Topp 5 Airwaves tilhlökkun *Gestalisti* – Dr. Gunni

7.10.2010 - Georg Atli

Annar gestalistamaðurinn í dag er enginn annar en Dr. Gunni, en hann er eins og alþjóð veit mikill tónlistarspekingur og hefur gefið út spil og stjórnað útvarpsþáttum og sjónvarpsþáttum og skrifað í blöðin og bækur og ég veit ekki hvað og hvað. Hann er líka einn af vinælli bloggurum landsins og það er alveg þess virði að kíkja á síðuna hans. Ekki nóg með það þá er goðsagnakennda hljómsveitin hans S/H Draumur eitt af aðalnúmerum Airwaveshátíðarinnir í ár. Það er líka vert að minnast á það að sú hljómsveit ætlar að endurútgefa plötuna sína Goð og það ætti að vera hægt að kaupa snilldina í stafrænni forsölu hér! (það er m.a.s. hægt að hlusta frítt!)

OG svo á hann líka afmæli í dag, þannig að topp 5 óskar Dr. Gunna til hamingju með afmælið!

S/H Draumur er að spila á NASA á fimmtudag kl. 23:00

Dr. Gunni – 5 atriði á Airwaves 2010

Sko, Airwaves er algjör frumskógur og alveg frábærlega mikið af fínu stöffi þarna. Ég tók þá ákvörðun að velja bara erlent efni, en það er auðvitað geðveikt mikið af spennandi íslensku stöffi líka. Ég mæli með Airwaves fitubrennslu mixinu 2010 (http://this.is/drgunni/mp3/Airwaves-fitubrennsla-2010.mp3), þar sem þú heyrir 30 erlend Airwaves bönd og getur brennt af þér fitu í leiðinni. En ok, skellum oss í þetta:

5. Toro Y Moi / Neon Indian
Hér eru tvö atriði sem merkimiðanum “Chillwave” hefur verið slengt á. Hljómsveitin Beach House er líklega þekktasta bandið í þessari deild. Músík er einhvers staðar mitt á milli Beach Boys, House tónlistar og My Bloody Valentine – nokkuð ferskt og svalandi stöff. Toro Y Moi er aðallega einn gaur, Chazwick Bundick, og fyrsta platan hans Causers of This kom út á þessu ári og er nokkuð fín. Neon Indian er í svipuðum fílingi, en það er bara meira popp í gangi hjá honum og meira bít. Það verður gaman að sjá hvernig þetta stöff er læf. Toro Y Moi er á Venue á föstudaginn kl. 23.30, Neon Indian er líka á Venue, en á laugardaginn kl. 23.30.

Toro Y Moi – Blessa á YouTube

4. Tunng
Bresk “þjóðlaga-rafræna”. Flott popp umvafið flottum rafstælum, án þess að það sé keyrt í kaf. Flottar raddir og gott stöff. Tékkaðu á síðustu tveimur plötunum með þeim, sú frá 2007, Good Arrows er tilraunakenndari. Svo held ég að þetta sé helvíti fínt læf. Tunng spila kl. 21.30 á laugardaginn í Listasafninu.

3. Diamond Rings
Demantahringirnir er nú bara einn Kanadamaður sem heitir John O’Regan. Hann er nýbyrjaður, fyrsta platan hans heitir Special Affections og er að koma út. Þetta er dáldið gott og hressandi indie popp, melódískt og röddin í gaurnum minnir mig á David Bowie, en samt bara smá. Ég vona að hann mæti með band en verði ekki bara einn eins og kleina með kassagítar, því það er mikið lagt í útsetningar í þessari tónlist og það væri gaman að sjá þetta á góðu blasti. Diamond Rings er á Venue á laugardaginn kl. 23.30.

2. Crocodiles / The Vandelles
Tvö góð bandarísk, sem koma úr sama bekk og Singapore Sling, þ.e. það má finna fyrstu plötu Jesus & The Mary Chain í plötuskápunum þeirra, plús Velvet Underground, The Sonics, The Stooges, Suicide o.s.frv. Það er þó alltaf einhver framþróun og hvorugt bandið – ekki frekar en Singapore Sling – að stæla hrátt. Crocodiles halla sér ítrekað í átt að taktföstu krautrokki og eru með góðan sens fyrir melódískri uppbyggingu. Tvær góðar plötur eru komnar út með þeim, sú seinni, Sleep Forever, var tekin upp af Simian Mobile Disco manninum James Ford. Minna bözz er í kringum The Vandelles, en þetta er þétt band engu að síður og fullt af góðu hrámeti á nýjustu plötunni þeirra, Del Black Aloha. Crocodiles spila á Sódómu á laugardaginn kl. 22.50. The Vandelles spila í Iðnó á föstudaginn kl. 20.
 

1. Timber Timbre
Ef ég mætti bara sjá eitt band á Airwaves myndi ég sjá þetta. Bandið er eins manns, aðalkarlinn heitir Taylor Kirk og er Kanadamaður, en hann er væntanlega með eitthvað lið með sér þegar hann spilar læf. Hann hefur víst gert 3 plötur, en ég hef bara heyrt þá nýjustu, samnefnda bandinu, sem er ógeðslega góð. Taylor er með þýða og flotta rödd og tónlistin er svona einhvers staðar á milli Julee Cruise (David Lynch dívan) og örlí Nick Cave með dassi af Mazzy Star og jafnvel furðumenninu Jandek – en samt er útkoman algjörlega sérstök. Ég heyrði lagið Magic Arrow í einum Breaking Bad þætti og vissi ekkert hvað þetta var. Þetta var bara svo flott að ég linnti ekki látum fyrr en ég var búinn að finna úr úr þessu á netinu. Timber Timbre spila kl. 19.30 á laugardaginn í Listasafninu.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

June  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin