Tónleikasamantektin

30.6.2011 - Kristín Gróa

Tónleikar helgarinnar eru margir og merkilegir eins og vanalega! Ef við erum að missa af einhverju látið okkur þá endilega vita.

Fimmtudagur

Á Den Danske Kro og Prikinu fer fram Roskilde hátíð í tilefni tónlistarhátíðarinnar frábæru sem fram fer í Danmörku núna um helgina. Það er frítt inn en 1000 krónu armband tryggir bjór á 390 krónur á meðan á hátíðinni stendur. Sjá nánar hér. Dagskráin þetta kvöld er eftirfarandi:

19:00 – Blæti
19:45 – Dj Danni Deluxe
20:30 – Depublic
21:15 – Rottweiler
22:00 – Green Lights
23:00 – Dj Gay Latino

Á Bar 11 er kreppukvöld sem þýðir frítt inn og bjór og skot á 450 krónur. Í þetta sinn er það hljómsveitin Vicky sem kemur fram. Húsið opnar 21:00 og tónlistin hefst 22:00. Sjá nánar hér.

Á Rósenberg verða Sting/The Police tribute tónleikar með úrvalsliði tónlistarmanna. Það kostar 1500 krónur inn og tónleikarnir hefjast kl. 21:30. Sjá nánar hér.

Á Faktorý verður hljómsveitin Caterpillarmen með styrktartónleika en þeir eru víst að safna sér fyrir bíl! Fram koma The Dandelion Seeds, Muck, Plastic Gods og að sjálfsögðu Caterpillarmen. Það kostar 1000 krónur inn og tónleikarnir hefjast kl. 22:00. Sjá nánar hér.

Föstudagur

Á Den Danske Kro og Prikinu heldur Roskilde hátíðin áfram. Dagskráin þetta kvöld er eftirfarandi:

18:00 – Murrk
18:45 – Úlfur Úlfur
19:30 – Klysja
20:15 – Dj Kalli (Breakbeat.is)
21:00 – Samaris
21:45 – Forgotten Lores
22:30 – Leynihljómsveit
23:15 – Dj Kalli (Breakbeat.is)

Á Bar 11 heldur sumartónleikaröð Bar 11 og Tuborg áfram en í þetta sinn er það hljómsveitin Cliff Clavin sem kemur fram. Það er frítt inn og húsið opnar kl. 21:00. Sjá nánar hér.

Á Rósenberg halda Beggi Smári og MOOD tónleika. Sjá nánar hér.

Á Faktorý verður Svínarí #4 en þar koma fram Sykur, Captain Fufanu og Bypass. Það er frítt inn, húsið opnar kl. 22:00 en tónleikarnir hefjast kl. 23:00. Sjá nánar hér.

Á Sódóma verður hljómsveitin Angist með fjáröflunartónleika til styrktar EP útgáfu sinni sem er að bresta á. Einnig koma fram Chao, Bloodfeud, Bastard og Abominor. Húsið opnar kl. 22:00, tónleikarnir hefjast kl. 22:30 og það kostar þúsundkall inn. Sjá nánar hér.

Laugardagur

Á Den Danske Kro og Prikinu heldur Roskilde hátíðin áfram. Dagskráin þetta kvöld er eftirfarandi:

18:00 – Vintage Caravan
18:45 – Stjörnuryk
19:30 – El Camino
20:15 – Diddi Fel
21:00 – Vicky
21:45 – Dj Árni Kocoon
22:30 – Kiriyama Family

Á Rósenberg heldur Tríó Vadims Fyodorovs tónleika. Sjá nánar hér.

Á Cafe Amsterdam verður hljómsveitin We Made God með styrktartónleika en þeir munu spila á listahátíð í Ítalíu í júlí og þurfa á aðstoð að halda. Vicky kemur einnig fram á tónleikunum. Tónleikarnir hefjast um miðnætti og það kostar 500 krónur inn. Sjá nánar hér.

Sunnudagur

Á Den Danske Kro og Prikinu lýkur Roskilde hátíðinni. Dagskráin þetta kvöld er eftirfarandi:

19:00 – Ellen Kristjáns & Pétur Hallgríms
19:45 – Dúettinn Heima
20:30 – Árstíðir
21:15 – Búðabandið
22:00 – Andvari

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar, Óflokkað | Comments Off

Hljómsveitin Caterpillarmen safnar fyrir hljómsveitarútu

29.6.2011 - Georg Atli

Hljómsveitin Caterpillarmen heldur styrktartónleika á Faktorý fimmtudagskvöldið 30. júní. Hljómsveitin er að safna sér fyrir hljómsveitarútu til að auðvelda þeim lífið og allt rót fyrir tónleika.

Ásamt Caterpillarmen koma fram hljómsveitirnar Muck, The Dandelion Seeds og Plastic Gods.

Aðgangseyrir er 1000 kr.
Tónleikarnir hefjast kl. 22

Tags: , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off

Tónleikasamantekt

8.6.2011 - Georg Atli

Margir tónleikar á döfinni og allt það… hafiði samband ef við erum að gleyma einhverju eða bara ef ykkur langar til að hafa samband, það er alltaf gaman að fá aðdáendapóst. Facebook, Twitter, comment, tölvupóstur

Þetta verður unnið í einhverjum skorpum þannig að það er ágæt að tjékka á okkur reglulega ef þið viljið hafa allt á hreinu. og þó að það sé langt liðið á Miðvikudag, þá byrjum við á honum…

Miðvikudagur
Á Faktorý verða Berndsen og Forgotten Lores. Tónleikarnir byrja kl. 21:00 og það kostar 1000 kall inn

Á Rósenberg verður Solla Soulful með útgáfutónleika í tilefni þess að platan hennar Open a Window var að koma út, þeir byrja kl. 21:30 það kostar 1000 kr. inn og það er enginn posi á staðnum en aftur á móti verður platan seld þar.

Á NASA verða svo Steelheart að spila. Það kostar 3500 kr. inn og Dúndurfréttir, Atrum og Exizt hita upp. Húsið opnar kl. 19:00. Mér skilst að það sé uppselt í forsölu en einhverjir miðar séu seldir við hurð.

Fimmtudagur
Á Sódómu verða Andvari, Mukkaló og Vigri með tónleika. Það kostar einungis 500 kall inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00

Gogoyoko verður með Sumarpartý á Hressó. Partýið byrjar kl. 20:00, það er ókeypis inn og hljómsveitirnar Agent Fresco og Sudden Weather Change verða að spila.

Á Dillon verða hljómsveitirnar The Dandelion Seeds, No to Self og Moy.

Á Faktorý verða styrktartónleikar fyrir Útidúr (þau eru að fara til Þýskalands að túra). Nolo, Sóley og Jón Þór (úr Lada Sport og Dynamo Fog) ætla að spila með þeim. Það kostar 1000 kr. inn og húsið opnar kl. 21:00

Á Rósenberg verða Pétur Ben og Elín Ey að spila. Þar kostar 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja kl. 21:30

Í Þjóðleikhúskjallaranum verða útgáfutónleikar Emmsjé Gauta. Það verður fullt af öðru fólki þarna líka eins og sjá má hér. 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja kl. 21:30

Föstudagur
Þór Breiðfjörð verður að spila á Rósenberg ásamt hljómsveit. Tónleikarnir (afmælistónleikarnir hans) byrja kl. 22:00 og ég hreinlega veit ekkert hvort að það kostar inn…

Laugardagur
Á Faktorý verða plötusnúðarnir Joni (Slagsmålsklubben) og Viktor (My Empire) að spila. Það kostar 1500 kall in við hurðina og húsið opnar kl. 22:30

Á Sódóma verður sumargleði. Þar ætlar hljómsveitin Green Lights að koma saman aftur og Samaris verða þarna líka og svo hugsanlega fleirri (getið fylgst með hér)… Húsið opnar kl. 22:00 og það kostar 1000 kall inn.

Hljómsveitirnar Miri, Vigri og Bob verða á Faktorý, í tilefni þess að Miri er að fara að spila á NXNE. 1000 kr. inn og húsið opnar kl. 22:00

Á Faktorý verða plötusnúðarnir Karíus & Baktus (REYK VEEK) og Djezus (Boston/NY). Partýið þar byrjar kl. 23:00 og aftur veit ég ekki hvort að það kostar eitthvað inn, en ég býst við því.

Sunnudagur

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Tónleika samantekt!

9.2.2011 - Georg Atli

Það er kominn miðvikudagur og það þýðir að það sé komin tími á samantekt. Fullt að gerast en af því að við erum örugglega að missa af einhverju þá biðjum við ykkur að senda okkur endilega línu um þá tónleika sem að vantar í dagatalið/smantektina okkar, þið getið gert það í comment eða skrifa á facebook-veggin okkar eða jafnvel sent okkur póst: toppfimmafostudegi@gmail.com
Við erum líka að reyna að muna að linka á facebook eventa en stundum þá er nennan takmörkuð og þá getiði alltaf ýtt á rauðu dagsetningarnar á dagatalinu til að fá frekari upplýsingar.

Miðvikudagur
Elín Ey og Johnny Stronghands verða á Boston kl. 21:00 og það kostar ekkert inn.

svo er líka Classic quiz á Faktorý… kannksi ekki alveg tónleikar en samt skemmtilegt!

Fimmtudagur
Á Sódómu verða Jimi Hendrix Project með tribute tónleika. Þeir ætla að flytja lög af helstu plötum Hendrix þannig að það verður örugglega gott. 1000 kall inn og það er enginn posi þannig að það verður bara tekið við peningum. Byrjar. kl. 21:00

Rósenberg ætlar svo áð hýsa Lights on the Highway, þeir tónleikar byrja kl. 21:00 og þar kostar líka 1000 kall inn

Á Dillon verða hljómsveitin My brother is pale og tónlistarmaðurinn Markús að spila. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og að sjálfsögðu kostar ekkert inn.

Stórmenningartónleikar kvöldsins verða svo í Háskólabíó en þar ætlar sinfóníuhljómsveitin að flytja m.a. verk eftir Richard Strauss, sem að Stanley Kubrick gerði ódauðlegt í 2001: A Space Oddysey. Tónleikarnir byrja kl. 19:30

Föstudagur
Á Bakkus verða útgáfutónleikar The Dandelion Seeds. Tónleikarnir byrja kl. 21:00, það kostar ekkert inn og hljómsveitirnar Just Another Snake Cult og Hollow Veins verða líka að spila.

Á Sódómu verða XXX Rottweilerhundar og kostar skitinn þúsundkall inn.

Á Dillon munu hljómsveitirnar Bob, Caterpillarmen og Lady in the Radiator koma fram. Frítt inn og allir velkomnir.

Svo verða styrktartónleikar á Faktorý. Þeir verða til styrktar Péturs Kristjáns sem að slasaðist í Austurríki í janúar síðastliðnum. Húsið opnar kl. 22:00 og það kostar 1000 kr. inn (má örugglega borga meira ef að maður vill!) Maður fær mikið fyrir þann pening því að Retro Stefson, Who Knew og Of Monsters and Men ætla allar að sjá til þess að engum leiðist.

Laugardagur
Techno.is heldur upp á 6 ára afmælið sitt á Faktorý og það kvöld er einmitt líka árslistakvöld. Exos, Balrock (Plugg’d), A.T.L, Invert, Richard Cuellar, Danni Bigroom og Oculus ætla að sjá um stuðið, sem að byrjar kl. 00:00.

Á Sódómu verður svo Rockabilly kvöld Glymskrattans. Þar verða hljómsveitirnar The 59′s, Langi seli & Skuggarnir og Blues Willis verða að spila og líka Arnar Ingi (The Johnny Cash Kid) og Óli Dóri verður að DJ-ast.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin