Topp 5 eins smells undur – Erla Þóra
3.7.2009 - Erla Þóra
Hér er af nógu af taka! Hefjast þá leikar… með smá bíómyndaívafi, en alveg óvart!
5. Big Dee Irvin – Swingin on a Star
Svo catchy að þetta var bound to be a hit í gamla daga. Og enn þann daginn í dag festist viðlagið í hausnum á manni reglulega. Þetta lag var líka notað á ansi skemmtilegann hátt í Bruce Willis myndinni Hudson Hawk.
Kom út 1979 en maður er enn að heyra þetta reglulega. En The Knack? Maður heyrir nú ekkert annað frá þeim. Skemmtilega notað í Reality Bites.
THE one hit wonder. Kunna allir þetta lag og muna eftir krúttlegu stelpunni í býflugnabúningnum en fæstir muna eftir því að hafa heyrt eitthvað annað með Blind Melon.
2. The Contours – Do You Love Me
Þetta lag var eins smells undur á sjöunda áratugnum. Varð svo vinsælt aftur á níunda áratugnum eftir að lagið var notað í Dirty Dancing. Ég játa mig seka og viðurkenni að ég hreinlega get ekki setið kyrr þegar ég heyri þetta lag. Tjútt!
Hvað varð um Lisu Loeb? Hver veit! Þetta lag dáði ég og dýrkaði 1990-og-eitthvað. Lag úr Reality Bites aftur, klikkar ekki.
(Honorable mentions verða að fá fylgja: Snow – Informer (so bad it’s good), Crash Test Dummies – Mmm Mmm Mmm Mmm (fáránlega catchy humm), Sugar Hill Gang – Rapper’s Delight (hip di hip), The Buggles – Video Killed the Radio Star)
Tags: Big Dee Irvin, Blind Melon, Crash Test Dummies, Lisa Loeb, Snow, Sugar Hill Gang, The Buggles, The Contours, The Knack
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | 2 athugasemdir »
Topp 5 eins smells undur – Kristín Gróa
3.7.2009 - Kristín Gróa
Það er voðalega erfitt að skilgreina nákvæmlega hvað er eins smells undur og hvað ekki. Einhver sem átti aðeins einn risasmell hefur kannski starfað sem tónlistarmaður með ágætis árangri fyrir og eftir smellinn og nýtur mikilla vinsælda í t.d. indieheiminum þó hinn almenni útvarpshlustandi kannist bara við risasmellinn. Það er erfitt að vita hvar á að draga línuna…
Hvað segir það um mann ef eini hittarinn er cover lag? Ég veit það ekki en hann gerir þetta vel.

4. Cornershop – Brimful Of Asha
Þetta fær sæti á lista í tilefni sólarinnar!

3. Edwyn Collins – A Girl Like You
Svo svalt.
Söngvarinn dó úr dópi og þá var allt búið. Kannski hefðu þeir aldrei orðið að neinu númeri hvort sem er? Ég og Krissa vorum einmitt að rifja upp um daginn að No Rain er ultimate aldurstestið. Ef þú getur sungið með textanum umhugsunarlaust þá ertu á réttum aldri en annars ertu of ungur eða of gamall. Það þarf ekki að spyrja að því að við erum á réttum aldri
Þetta er hið eina sanna eins smells undur… þvílíkur slagari.
Tags: Blind Melon, Cornershop, Edwyn Collins, Gary Jules, The Knack
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 1 athugasemd »
Topp 5 lög til að dansa við – Kristín Gróa
27.10.2008 - Kristín Gróa
Betra er seint en aldrei…
5. Beck – Gamma Ray
Þetta er strax orðið eitt af uppáhalds Beck lögunum mínum og þá er nú mikið sagt. Þetta er svona frekar rólegur dans en mjög grúví.
4. Jamiroquai – Canned Heat
Ég enduruppgötvaði þetta lag í síðustu viku og mundi þá að ég fer alltaf ósjálfrátt að diskódansa þegar ég heyri það. Pínu vandræðalegt í vinnunni en hei…
3. Familjen – Det Snurrar I Min Skalle
Þar sem ég hlusta aldrei á útvarpið þá fór þetta lag alveg fram hjá mér þangað til í síðustu viku (hei maður getur ekki alltaf verið með á nótunum hehemm) en svo núna get ég ekki hætt að hlusta á það. Það var sko líka aldeilis dansað við það um helgina!
2. The Knack – My Sharona
Reality Bites dansinn blívar alltaf. Verst að ég held það fatti enginn nema KVE hvað ég er að gera (af því þau eru að gera það líka!) og allir aðrir halda að ég hafi misst vitið.
1. David Bowie – Rebel Rebel
Hér á ég við single útgáfuna því hún er miklu hressari og dansvænni en albúm útgáfan. Það er bara eitthvað við þetta lag sem kveikir algjörlega í mér. Þegar gítarriffið spilast í fyrsta sinn þá fer ég ósjálfrátt að kippast til og dansa kjánalega með öllum líkamanum. Ég elska þetta lag svo mikið!
Tags: Beck, David Bowie, Familjen, Jamiroquai, The Knack
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 1 athugasemd »
Topp 5 upphafstrommur – Erla Þóra
5.10.2007 - Erla Þóra
5. Man Man – Black Mission Goggles
Kooky og skemmtilegt. Já og by the by… svei mér þá ef þessi klippa er ekki bara frá tónleikunum sem við fórum á út í NY í jan.
4. Sweet – Ballroom Blitz
Hallærislegt og skemmtilegt.
3. Led Zeppelin – D’yer Maker
Ohh þetta lag er í svo miklu uppáhaldi hjá mér. Fæ alveg fiðring þegar ég heyri byrjunina.
2. Iggy Pop – Lust for Life
Hversu fyndið var það á Glastonbury þegar hann bauð öllum tónleikagestunum upp á svið og svo vildi enginn fara niður?? Hahahahaha
En já flott byrjun.
1. The Knack – My Sharona
Tengi þetta lag mjög sterklega við hana systir mína og auðvitað við Reality Bites. Dansi dansi lag
Tags: Iggy Pop, Led Zeppelin, Man Man, Sweet, The Knack
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | 5 athugasemdir »
Topp 5 upphafstrommur – Krissa
5.10.2007 - Kristjana
5. Dungen – Panda
Ég hef nú ekkert hlustað mikið á Dungen. Ég man að e-r skrifaði Ta Det Lungt fyrir mig rétt eftir að hann kom út og gaf mér og ég hlustaði rosa mikið á eitt eða tvö lög en féll aldrei neitt sérstaklega fyrir pötunni í heild sinni. Hinsvegar verður það ekki tekið af Gustav Ejstes að trommurnar í byrjun Panda eru æði!
4. The Knack – My Sharona
Alltaf þegar ég heyri þetta langar mig að taka dansinn úr Reality Bites…ég er alltaf að reyna að plata fólk í svoleiðis vitleysu í 10-11 á nóttunni en það er aldrei neinn til í það. Ég skil ekkert afhverju…kannski vantar bara eitt stk Ethan Hawke til að koma hlutunum af stað…?
3. Wolf Parade – You Are a Runner And I Am My Father’s Son
Þetta lag þetta lag þessi hljómsveit! Um leið og maður heyrir barið í trommurnar byrjar maður að taka eftir. Svo fer maður svona að boppa hausnum pínu með. Svo fer að verða erfitt að halda sér í sætinu. Einfalt, áhrifaríkt og flott. Fullkomin byrjun á einu besta lagi frábærrar plötu!
2. Battles – Race In
Fyrst var Atlas í brjáluðu uppáhaldi hjá mér og ég hlustaði eiginlega bara á það á repeat. Þegar ég fór svo að hlusta á plötuna í gegn fattaði ég þetta lag. Það er bara ekki fræðilegur möguleiki að sitja kyrr þegar þetta byrjar og trommurnar eru svo mikið build up að einhverju að maður bíður í eftirvæntingu eftir hvað kemur næst. Yndi!
1.The Beatles – Tomorrow Never Knows
Þetta er bara uppáhalds uppáhalds uppáhalds! Það er svo fáranlega flott þegar trommurnar byrja! Jebus minn!
Honourable mention vikunnar fær svo Sigur Rós fyrir bæði Sæglópur og Hoppípolla! Fannst ég eiginlega ekki geta sett þau á listann því í báðum lögum koma trommurnar ekki inn fyrr en í miðju lagi og ég veit ekki alveg með að kalla það ‘upphafstrommur’. En þegar þær koma, ‘byrjunin á trommununum’…úff!!!
Tags: Battles, Dungen, Sigur Rós, the beatles, The Knack, Wolf Parade
Flokkað undir Kristjana, Listar | 4 athugasemdir »
Topp 5 byrjunar trommutaktar – Kristín Gróa
5.10.2007 - Kristín Gróa
5. Bow Wow Wow – C30 C60 C90 Go!
Nýbylgjusveitin Bow Wow Wow með hina barnungu Annabella Lwin í fararbroddi voru mikið fyrir trumbuslátt og hér er hann í aðalhlutverki. Mér hefur alltaf fundist þetta skondna lag um að taka tónlist upp á kassettu alveg ferlega hressandi.
It used to break my heart when I went in your shop
And you said my records were out of stock
So I don’t buy records in your shop
Now I tape them all, ’cause I’m Top of the Pops!
4. Wolf Parade – You Are A Runner And I Am My Father’s Son
Það er ekki það að trommurnar séu eitthvað sérlega flóknar heldur eru þær svo ákveðnar og halda laginu gjörsamlega uppi. Þetta er fyrsta lagið á plötunni og virkar á mig sem svona “HEI VIÐ ERUM BYRJAÐIR AÐ SPILA!” og þá er ekkert annað að gera en að hlusta. Að byrja fyrstu plötuna sína svona er bara alveg ótrúlega svalt múv.
3. Animal Collective – The Purple Bottle
Eitt besta lagið á hinni stórgóðu Feels byrjar á hressum og óvenjulegum trommuslætti sem brýst svo auðvitað út í allsherjar rugl og skemmtilegheit.
Ég held að fátt segi meira “komum okkur í stuðið og dönsum eins og kjánar!” heldur en upphafstakturinn í þessu lagi. Bara það að allir þekkja lagið samstundis um leið og trommurnar byrja er næg sönnun þess að þetta lag á erindi á listann.
1. Bauhaus – Bela Lugosi’s Dead
Fyrsta smáskífa og án efa þekktasta lag bresku gothrokkaranna í Bauhaus byrjar á svalasta og mest eery takti sem ég hef heyrt. Fyrstu tvær mínúturnar er mest lítið í gangi nema þessi taktur og að mínu mati setur það algjörlega tóninn fyrir þetta drungalega lag.
Tags: Animal Collective, Annabella Lwin, Bauhaus, Bow Wow Wow, The Knack, Wolf Parade
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off
Topp 5 bíólög – Erla Þóra
27.7.2007 - Erla Þóra
Sökum netleysis, ofurbústaðsíveru og almenns kjánaskaps verður listi vikunnar örlítið í styttri kantinum…obb obb
5. Clint Mansell – Requiem for a Dream theme
4. Status Quo – You Never Can Tell (Teenage Wedding) úr Pulp Fiction
3. The Knack – My Sharona úr Reality Bites
2. The The – This is the Day úr Empire Records
1. Elton John – Tiny Dancer úr Almost Famous
Tags: Almost Famous, Clint Mansell, Elton John, Empire Records, Pulp Fiction, Reality Bites, Status Quo, The Knack, The The
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | Comments Off
Topp 5 bíólög – Krissa
27.7.2007 - Kristjana
Vááá hvað þetta er erfitt val! Öll tónlist úr öllum myndum ever?!? Jimminy! öll lögin úr Nightmare Before Christmas, Hip to be Square úr American Psycho, hálft soundtrackið úr Trainspotting, Amélie myndin eins og hún leggur sig, Northern Sky úr Serendipity, If You Want Blood og Money úr Empire Records, Dry the Rain úr High Fidelity, Bang Bang úr Kill Bill, helmingur 80s soundtracksins úr Donnie Darko, Tiny Dancer í Almost Famous, Bohemian Rhapsody í Wayne’s World, Stuck in the Middle úr Reservoir Dogs, Blower’s Daughter í Closer, …allt frábær lög sem gera góð atriði enn betri…og á maður svo bara að geta valið?!?
En, uppi standa 5 unbelievably girly movies, 5 atriði og 5 lög sem ég get horft&hlustað á út í hið óendanlega…
5. The The – This is the Day úr Empire Records
“All the money in the world
Couldn’t bring back those days.
You pull back the curtains, and the sun burns into your eyes,
You watch a plane flying across a clear blue sky.”
Lokaatriðið í Empire Records er bara búið til fyrir 14 ára stelpur…eins og ég var þegar ég sá myndina fyrst. Vinna í ógó pógó skemmtilegri plötubúð með tveimur alltof sætum strákum, skemmtilegri tónlist og berjast gegn því að vondi vondi eigandinn selji einhverri vondri keðju búðina? Enda svo á því að halda stórt party, vinna vonda kallinn og fagna uppi á þaki með bestu vinkonunnin og sætu strákunum…dansandi við The The? Gerist bara ekkert betra!
4. Bob Dylan – Most of the Time
“I can follow the path, I can read the signs,
Stay right with it, when the road unwinds,
I can handle whatever I stumble upon,
I don’t even notice she’s gone,
Most of the time.”
Eitt af uppáhalds Dylan lögunum mínum. Atriðið væri bara ekki nálægt því að vera jafn flott ef eitthvað annað lag hljómaði undir! Og alltaf þegar ég heyri Most of the Time minnir það mig á Rob í rigningunni…búhú
3. The Knack – My Sharona úr Reality Bites
“Never gonna stop, give it up, such a dirty mind.
Always get it up for the touch of the younger kind.
My my my my woo…M M M My Sharona…”
Æjj svooo gaman! Í hvert einasta skipti sem ég heyri þetta lag minnir það mig á 7-11 atriðið í Reality Bites þar sem Winona Ryder og Janeane Garofalo biðja afgreiðslugaurinn að hækka í útvarpinu og dansa svo á fullu meðan Ethan Hawke horfir afsökunaraugum á hann. Mann langar alltaf mest að vera með, dansa kjánalega dansinn og smoocha svo Ethan Hawke í rest myndarinnar múaha
2. Donovan – Colours úr Rules of Attraction
“Yellow is the color of my true love’s hair
In the morning, when we rise “
Eitt af uppáhalds uppáhalds uppáhalds atriðunum mínum! Tvískipt meðan þau eru að vakna, labba í skólann, inn ganginn…og rennur svo saman þegar þau hittast. Augnaráðið…pínu smirk-ið á ‘Dawson’ og þegar hún tekur sólgleraugun af nefinu á honum. Og atriðið er enn betra því Colours smellpassar undir!
1. The Shins – New Slang úr Garden State
“Dawn breaks like a bull through the hall,
Never should’ve called.
But my head’s to the wall and I’m lonely.”
Ekki nóg með að The Shins séu búnir að vera í ofboðslegu uppáhaldi hjá mér síðan Oh Inverted World kom út og að New Slang sé eitt af uppáhalds lögunum mínum í heiminum heldur er Garden State ein af uppáhalds uppáhalds myndunum mínum! Ef þessu er svo blandað saman við brilliant atriði með Natalie Portman og Zach Braff fæst frábær blanda…þar sem myndin og lagið njóta sín bæði 100%
“You gotta hear this one song, it’ll change your life I swear.” ahhh yeees!
Tags: Almost Famous, Amélie, American Psycho, Bob Dylan, Closer, Donnie Darko, Donovan, Empire Records, Garden State, High Fidelity, Kill Bill, Nightmare Before Christmas, Reality Bites, Reservoir Dogs, Rules of Attraction, Serendipity, The Knack, The Shins, The The, Trainspotting, Wayne's World
Flokkað undir Kristjana, Listar | 1 athugasemd »



