Tónleikasamantekt *Uppfært*

23.3.2011 - Georg Atli

Að venju þá er bærinn fullur af tónleikum. Eins og alltaf þá reynum við að fylgjast með sem flestu en biðjum við ykkur um að senda okkur einhverskonar línu ef að þið vitið um eitthvað sem við gerum ekki. toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com og svo líka facebook-ið eða klassíska commentið bara.

Núna tek ég aðallega saman dagskrána fyrir miðvikudaginn en dagskráin uppfærist eftir því sem að nær dregur helginni þannig að endilega að tjékka á okkur aftur.

Miðvikudagur
Á Sódómu verða árlegir styrktartónleikar Kvennaskólans. Þar verða Sin Fang, Mukkaló, Valdimar, Fonetik Simbol ásamt Kristrúnu Lárus, My Brother is Pale og Kvennókórinn að sjá til þess að kvöldið verði skemmtilegt. Tónleikarnir byrja kl. 20:00 og það kostar bara 500 kall inn sem er ekkert neitt.

Dúettinn Heima verður á Rósenberg. Tónleikarnir byrja kl. 21:30 og það kostar 1000 kall inn.

Á Dillon verður Miðvikudagsmosh. Chino, Klikk og The Neighbours sjá um tryllinginn sem byrjar kl. 22:00 og kostar ekkert inn á.

Fimmtudagur
Stærstu tónleikar kvöldsins verða án efa á Sódómu en þar verður Apparat Organ Quartet með fyrri tónleika sína af tveimur. Í kvöld er það Borko sem að hitar upp og tónleikarnir eru stílaðir inn á vinnandi fólk og byrja því kl. 21:00. Ég held að það séu enn til miðar en ég er ekki viss, best bara að tjékka á 12 Tónum.

Á Faktorý verða Jón Jónsson og Lifun með tónleika. 1000 kall inn og fyrsta band fer á svið kl. 22:00

Á Hemma og Valda verður fyrsta kvöld TomTom Records sem að ber nafnið Heiladans 1 Yoda Remote, Prince Valium, Bypass og Tonik. Kostar ekkert inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00

Á Rósenberg verða tónleikar með Mogadon “ásamt vinum, gestum, leynigestum, gæludýrum og austur-evrópskri þjóðlagahljómsveit”. 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00

Föstudagur
Á föstudeginum verður brjálað að gera fyrir tónleikaþyrsta.

Í fyrsta lagi er fyrsta kvöld Músíktilrauna í Tjarnarbíó. Fullt af efnilegum hljómsveitum þar, tónleikarnir byrja kl. 19:00, og nánar hér.

Síðan eru seinni tónleikar Apparat Organ Quartet á Sódómu. Í þetta skiptið byrja þeir kl. 22:00 og Swords of Chaos hita upp.

Í Slippsalnum verða Agent Fresco og Árstíðir með órafmagnaða tónleika. Húsið opnar kl. 19:30 og það kostar skitnar 1000 kr. inn.

Á Amsterdam verða Vigri, Andvari og Örför. Ókeypis inn og tónleikarnir byrja kl. 23:00

Laugardagur
Á Faktorý ætlar Sin Fang að halda fría tónleika! Þar verður væntanlega hægt að fara og hlusta á lög af einni bestu plötu ársins og líklega eitthvað af eldra efni frá Sin Fang og svo ætla Munnfylli af Galli og O F F líka að koma fram. Húsið opnar kl. 22:00 og ég býst við því að það sé sniðugt að mæta snemma.

Á Sódómu verða styrktartónleikar. Þar verða hljómsveitirnar Morgan Kane, Finnegan, Noise, The Vintage Caraven, Endless Dark og Morning After Youth að troða upp ásamt Bödda úr Dalton. Allir listamennirnir ætla að gefa vinnu sína og allur ágóði rennur óskipur til Krabbameinsfélagsins. Aðgangseyrir eru 1500 krónur að lágmarki, nema að þeir sem eru með mottu borga 1000 kall (en auðvitað mega allir borga meira), húsið opnar 21:30.

Á Dillon verða síðan hljómsveitirnar Vigri, Virtual Times og Friday Night Idols. Þar er frítt inn og húsið opnar kl. 22:30

Sunnudagur
SunnuJazz á Faktorý.

Þá held ég að þetta sé komið í bili…

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin