gloríur…

21.10.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn


Partur af bresku innrásinni í Ameríku var norður írska Belfast bandið Them með Van Morrison á munnhörpu og míkrafón. Einn helsti smellur þeirra var lagið Gloria frá árinu 1964 sem var b hlið Baby, Please Dont Go. Þetta einfalda þriggja gripa lag hefur verið tekið upp af mörgum listamönnum í gegnum tíðina og margprófaðar vísindalegar tilraunir hafa sýnt fram á að ef gítar sé hent niður stigagang spili hann Gloríu á leiðinni niður.


Þó ég fíli Doors hef ég aldrei verið neinn ofuraðdáandi. Þeir eiga þó óneitanlega nokkur svakaleg lög og eflaust hefur það verið mikil upplifun að sjá þá á tónleikum. Sóðalegur og sjarmerandi Morrison miðlandi undarlegri indíánavisku sem blandast saman við einhvers konar klassíska-flamingó-djasssúpu. Gloría Doors er live upptaka og gott dæmi um sækadelikshamanismatransklámsögustíl söngvarans. Sögur segja að Doors hafi hitað nokkru sinnum upp fyrir Them í gamla gamla daga og Morrissynirnir tveir hafi tekið magnaða tuttugu mínútna Gloríu í lok síðustu tónleikanna.


Er soldið heillaður af Horses plötu Patti Smith þessa dagana og Gloría hennar finnst mér afar mögnuð. Smith hoppar auðveldlega á milli hugljúfs og innilegs söngs í byrjun lagsins og suddaskapar í lok þess sem gerir það afar Patti-legt og skemmtilegt í alla staði.

Gloria – Them
Gloria – Doors
Gloria – Patti Smith

Tags: , , , ,
Flokkað undir Óflokkað | Comments Off

Topp 5 kvenmannsnafnalög – Kristín Gróa

1.2.2008 - Kristín Gróa

Að vera veðurteppt í Færeyjum seinkar listanum en ég komst heim á endanum svo hér kemur hann! Það eru svo mörg lög sem innihalda kvenmannsnöfn í titlinum að ég varð alveg ringluð á að hugsa um þennan lista. Til að gera þetta aðeins bærilegra ákvað ég að takmarka mig við lög sem heita bara nafninu… svo Roxanne kom til greina en Sheila Take A Bow ekki.

5. Mark Ronson feat. Amy Winehouse – Valerie

Það er víst einhver acoustic útgáfa af þessu sem hefur verið í spilun í útvarpi en þar sem ég er svo út úr lúppunni hef ég ekki heyrt hana. Mér finnst þessi útgáfa hins vegar alveg killer enda eru hér bæði fiðlur, lúðrar, handaklapp og þessi svakalega söngrödd.

4. The Kinks – Lola

Þetta lag fær fjórða sætið til heiðurs henni Lólu minni sem hefur reynst stoð mín og stytta síðustu mánuði. Hún er alltaf í góðu skapi, er alltaf þakklát þegar ég sinni henni og er aldrei með neitt vesen. Lóla, þú ert besti gullfiskur sem stúlka gæti óskað sér.

3. FM Belfast – Synthia

Alltaf þegar ég heyri þetta lag fæ ég óstjórnlega löngun til að vera stödd á hip bar með glas í hendi að dansa eins og enginn sé morgundagurinn. Hei en það er að koma helgi svo það er aldrei að vita…

2. Them – Gloria

Þetta lag náði toppsætinu á “topp 5 lög sungin af rauðhærðum” listanum mínum fyrir nokkru síðan en ég stenst bara ekki freistinguna að setja það á þennan lista líka. Hvernig er hægt að syngja af svona mikilli ákefð?

1. Leonard Cohen – Suzanne

Ég hef svo sem ekki mikið um þetta lag að segja nema ég fæ alltaf gæsahúð þegar ég heyri það og það nægir til að fá toppsætið.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Topp 5 Dylan cover

31.8.2007 - Kristín Gróa


Jimi Hendrix fær honourable mention vikunnar en uppreisnarseggurinn í mér getur bara ekki fengið sig til að elta hjörðina og segja að All Along The Watchtower sé besta cover allra tíma. Það er gott cover en kommon, hleypum öðrum að!

5. Melanie – Lay Lady Lay

Hippadrottningin Melanie skrúfar upp í dramatíkinni og sleppir ofvirkum þverflautuleikara lausum en samt gengur þetta fyllilega upp. Mjög hippalegt þó.

4. The Byrds – My Back Pages

Það voru fáir duglegri við að covera Dylan heldur en The Byrds enda er ég með greatest hits plötuna þeirra og þar eru heil átta Dylan lög! Mér finnst þetta standa langt upp úr þeim, einfaldlega því harmónískur söngurinn og hringlandi hljóðfæraleikurinn undirstrikar alla styrkleika lagsins. Svo er live útgáfan af þessu lagi þar sem Dylan spilar það með Byrdsaranum Roger McGuinn, Tom Petty, Neil Young, Eric Clapton og George Harrison ansi mögnuð en þar spila þeir einmitt Byrds útgáfuna í stað þeirrar upprunalegu.

3. Nina Simone – I Shall Be Released

Örugglega besta lagið frá trúartímabili Dylans er hér flutt í fallegum gospelbúningi af sjálfri Ninu Simone. Hún segir við hljómsveitina í upphafi upptökunnar You’re pushing it… it’ll go out by itself… don’t put nothing in it unless you can feel it og ég trúi virkilega að hún hafi fundið það. Það hlýtur að vera galdurinn við að taka gott cover, að finna lagið eins og það væri þitt eigið.

2. Nico – I’ll Keep It With Mine

Æjj ég veit ég er eiginlega að svindla því þetta er ekki beint eiginlegt cover lag. Dylan lét Nico fá þetta lag til að setja á Chelsea Girl og það kom ekki út með honum sjálfum fyrr en mörgum árum seinna og þá á samtíningnum Biograph. Þetta er aftur á móti eitt af ótalmörgu uppáhalds lögunum mínum svo ég stenst einfaldlega ekki freistinguna að setja það á listann… það sleppur alveg er það ekki? ;)

1. Them – It’s All Over Now Baby Blue

Þetta er nú alveg með fallegri Dylan lögum en svo er þar að auki búið að bæta við svo flottu stefi að Beck ákvað að nota það bara óbreytt í laginu Jackass með svona líka góðum árangri. Þetta stef og geltið í Van Morrison taka orginalinn og snúa honum á hlið en halda samt í sömu tilfinninguna. Er það ekki þannig sem gott cover á að vera?

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 1 athugasemd »

Topp 5 cover lög – Kristín Gróa

13.7.2007 - Kristín Gróa

5. Cat Power – I Found A Reason (The Velvet Underground)

Mér finnst þessi útgáfa alls ekkert betri en orginallinn en hins vegar þá er þetta uppáhalds Cat Power lagið mitt. Mér finnst snilldin við þetta í raun sú að útgáfurnar eru um leið rosalega ólíkar og textinn ekkert alveg sá sami en samt er einhvernveginn sami andinn í þeim báðum.

4. The Kingsmen – Louie Louie (Richard Berry)

Þetta lag þekkja allir enda hafa ótalmargir listamenn koverað það. Það er hins vegar þessi útgáfa sem er eiginlega “default” þó hún sé ekki sú upprunalega. Sumir kalla þetta fyrsta pönklagið og það er kannski nokkuð til í því.

3. Flying Lizards – Money (Barrett Strong)

Hér er annað lag sem margir hafa tekið og þó sjálfir Bítlarnir séu þar á meðal þá finnst mér þessi útgáfa samt betri. Hún er öðruvísi, svo mikið er víst.

2. Them – Baby Please Don’t Go (Big Joe Williams)

Orginallinn er blúsaður og flottur en þessi ofsafengna útgáfa er mikið þekktari. Van Morrison geltir út úr sér textanum og session maðurinn ungi Jimmy Page spilar gítarriffið flotta.

1. Lou Reed – This Magic Moment (The Drifters)

Lou Reed tekur þetta klassíska lag sem allir þekkja og gjörsamlega snýr því á haus. Þetta er sama lagið en það er svo algjörlega óþekkjanlegt að fyrst fattaði ég ekki einu sinni hvaða lag þetta var. Svona á gott kover að vera… taka flott lag, setja sitt mark á það og skila einhverju alveg einstöku.

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Topp 5 lög sungin af rauðhærðum

23.3.2007 - Kristín Gróa


1. Okkervil River – So Come Back, I am Waiting
Redhead: Will Sheff

“I’m waiting, I snort and I stamp.
I’m waiting, you know that I am
Calmly waiting to make you my lamb”

Já þetta er langt og rólegt lag en vá hvað það mætti ekki vera sekúndu styttra. Þetta lag er í miklu uppáhaldi og pottþétt hápunktur Black Sheep Boy sem ég virðist ekki ætla að fá leið á.

MP3: Okkervil River – So Come Back, I Am Waiting


2. Them – Gloria
Redhead: Van Morrison

“She knocks upon my door
And then she comes in my room
Yeah, an’ she make me feel alright”

Þó það hefði kannski verið fyrirsjáanlegra að setja Brown Eyed Girl hérna (enda frábært lag) þá er þetta hrárra og rokkaðra svo það hefur vinninginn.

MP3: Them – Gloria


3. Janis Joplin – Me And Bobby McGee
Redhead: Janis Joplin

“Freedom is just another word for nothing left to lose”

Þetta lag minnir mig alltaf á Dillon og þar með allt fjörið með vinum mínum þar. Janis sjálf minnir mig svo alltaf á Chelsea Hotel #2 með Leonard Cohen sem er eitt af uppáhalds lögunum mínum en hei það er kannski óþarfi að fara nánar út í hvað minnir mig á hvað því ég gæti haldið endalaust áfram!

MP3: Janis Joplin – Me And Bobby McGee


4. Belle & Sebastian – Seeing Other People
Redhead: Stuart Murdoch

“We lay on the bed there
Kissing just for practice

Það var alveg gefið að B&S kæmust á listann en það var erfiðara að velja eitt lag framyfir önnur. Þetta er allavega með mínum uppáhalds svo við látum það flakka.

MP3: Belle & Sebastian – Seeing Other People

5. The New Pornographers – The Laws Have Changed
Redhead: A.C. Newman og Neko Case

“It was crime at the time but the laws, we changed them”

Talandi um að slá tvær flugur í einu höggi. A.C. Newman og Neko Case syngja þetta lag saman og eru bæði alveg neon-gulrótarrauðhærð. Þetta er hresst og skemmtilegt og ekki hægt að vera í fýlu þegar þetta er í gangi.

MP3: The New Pornographers – The Laws Have Changed

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 3 athugasemdir »

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin