er víst maðurinn sem náði öðru sæti á listanum mínum um lögin með lengstu nöfnin með lagið The Black Hawk War, or, How to Demolish an Entire Civilization and Still Feel Good About Yourself in the Morning, or, We Apologize for the Inconvenience but You’re Going to Have to Leave Now, or, ‘I Have Fought the Big Knives and Will Continue to Fight Them Until They Are Off Our Lands!’

Lag vikunnar er ekki með langan titil og er (umdeilanlega) Sufjanlegasta lag nýju plötunnar.

Sufjan Stevens – Vesuvius

Tags:
Flokkað undir Kristín Gróa, Plata mánaðarins | Comments Off

Plata mánaðarins

10.11.2010 - Kristín Gróa

Þið eruð vonandi ekki búin að gleyma hinni extra frábæru plötu mánaðarins, Age Of Adz með dreamboatnum Sufjan Stevens! Eins og ég minntist á í siðustu viku þá er þessi plata aðeins öðruvísi en það sem við var að búast frá honum en það þýðir samt ekki að hér sé ekki líka ýmislegt kunnuglegt. Flóknar útsetningar, lúðrar, kórar og mikilfenglegheit en líka rólegheit, einlægni og hreinskilni. Þó það séu elektrónísk hljóð, blótsyrði og jafnvel autotune (!) þá vantar aldrei einlægnina. Satt að segja finnst mér þetta jafnvel einlægasta platan hans hingað til, einfaldlega því textarnir virka svo persónulegir og það er ekki búið að tengja þá við eitthvað þema eða stað. Ég held svei mér þá að einhver hafi dömpað honum Sufjan og þetta sé afraksturinn. Lagið sem ég læt fylgja með þessari færslu er gott dæmi um þetta og er þar að auki uppáhalds þessa stundina.

Sufjan Stevens – I Walked

Tags:
Flokkað undir Kristín Gróa, Plata mánaðarins | 1 athugasemd »

Plata mánaðarins

1.11.2010 - Kristín Gróa

Það var eiginlega bara ein plata sem kom virkilega til greina þegar átti að velja toppfimm plötu nóvembermánaðar. Sufjan Stevens gaf út plötuna Age Of Adz um miðjan síðasta mánuð, heilum fimm árum eftir að hans síðasta plata í fullri lengd kom út, og við hér á toppfimm erum alveg skelfilega spennt fyrir henni.

Fyrsta lagið sem ég heyrði af plötunni var Too Much og ég varð fyrir svo miklum vonbrigðum að mig langaði til að grenja. Ég var svo spennt en svo var þetta bara eitthvað píp og surg og ekki það sem ég bjóst við af elsku Sufjan. Þegar ég fékk svo plötuna alla í hendur þá þurfti ég virkilega að hafa mig alla við til að byrja að hlusta því ég var viss um að það væri ekkert varið í hana. Ó hversu rangt ég hafði fyrir mér! Meira um það síðar en við skulum bara segja að lagið sem ég hataði við fyrstu hlustun er orðið eitt af uppáhaldslögum núsins. Loving it!

Sufjan Stevens – Too Much

Tags:
Flokkað undir Kristín Gróa, Plata mánaðarins | 1 athugasemd »

Topp 5 lög með löngum titlum – Kristín Gróa

25.6.2010 - Kristín Gróa

5. Grown Men Don’t Fall In The River, Just Like That

Þetta er af fyrstu plötu félaganna í Liars sem ber einmitt hinn langa og skemmtilega titil They Threw Us All in a Trench and Stuck a Monument on Top. Góð plata BTW.

Liars – Grown Men Don’t Fall In The River, Just Like That

4. Aqua Boogie (A Psychoalphadiscobetabioaquadoloop)

Funky nafn við funky lag, úje.

Parliament – Aqua Boogie (A Psychoalphadiscobetabioaquadoloop)

3. This Is How You Spell “HAHAHA We Destroyed The Hopes And Dreams Of A Generation Of Faux Romantics”

Þetta lag er af fyrstu plötu Los Campesinos! og er öfgahresst og öskrað eins og flest lögin á þeim ágæta grip. Mjög gott.

Los Campesinos – This Is How You Spell “HAHAHA We Destroyed The Hopes And Dreams Of A Generation Of Faux Romantics”

2. The Black Hawk War, or, How to Demolish an Entire Civilization and Still Feel Good About Yourself in the Morning, or, We Apologize for the Inconvenience but You’re Going to Have to Leave Now, or, ‘I Have Fought the Big Knives and Will Continue to Fight Them Until They Are Off Our Lands!’

Sufjan Stevens á mörg mjög löng og flókin og fyndin nöfn á lögum en þetta fær sæti á listanum fyrir að vera lengsta laganafnið í öllu tónlistarsafninu mínu. Lagið sjálft er meira svona interlude heldur en lag en vá þvílíkt nafn!

Sufjan Stevens – The Black Hawk War, or, How to Demolish an Entire Civilization and Still Feel Good About Yourself in the Morning, or, We Apologize for the Inconvenience but You’re Going to Have to Leave Now, or, ‘I Have Fought the Big Knives and Will Continue to Fight Them Until They Are Off Our Lands!’

1. You Think I Ain’t Worth A Dollar, But I Feel Like A Millionaire

Þó þetta sé ekki lengsta laganafnið á listanum þá fær það toppsætið því það er svo flott. It has a ring to it myndi maður segja á ensku. Þar að auki passar titillinn svo ótrúlega vel við lagið, það er rosalega mikið fokkjú í þessu.

Queens Of The Stone Age – You Think I Ain’t Worth A Dollar, But I Feel Like A Millionaire

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Topp 5 concept plötur – Kristín Gróa

14.2.2010 - Kristín Gróa


5. Pink Floyd – Dark Side Of The Moonn

Það er alveg klisja að setja þessa á concept plötu lista (nú eða The Wall) en það er ekki hægt að horfa framhjá því að geðveikin sem er viðfangsefni plötunnar er virkilega áþreifanleg og því hlýtur conceptið að vera að virka. Mér finnst persónulega erfitt að hlusta á þessa plötu því það er svo mikill drungi og hræðsla og bara erfitt.

Pink Floyd – On The Run


4. The Magnetic Fields – 69 Love Songs

Það er alveg pínu fáranlegt undertaking að ætla sér að skrifa 69 ástarlög og gefa þau öll út á einni þrefaldri plötu en Stephen Merritt púllaði það algjörlega. Þetta er fáránlega skrítin og skemmtileg plata sem tekur held ég á öllum flötum ástarinnar. Ein af upppáhalds

Fido, Your Leash Is Too Long


3. The Streets – A Grand Don’t Come For Free

Mér fannst Original Pirate Material platan aldrei neitt spes svo það var eiginlega alveg óvart sem ég fór að hlusta á þessa plötu. Plottið hérna er basically það að hann týnir þúsund pundum sem hann er alveg viss um að einhver hafi stolið af sér. Hann verður svo skotinn í stelpu, þau byrja saman, hún heldur framhjá honum, þau hætta saman og akkúrat þegar hann er að rísa upp úr ástarsorginni þá finnur hann þúsund pundin sín fyrir aftan sjónvarpið. Ég sver að í fyrsta skipti sem ég hlustaði á plötuna þá var ég virkilega spennt yfir því hvað myndi gerast næst.

The Streets – Dry Your Eyes


2. Neutral Milk Htel – In The Aeroplane Over The Sea

I know they buried her body with others
Her sister and mother and 500 families
And will she remember me 50 years later
I wished I could save her in some sort of time machine.

Þetta er auðvitað ein af þeim plötum sem er í allra mestu uppáhaldi hjá mér enda er hún alveg einstök. Það er kannski stretch að kalla þetta þemaplötu þar sem það er ekki beint saga í gangi en sagan af Önnu Frank er svona endurtekið þema í gegnum plötuna og Jeff Mangum notar hana til að segja sína eiginu sögu.

Neutral Milk Hotel – Communist Daughter


1. Sufjan Stevens – Illinoise

Ég gæti svo sem alveg eins valið Michigan en þar sem ég hreifst aðeins meira af þessari plötu þá hefur hún vinninginn. Sufjan hlýtur að hafa legið yfir sögu fylkisins og stúderað það mikið en þegar maður er að hlusta á plötuna er þemað meira eins og umgjörð heldur en aðalmálið.

Sufjan Stevens – The Seer’s Tower

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

June  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin