Alþjóðlegi plötubúðardagurinn!!
20.4.2012 - Georg Atli
Á morgun (laugardaginn 21. apríl) er alþjóðlegi plötubúðardagurinn (Record Store day) í útlöndum er mikið um dýrðir og þar eru allskonar sérstakar útgáfur af plötum og lögum sem koma út í tilefni dagsins auk þess sem að margar plötubúðir halda tónleika af ýmsum stærðum.
Til allrar hamingju þá hefur boðskapurinn borist til Íslands á síðustu árum og á hverju ári verður dagskráin viðameiri og betri. Núna í ár stefnir t.d. í sérstaklega skemmtilega dagskrá í plötubúðinni Kongó . Þar verða Snorri Helgason og The Vintage Caravan með tónleika og þar verður líka vínylplötumarkaður. Dagskráin hljómar svona:
Dagskrá alþjóðlega plötubúðadagsins í Kongó:
13:00 Opnun
16:00 The Vintage Caravan
17:00 Snorri Helgason
18:00 Bjórtími á Forrréttabarnum
Kongó er til húsa á Mýrargötu (beint á móti Slippnum)
Fáum eitt skemmtilegt vídjó með Snorra og fyrir neðan það kemur svo fréttatikynningin sem við fengum í tilefni dagsins. Topp 5 hvetur alla til að skella sér í bæinn á Plötubúðardeginum og næla sér í góðann íslenskan vínyl, því hann hljómar bara einhvern veginn miklu betur!
- Tónleikar með Snorra Helga og The Vintage Caravan -
Alþjóðlegi plötubúðardagurinn verður haldin hátíðlegur laugardaginn 21. apríl í verslun Kongó (Mýrargötu, Liborius húsinu). En þá fagna hljómplötubúðir um allan heim tilvist hljómplötunnar með allskyns tónleikum, útgáfum og viðburðum.
Við ætlum að halda uppá þennan alþjóðlega merkisdag með því að halda tónleika og setja upp vínylplötumarkað. Tónlistarmaðurinn Snorri Helgason og hljómsveitin The Vintage Caravan munu koma fram í verslun Kongó og skemmta gestum með fallegum lögum. Eins hefur Kongó sankað að sér allskyns músík síðustu vikurnar og býður til sölu frábært úrval af vínylplötum og geisladiskum á góðu verði. Þar verður að finna glænýjar útgáfur á borð við nýútkomna vinýlútgáfu LEGEND á plötunni FEARLESS sem og eldri titla, bæði íslenska og erlenda.
Tags: Snorri Helgason, The Vintage Caravan
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off
Faktorý heldur upp á eins árs afmæli sitt!
13.7.2011 - Georg Atli
Tónleika- og skemmtistaðurinn Faktorý er orðinn eins árs gamall og fagnar því með látum þessa vikuna.
Það var helgina 15. – 18. júlí 2010 sem að hljómsveitirnar Hjálmar, Agent Fresco, Mammút, Feldberg, Benni Hemm Hemm og Retro Stefson stigu á svið og vígðu tónleikastaðinn Faktorý.
Nú þegar tónleikastaðurinn er orðinn eins árs gamall ber að fagna því með mikilli veislu og hefur Faktorý ákveðið að bjóða vinum sínum í fría tónleikaveislu alla næstu helgi.
Svona er dagskrá vikunnar:
Miðvikudagur:
Classic Pub Quiz kl. 20:00 – Ekkert þáttökugjald – fullt af vinningum!
Fimmtudag:
Dj Danni Deluxe kl. 22
Föstudagur:
Agent Fresco
For a Minor Reflection
Lockerbie
Úlfur Úlfur
Hefst kl. 23 – Frítt inn!
+ DJ KGB á neðri hæð frá miðnætti
Laugardagur:
Brain Police
The Vintage Caravan
Spector
Hefst kl. 23 – Frítt inn!
+ Dj Anna Rakel og Halli á neðri hæð frá miðnætti
Sunnudagur:
Sunnudagsjazzinn verður á sínum stað
Hefst kl. 21:30 – Frítt inn!
Tags: Agent Fresco, Benni Hemm Hemm, Brain Police, Feldberg, For a Minor Reflection, Hjálmar, Lockerbie, Mammút, Retro Stefson, Spector, The Vintage Caravan, Úlfur úlfur
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Tónleikasamantekt *Uppfært*
22.6.2011 - Georg Atli
Fullt að gerast um helgina… hafiði samband ef við erum að gleyma einhverju eða bara ef ykkur langar til að hafa samband, það er alltaf gaman að fá aðdáendapóst. Facebook, Twitter, comment, tölvupóstur
Miðvikudagur
Á Sódómu ætla Endless Dark að hita upp fyrir evróputúrinn sinn. Upphitun er í höndum Haffa Haff (!?) og Andvara. Húsið opnar kl. 21:00 og það kostar 1000 kall inn
Á Rósenberg verður blústvenna, en þar ætla Blússveit Þollýar og Strákarnir hans Sævars að spila. Tónleikarnir byrja kl. 21:00 og það kostar 1000 kall inn
Fimmtudagur
Gogoyoko heldur áfram með Wireless tónleikaröðina sína. Að þessu sinni eru það Bloodgroup sem að taka sína slagara og spila þá órafmagnaða. Tónleikarnir byrja kl. 21:00 í Hvítu Perlunni, miðinn kostar 1500 og fæst í forsölu í 12 tónum
Á Rósenberg verður Suðurríkjatryllingur. Brother Grass og Illgresi ætla að spila þar frá kl. 21:00 og það kostar 1500 kall inn. Enginn posi.
Á Sódómu verða Ferlegheit, Eldberg og Vintage Caravan með tónleika. Þeir byrja stundvíslega kl. 22:00 og það kostar 1000 kr. inn
Á Bar 11 verður Kreppukvöld og um 22:30 ætla Ikea Satan að trylla fólkið þar. Ókeypis inn.
Það verða svo tónleikar í Kaffistofunni kl 17:00 -19:00. Þar ætla Prinspóló og Sóley að spila.
Föstudagur
Á Bar 11 verður Grillveisla X 977 og Bar 11. Þar verður eflaust einhver tónlist og fínerí.
Á Sódómu verður hljómsveitin Orion með Master of Puppets tribute tónleika. En það eru þeir Björn Þór Jóhannsson, Kristján B. Heiðarsson, Magni Ásgeirsson, Magnús Halldór Pálsson og Rúnar Þór Þórarinsson sem skipa hljómsveitina Orion. Húsið opnar 20:00 og það kostar 2000 kr inn.
Á Sódómu verður annar Suðurríkjatryllingur og þar fylgja sömu upplýsingar og á föstudegi nema það að tónleikarnir byrja kl. 22:00
Á Faktorý verða hljómsveitirnar Vigri, Nóra og Hellvar að spila. Tónleikarnir eru “algerlega að tilefnislausu” og byrja kl. 22:00 og það kostar bara 500 kall inn.
Laugardagur
Á Sódómu verða Askur Yggrasils, Dimma og Sólstafir með tónleika. Húsið opnar 22:30 og það kostar 1000 kr. inn
Sunnudagur
Á Faktorý verður ennþá stærri SunnuJazz. Byrjar kl 21:30 og það er frítt inn eins og alltaf.
Tags: Andvari, Askur Yggrasils, Bloodgroup, Blússveit Þollýar, Dimma, Eldberg, Endless Dark, Ferlegheit, Haffi Haff, Hellvar, Ikea Satan, Nóra, Orion, Sólstafir, Strákarnir hans Sævars, The Vintage Caravan, Vigri
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Tónleikasamantekt
4.5.2011 - Georg Atli
Fullt af tónleikum eins og venjulega og við ætlum að taka þá saman og setja í eina færslu ykkur til yndisauka. Ef það er eitthvað sem að við gleymum/vitum ekki af endilega látiði okkur vita með því að senda okkur smá línu, t.d. hér, hér eða jafnvel í pósti, toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com
Miðvikudagur
Á Rósenberg verða Steini Eggerts og Óperuídýfurnar að syngja um lífið. Byrjar kl. 21:00 og miðinnm kostar 1500 kr.
Fimmtudagur
Í Tjarnarbíói munu Bjartmar og Bergrisarnir fagna plötunni Skrýtin veröld og góðu ári með tónleikum. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 2500 krónur inn. Miðasala á midi.is.
Á Rósenberg verður Rokkabillýband Reykjavíkur með sína árlegu vortónleika. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1800 krónur inn. Miðasala á midi.is. Sjá nánar hér.
Á Dillon verður mikið af tónlist en þar koma fram The Assasin Of A Beautiful Brunette, Postarctica og The Wicked Strangers. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það er frítt inn. Nánari upplýsingar hér.
Á Norðurpólnum verða þriðju tónleikarnir í tónleikaröðinni ‘Rafmagnslaust á Norðurpólnum’ og í þetta sinn eru það Svavar Knútur og Hljómsveitin Ég sem koma fram. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21:00 og það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á Hressó verður Valdimar með tónleika sem eru hluti af tónleikaröð Gogoyoko. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og er frítt inn á meðan húsrúm leyfir. Sjá nánar hér.
Á Faktorý verður rótarkvöld með Atla Kanilsnúð. Sjá nánar hér.
Á Boston verður franski tónlistarmaðurinn Michael Wookey að spila frá kl. 21:00.
Á Prikinu verður mánaðarlegt breakbeat.is kvöld en þar koma fram Maggi B, Kalli og Skeng. Hefst klukkan 21:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.
Föstudagur
Á Dillon koma fram hljómsveitirnar Gang Related, Ofvitarnir og No To Self. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.
Á Faktorý verður Svínarí #2 og þar verða hljómsveitirnar Who Knew, Hellvar og The Hydrophobic Starfish. Húsið opnar kl. 22:00, tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.
Á Sódóma verður bandaríska hljómsveitin White Cowbell Oklahoma með tónleika. Einnig koma fram The Vintage Caravan og Texas Muffin. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á BAR11 verður Wildcat rockabilly tryllingur með El Camino, 59′ers, Haffa Haff, Daníel Ágúst og Krumma. Frítt inn. Sjá nánar hér.
Laugardagur
Á Rósenberg verða tónleikar með Láru Rúnars og Lay Low. Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á efri hæðinni á Faktorý verða hljómsveitirnar Valdimar og Æla með tónleika. Tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og það kostar 1000 krónur inn. Sjá nánar hér. Á neðri hæðinni verður DJ Margeir og það kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Sunnudagur
Á Rósenberg verður Thor Kristinsson með tónleika, þeir byrja kl. 21:00 og það kostar 1500 kr. inn
Á Faktorý verður SunnuJazzinn á sínum stað
Tags: 59'ers, Bjartmar og Bergrisarnir, Daníel Ágúst, El Camino, Gang Related, Haffi Haff, Hellvar, Hljómsveitin Ég, Kalli, Krummi, Lára Rúnars, Lay Low, Maggi B, No To Self, Ofvitarnir, Postartica, Rokkabillýband Reykjavíkur, Skeng, Svavar Knútur, Texas Muffin, The Assassin of a Beautiful Brunette, The Hydrophobic Starfish, The Vintage Caravan, The Wicked Strangers, Valdimar, White Cowbell Oklahoma, Who Knew, Æla
Flokkað undir Georg Atli, Kristín Gróa, Tónleikar | 2 athugasemdir »
Tónleikar vikunnar
7.4.2011 - Kristín Gróa
Það er brjálað að gera í tónleikunum þessa helgi og þá sérstaklega í kvöld. Endilega látið okkur vita ef þið vitið af einhverju sem við erum að missa af!
Fimmtudagur
Á Norðurpólnum verða rafmagnslausir tónleikar með hljómsveitinni Valdimar og Láru Rúnars. Húsið opnar kl. 20 en tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21:00. Það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á Bakkus verða útgáfutónleikar Fist Fokkers en þeir gáfu út EP plötuna Emilio Estavez á dögunum. Muck og White Boys With Attitude koma líka fram. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það er frítt inn.
Eins og við minntumst á í gær þá verða Amiina og Borko á Faktorý í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 og það kostar þúsundkall inn. Sjá nánar hér.
Á Sódómu verða Urmull og The Vintage Caravan og hefjast tónleikarnir kl. 22:00. Sjá nánar hér.
Á Dillon stíga No To Self og Ganon á stokk um tíuleytið. Kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Á Spot í Kópavogi eru styrktartónleikar ME félags Íslands en þar munu blús band Marel og Andrea Gylfadóttir flytja blús. Það kostar 2000 krónur inn. Sjá nánar hér.
Föstudagur
Á Faktorý heldur reggísveitin Hjálmar tónleika sem hefjast kl. 23:00. Það kostar 1500 krónur inn. Sjá nánar hér.
Á Dillon verður rokkbomba en þar koma fram Otto Katz Orchestra, Saktmóðigur og Trust The Lies. Hefst kl. 22:00 og kostar ekkert inn. Sjá nánar hér.
Laugardagur
Á Faktorý verður kanilkvöld #2. Sjá nánar hér.
Á Sódómu snýr Glymskrattinn aftur og verður mikið rockabilly fjör. Fram koma The 59′s, The Cash Kid og El Camino. Húsið opnar kl. 22:00 og það kostar þúsundkall inn. Sjá nánar hér.
Á Dillon verða öll helstu lög Jimi Hendrix spiluð en þar munu The Jimi Hendrix Project láta ljós sitt skína. Tónleikarnir hefjast kl. 22:30 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.
Sunnudagur
Á Faktorý verður SunnuJazz en þar verður spilaður dúnmjúkur djass. Hefst kl. 21:30 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.
Tags: Amiina, Borko, El Camino, Fist, Fist Fokkers, Ganon, Hjálmar, Lára Rúnars, MUCK, No To Self, Otto Katz Orchestra, Saktmóðigur, The 59's, The Cash Kid, The Jimi Hendrix Project, The Vintage Caravan, Trust The Lies, Urmull, Valdimar, White Boys With Attitude
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off
Tónleikar vikunnar
31.3.2011 - Kristín Gróa
Tónleikasamantektin kemur fullseint fyrir fimmtudagskvöldið en þeir sem eru snöggir ættu að geta náð þessu.
Fimmtudagur
Á Faktorý halda feðginin Lára og Rúnar sameiginlega tónleika. Tónleikarnir hefjast 22:00 og það kostar þúsund krónur inn. Nánari upplýsingar hér.
Á neðri hæðinni á Faktorý verður Nate Dogg tribute kvöld, hefst klukkan 22:00 og það er frítt inn. Nánari upplýsingar hér.
Á Sódóma verður nýbylgju sýbylgja þar sem fram koma , Hellvar, Baku Baku og Hljómsveitin Ég. Hefst kl. 22:00 og það kostar skitinn 500 kall inn. Sjá nánar hér.
Á Dillon koma Gutlarar og fram og hefst fjörið kl. 22:00. Sjá nánar hér.
Föstudagur
Á Faktorý verður svínarí! Frí tónleikaveisla með Agent Fresco, Reason To Believe og The Vintage Caravan. Tónleikarnir hefjast kl. 23:00 og það er tilboð á barnum. Sjá nánar hér.
Á Sódóma verða Stóns með Rolling Stones tribute. Miðinn kostar 1500 krónur. Nánar hér.9
Á Dillon spila Exizt, Storyteller og Moy. Sjá nánar hér.
Laugardagur
Á Sódóma spilar bandaríska metalhljómsveitin Today Is The Day og það kostar 2000 krónur inn. Nánari upplýsingar hér.
Á Dillon verður brjálaður blús en þar kemur J.Ó. Bluespower fram. Sjá nánar hér.
Á er heldur betur stórviðburður en það er sjálfur Ghostface Killah sem heldur tónleika. Miðinn kostar 3900 krónur og nánari upplýsingar er að finna á nasa.is.
Sunnudagur
Á Faktorý verður dúnmjúkt djasskvöld sem hefst kl. 21:30 og það er frítt inn. Sjá nánar hér.
Eins og áður þá gerum við ekki ráð fyrir að þetta sé tæmandi listi svo þið megið endilega láta okkur vita ef þið vitið af einhverju fleiru.
Tags: Agent Fresco, Baku Baku, Exizt, Ghostface Killah, Gutlarar, Hellvar, Hljómsveitin Ég, J.Ó. Bluespower, Lára Rúnarsdóttir, Loji, Markús, Moy, Nate Dogg, Reason to Believe, Rolling Stones, Rúnar Þórisson, Stóns, Storyteller, The Vintage Caravan, Today is the Day
Flokkað undir Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off
Tónleikar vikunnar!
9.3.2011 - Kristín Gróa
Tónleikasamantektin verður uppfærð betur í kvöld en af því það er ýmislegt að gerast í kvöld þá ætlum við að byrja á því að henda inn upplýsingum um það… hitt kemur síðar! Búið að fylla flest allt inn en það er líklegt að það bætist eitthvað við. Látiði okkur vita ef okkur vantar eitthvað (með þessu venjulegu leiðum facebook, comment eða toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com) og deiliði endilega gleðinni!
Miðvikudagur
Á Faktorý verður tvennt í gangi í einu en eins og við minntumst á í síðustu viku þá verða nemendur á hugvísindasviði Háskóla Íslands með dagskrá á Faktorý alla miðviku daga í mars. Í þetta sinn verður kvöldið tileinkað erlendum tungumálum og verða ýmis tónlistaratriði. Sjá nánar hér.
Á Faktorý verður einnig hið gríðarlega vinsæla og skemmtilega classic pub quiz sem fer fram annað hvort miðvikudagskvöld. Keppnin samanstendur af almennum-, krossa og myndaspurningum ásamt hljóðdæmum og fullt af bjór í verðlaun. Topp fimm getur kvittað upp á skemmtilegheit þessa pub quiz! Sjá nánar hér.
Á Sódómu ætlar hljómsveitin Morning After Youth að halda styrktartónleika til að hjálpa til við fjármögnun fyrstu plötu sinnar. Það kostar þúsundkall inn og nánari upplýsingar má finna hér.
Fimmtudagur
Hin stórgóða Brother Grass ætla (loksins) að spila á Café Haiti kl. 21:15 og það kostar 1000 kr. inn
Á Sódómu verður hljómsveitin PP með tónleika til að votta einni bestu hljómsveit (Purrkur Pillnikk) allra tíma virðingu sína. Húsið opnar kl. 21 og það kostar líka 1000 kr. inn þar.
Svo verða aðrir og allt annars konar “tribute” tónleikar í Tjarnarbíó en þar verða David Bowie tribute tónleikar. Miðar fást á miði.is og nánari upplýsingar fást í dagatalinu okkar.
“Tribute” (er ekki eitthvað gott íslenskt orð fyrir þetta?!) viðrist ætla að verða þema kvöldsins því að á Faktorý verður hljómsveitin Amused að spila Muse plötuna Origin of Symmetry. Tónleikarnir byrja stundvíslega kl. 23:00 og klassíski 1000 kallinn veitir aðgang.
Á Dillon verða hljómsveitirnar Thingtak, Dorian Gray og KAbear með tónleika frá kl. 22:00, frítt inn.
Föstudagur
Föstudagskvöldið ætla Otto Katz Orchestra, Finnegan og Storyteller að vera á Dillon frá kl. 22:00, það er ekki mikið meira hér en það er amk hægt að skrá mætingu…
Á Sódómu hefst síðan tónleikaveislan Mars Attack!! Þar ætla margar af bestu rokkhljómsveitum landsins að spila, nánar um það allt hér. Facebook linkurinn er svo hér. Bendi samt á að það kostar bara 1500 krónur á bæði kvöldin!
Laugardagur
Seinna kvöld Mars Attack!!. Vísa bara í fyrri færslu. Örugglega gott stöff.
Á Dillon verða The Vintage Caravan, Gang Related og Baku Baku. Byrjar kl. 22:00 og það er frítt inn eins og oftast á Dillon
Á Faktorý verða síðan tónleikar með Momentum, Ask the Slave og Caterpillarmen. Þeir byrja kl. 23:00 og það kostar 1000 kr. inn.
Sunnudagur
Sunnudagsjazzinn mun óma á Faktorý eins og venjulega.
Tags: AMused, Ask the Slave, Baku Baku, Brother Grass, Caterpillarmen, Dorian Gray, Finnegan, Gang Related, KAbear, Momentum, Morning After Youth, Otto Katz Orchestra, PP, Storyteller, The Vintage Caravan, Thingtak
Flokkað undir Georg Atli, Kristín Gróa, Tónleikar | Comments Off
Tónleikar vikunnar *laugardagurinn uppfærður*
3.11.2010 - Georg Atli
Það er allt brjálað að gera í þessari tónleikaviku og þess vegna verður tónleika rándöppið þrískipt!!
Fyrst ber að nefna tónleikaröðina hjá Ting:Direkt, en þar eru aldeilis fínir tónleikar á döfinni.
Á Fimmtudeginum verður danska hljómsveitin Slaraffenland, færeyingarnir í Budam og íslenska stórsveitin Orphic Oxtra í Tjarnarbíó. Showið byrjar kl. 21:00, en þess má geta að balkansveitin Orphic Oxtra voru að gefa út sína fyrstu plötu og það sem ég hef heyrt lofar mjög góðu… en meira um það síðar.
Föstudagurinn stendur fyrir partý en þá verða norsararnir í Datarock og íslensku böndin Retro Stefson og Berndsen. Þetta verður á NASA og það opnar kl. 22:00 og stuðið verður væntanlega geðsjúkt því að öll þessi bönd kunna rosalega vel að spila á tónleikum!

Á laugardeginum verða Hjaltalín og Scola Cantorum að sýna listir sínar ásamt Wildbirds & Peacedrums, sem eru sænsk, að spila í Fríkirkjunni kl. 20:00. Miðar á alla hátíðina er hægt að kaupa á miði.is (3900 kr) og síðast þegar ég vissi var ekki uppselt og það er líka hægt að kaupa miða á stök kvöld (1500 á fyrri tvo tónleikana og 2900 kr fyrir miða á Hjaltalín og co.).
Hjá Hemma og Valda er svo allt morandi í gúmmelaði, þar verður haldin “Off-Venue Aftershock” helgi. Nánast non-stop tónleikar alla helgina og það kostar ekkert inn!!! Dagskráin er hér:
Föstudagur 5 nóv*
19:00 Jóhann Kristinsson
20:00 Danny Malone (US)
21:00 Blæti
22:00 Júníus Meyvant
23:00 Orphic Oxtra
00:00 Bróðir Svartúlfs
01:00 Vicky
*Laugardagur 6 nóv*
18:00 Heima
19:00 Ylja
20:00 TBA
21:00 Mukkaló
22:00 Andvari
23:00 7 Berg
00:00 Maxe and the crackers
01:00 Futuregrapher
*Sunnudagur 7. nóv*
18:00 The moody orchestra
19:00 Bowen Staines (US)
20:00 Ylja
21:00 Johnny Stronghands
22:00 Enkidu
Í kvöld (miðvikudag) verða svo Skúli Mennski og hljómsveitin Grjót á Rósenberg og á Faktorý verða ókeypis tónleikar í nafni Stage Europe Networks. Þar verða hljómsveitirnar Hunting the Robot, …Kleinstadthelden, California Stories Uncovered, Geriko, World Service og The Assassin of a Beautiful Brunette, sem sagt mikið stuð í gangi þar.

Á fimmtudagskvöldinu verða tvennir útgáfutónleikar. Á Faktorý verður Sing For Me Sandra að fagna plötunni sinni, sem heitir Apollo’s Parade (hægt að hlusta hér!) og hún verður amk spiluð öll og hver veit hvað gerist meira en það! Who Knew ætla að hita upp og það er Ókeypis inn. Hinir útgáfutónleikarnir verða svo á Sódómu, en þar verða Cliff Clavin liðar væntanlega að gera allt vitlaust með sinni plötu,The Thief’s Manual. Sú plata er ansi góð og lög af henni hafa verið í ansi mikilli útvarpsspilun. Þar kostar 1000 kr. inn og opnar húsið kl. 21:00. Ef að einhverjum þótti þetta ekki níg þá verður hinn frábæri Prins Póló líka með útgáfutengda tónleika. Þeir verða á Venue kl. 21:00. Þar kostar ekki krónu inn og er enginn veit hvað/hverjir/hver Prins Póló er þá er amk hægt að hlusta á plötuna Jukk hér (áfram gogoyoko!!)
Á föstudagskvöldið er planið svona:

Danny Malone & Jóhann Kristinsson verða á Rósenberg. Svo áttu DR. Spock að vera á Faktorý en þeir þurftu að aflýsa vegna veikinda. Í Staðinn er hægt að fara á “sveittra bar-tónleika” á Sódómu þar sem Hjálmar og Nolo verða með partý af því að það var að koma út 200 síðna(!) ljósmyndabók um Hjálma. 1500 kr. miðinn þangað, bara selt við hurð og hún opnar kl. 22:00.
Danny Malone ætlar að aftur að vera á Rósenberg á laugardaginn en að þessu sinni er það Lára Rúnars sem ætlar að spila með honum. Á Faktorý verða svo, ótrúlegt en satt, ókeypis tónleikar! Núna er Fuzzfest og þar ætla að spila Dandelion Seeds, The Vintage Caravan, Perla, Sleeping Giant og Stg.Miller Misbehavious Daughters. Á Sódóma verða svo stórstjörnurnar Sverrir Stormsker og Kalli Bjarni. Stormsker ætlar að flytja nýtt efni af væntanlegri plötu og samkvæmt fréttatilkynningu þá munu þeir “rugla saman reitum og reita af sér rugl í bland við gömlu góðu perlurnar sem verða teknar í nýjum búningum!!” að getur ekki orðið neitt annað en merkilegt, húsið opnar kl. 22:00 og það kostar 1000 kr. inn.
Nánari upplýsingar og hugsanlega tengla má svo finna í dagatalinu okkar hérna til hægri (og niður býst ég við…) og ég ætla að ítreka enn einu sinni að ef einhver veit um eitthvað sem hvorki er í upptalningunni né á dagatalinu að senda okkur endilega línu á toppfimmafostudegi@gmail.com.
Tags: ...Kleinstadthelden, Berndsen, Budam, California Stories Uncovered, Cliff Clavin, Dandelion Seeds, Danny Malone, Datarock, Dr. Spock, Geriko, Hjálmar, Hjaltalín, Hunting the Robot, Jóhann Kristinsson, Kalli Bjarni, Lára Rúnarsdóttir, Nóló, Orphic Oxtra, Perla, Prins Póló, Retro Stefson, Scola Cantorum, sing for me sandra, Skúli Mennski og hljómsveitin Grjót, Slaraffenland, Sleeping Giant, Stg.Miller Misbehavious Daughters, Sverrir Stormsker, The Assassin of a Beautiful Brunette, The Vintage Caravan, Who Knew, Wildbirds & Peacedrums, World Service
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off





