Topp 5 plötur sem munu fylgja mér um alla tíð – Georg Atli

8.10.2012 - Georg Atli

Þessi listi kemur svona svakalega seint því að ég hef ekki haft tíma til að setja hann inn, mér fannst þetta samt svo skemmtilegt konsept að ég tímdi ekki að sleppa honum. Það er svo merkilegt við “plötur sem fylgja manni alla tíð” (svona þegar að ég skrifa og les þetta eftir á virkar nafnið óþarflega dramatískt) er að þetta þurfa ekkert endilega að vera uppáhalds plöturnar manns, sumar plötur (og/eða lög) bara hanga einhvern veginn við mann og sleppa bara ekkert. Plöturnar 5 sem ég nefni hérna áeftir eru svolítið svoleiðis ekkert endilega uppáhaldsplöturnar mínar (þó að fyrsta og annað sætið séu það) en þær er einhverra hluta vegna mikilvægar eða kannski frekar óhjákvæmilegar…

p.s. síðan er að vera erfið og vill ekki leyfa mér að streyma lögunum þannig að þið verðið bara að láta youtube linka duga

5. Sushi 4004 – Safnplata

Ég er með blæti fyrir japanskri tónlist sem ég hef aldrei leyft mér að sökkva almennilega í… líklega vegna þess að ég býst hálft í hvoru við því að koma aldrei aftur frá því. Þegar að bakterían bítur mig þá finnst mér rosa gott að geta gripið í þessa og af því að hún er allskonar þá slær hún á mesta bitið og ég get lifað í voninni um að allt þaðan sé svona frábært.

Kashimi Karie – Alcohol

4. Rufus Wainwright

Þetta er í rauninni ekki einhver ein plata, miklu frekar tónlistarmaðurinn í heild sinni. Það er nefnilega svo skrítið að ég fíla Rufus ekkert sérstaklega mikið og engin ein plata með honum sker sig eitthvað sérstakleg út, hvað mig varðar. Samt sem áður hef ég séð hann tvisvar á tónleikum (og hvorki skemmti mér né var impressed, hvorugt skiptið) og hlustað á allar plöturnar hans og meira að segja á ég nokkrar. Mér finnst hann samt ekkert frábær reyndar ekki heldur lélegur eða leiðinlegur en samt… ég hef bara sætt mig við þetta og býst ekki við að losna frá honum í bráð.

Oh What a World (af Want One)

3. Maxinequaye – Tricky

Þessi plata er nú reyndar í þó nokkru uppáhaldi hjá mér, bæði af því að hún er góð og líka (og jafnvel meira) af því að með þessari plötu þá fattaði ég (óharðnaði unglingurinn) að það væru allskonar öðruvísi hlutir í gangi í tónlist, fór reglulega með strætó inn í hljómalind og eyddi meirihluta peninganna minna í eitthvað allskonar. Svona tímamóta plata fyrir mig.

Hell is Around the Corner

2. Closing Time – Tom Waits

Þetta er sú plata sem að mér þykir vænst um. Uppáhaldsplatan með uppáhalds tónlistarmanninum. Það er ótrúlega ljúft að setja þessa plötu á fóninn á sunnudagskvöldum.

Rosie

1. XO – Elliott Smith

Uppáhaldsplatan mín. Ég get alltaf hlustað á hana og finnst hún alltaf jafn góð, ef að ég þyrfti að velja einhverja eina plötu til að hlusta á alla ævi þá yrði það þessi. Fyrir mér er engin plata sem er jafn fullkomin og þessi og þá sérstaklega af því að hún er það alls ekki.

Indipendence Day

Tags: , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Topp 5 auglýsingar – Georg Atli

30.9.2011 - Georg Atli

Hérna að neðan koma 5 lög sem hafa einhverja tengingu við auglýsingar. Þar af eru þrjú Tom Waits lög, af því hann er awesome.

5. José Gonzales – Heartbeat

Þetta var í Sony auglýsingu og gerði þetta lag að risa hittara fyrir José Gonzales og svo að aðeins minni hittara fyrir The Knife… gott lag.

4. Rolling Stones – She’s a Rainbow

Aftur Sony auglýsing (og meira að segja sama herferð og að ofan), þeir áttu ansi margar auglýsingar fyrir nokkru síðan þar sem að góð lög voru notuð með einhverri lita pælingu, átti að þýða það að litirnir í sony væru svo frábærir eða eitthvað svoleiðis. Auglýsingin skemmdi amk þetta lag fyrir mér, nú get ég ekki heyrt það án þess að hugsa um sjónvörp… sem er skítt!

3. Tom Waits – Heartattack & Vine
Levi’s notuðu útgáfu Screamin’ Jay Hawkins’ af þessu lagi Tom Waitssem kærði aftur og vann. Levi’s kipptu auglýsingunni úr umferð og birtu meira að segja afsökunarbeiðni í Billboard

2. Tom Waits – Innocent When You Dream
Tom Waits kærði Audi fyrir að nota næstum því kóperíngu á laginu sínu í auglýsingu.

1. Tom Waits – Step Right up

Þetta er svo fyrsta málið hans Tom Waits gegn auglýsendum. Snakk framleiðandinn Frito-Lay ætlaði að fá að nota þetta lag í auglýsingu hjá sér (kaldhæðnin er að lagið er mjög svo antí auglýsingar í tónlist). Tom Waits sagði nei en þá fengu Frito Lay einhverja eftirhermu til þess að kópera röddina og stílinn hans. Waits kærði og vann, húrra fyrir honum.
endum á tilvitnun í meistarann sjálfann:
If Michael Jackson wants to work for Pepsi, why doesn’t he just get himself a suit and an office in their headquarters and be done with it?”

Tags: , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Nýtt frá Bon Iver

16.5.2011 - Georg Atli

Justin Vernon og félagar ætla að senda frá sér nýja plötu 21. júní næstkomandi (það verður víst eitthvað aðeins seinna í Evrópu). Sú plata á að heita Bon Iver og þið getið hlustað á eða sótt fyrsta lagið (Calgary) af þeirri plötu hér að neðan. Platan verður 10 lög að lengd og mér finnst gaman að geta sagt frá því að Colin Stetson sér um brass hluta plötunnar, en hann hefur unnið mikið með Tom Waits (og Arcade Fire en mér finnst það ekki jafn merkilegt).

Lag: Calgary

Tags: , , ,
Flokkað undir Georg Atli | Comments Off

Reykjavík Music Mess Sarpur – Georg Atli

14.4.2011 - Georg Atli

Á föstudaginn hefst glæný tónleikahátíð í höfuðborginni sem að heitir Reykjavík Music Mess… hátíðin sko, ekki höfuðborgin… hún heitir Reykjavík. En já semsagt, af því að okkur finnst það svo frábært að fá nýja tónleikahátíð þá höfum við eiginlega bara verið að fjalla um hana og gleymt allskonar föstum liðum, þar á meðal Sarpinum. Ég ætla hér með að ráða bót úr þessu og jafnframt að sameina RvkMusicMess kynningarnar okkar og Sarpinn.


Mugison – Lonely Mountain

Þetta er fyrsta platan hans Mugison og uppáhalds Muga platan mín. Hún kom mér geðveikt á óvart þegar að ég heyrði hana fyrst. Ég hafði verið að gramsa eitthvað í einum af rekkunum í 12 tónum þegar að afgreiðslumaðurinn spurði mig hvort að ég hefði einhvern tímann heyrt þetta (og sýndi mér Lonely Mountain), þetta væri geðveikt. Stundum þá ákveð ég bara að kaupa plötur af því að mér lýst vel á umbúðirnar, (þetta er eitthvað sem að hefur næstum aldrei klikkað, merkilegt hvað flottar umbúðir og gott innihald fara oft saman í tónlistarbransanum!) Þannig að ég keypti bara diskinn og fór beint heim að hlusta.

Fyrst ætti ég að nefna hvernig platan leit út, því að það var sérstaklega vel heppnað. Diskurinn kom í pappahulstri (eitthvað sem að ég er alltaf smá sökker fyrir) og ekki nóg með það þá voru umbúðirnar hand saumaðar (það eru rauðu línurnar á myndinni fyrir ofan). Þetta leit semsagt allt mjööög heimabruggslega út.

En strax frá fyrsta laginu, Sea Y (sem að fyrst hét CY) heyrði maður að hérna var eitthvað nýtt og skemmtilegt á ferðinni. Allskonar elektrónískir tónar og heimagerð (ó)hljóð blandast saman við gítar á alveg ótrúlegaflottan hátt og yfir allt saman flýtur svo hálf hvíslandi og mjúk röddin hans Mugison. Lagið byggist svo smámsaman upp og í miðju laginu er komið ansi flott grúv sem að brotnar svo við öskur í Muga og uppbygging lagsins breytist svo í seinnihlutanum. Hlustum:

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Platan heldur svo áfram með svipaðri uppskrift, sem er samt passlega fjölbreytt og breytileg, þangað til að kemur að uppáhaldslaginu mínu, I’m on Fire byrjar á sömu hljóðunum og tónunum, gítar, elektróník og svo píanó en undir niðri heyrir maður að það er eitthvað í vændum sem að er öðruvísi. Það er alveg frá byrjun lagsins einhver dökkur tónn sem að brýst svo fram með rymjandi röddu Mugison (sem að hingað til hafði verið hvíslandi og mjúk) sem að hljómar eins og launsonur meistarans Tom Waits (húrra fyrir ofurdramatíska tónlistarbloggaranum!). Hlustiði á þetta lag hátt! (sérstaklega frá 1:18 þegar að lagið fellur og hrekkur svo upp aftur, snilld)

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Í þessu lagi kemur um það bil allt sem að ég fíla í tónlist. Tom Waits, Portishead og Squarepusher hafa öll verið miklir áhrifavaldar í tónlistaáhugamannalífi mínu og allt í einu heyrði ég lag sem hefði getað verið samið af þeim öllum í einu.

Eftir þennan hápunkt fer að hægjast aftur á plötunni og hún endar svo á sing-a-long laginu Poke a Pal, sem að er algjörlega frábært að heyra á tónleikum. Það er rólegt lag sem að byggist upp í kringum spilamennsku annars frábær tónlistarmanns, Pétur Ben (sem að er með tónleika á morgun).

Audio clip: Adobe Flash Player (version 9 or above) is required to play this audio clip. Download the latest version here. You also need to have JavaScript enabled in your browser.

Nú í dag er Mugison komin nkkuð langt frá þeim pælingum sem að hann var í á þessari plötu. Í stað þess að vera einn á sviði að fikta í fartölvu með gítarinn sinn er komin heil hljómsveit á bak við hann og hann er líka farinn að smíða sín eigin hljóðfæri (facebook-linkur). Það breytir því þó ekki að tónlistin er frábær og ég bendi ykkur á að fara inn á heimasíðuna hans þar sem að þið getið náð ykkur í lagið Haglél, sem er ansi gott. Ég þori að lofa góðum tónleikum frá/með honum.

Mugison verður í Norrænahúsinu á sunnudaginn kl. 21:00

Tags: , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Sarpurinn, Tónleikar | Comments Off

Topp 5 Kevin Bacon

12.11.2010 - Georg Atli

5. Pavement

Á fyrstu plötu Pavement, Slanted & Enchanted, var lagið Here. Maðurinn sem leikstýrði því myndbandi var enginn annars en Thurston Moore, forsprakki Sonic Youth

4. Sonic Youth

Thurston Moore er sem sagt aðal maðurinn í Sonic Youth og gerði soundtrackið fyrir myndina Heavy.

Lag: Sonic Youth – Hey Joni

3. Blondie

Í þessari stórmynd lék Blondie söngkonan Debbie Harry.

Lag: Blondie – Hanging on the Telephone

2. Ramones

Í ágúst 1987, í  eitt af skiptunum sem að Ramones ráku/skiptu um trommarann sinn, trommaði Clem Burke fyrir Ramones (hann kallaði Elvis Ramone) á tvennum tónleikum. Hann var snarlega rekinn því hann var lélegur og hélt ekki takti. Clem Burke var og er best þekktur sem trommari Blondie.

Lag: Ramones – Carbona Not Glue

1. Tom Waits

Tom Waits tók lagið The Return of Jack and Judy á Ramones tribute plötunni We are a Happy Family (og svo aftur á safnplötunni Orphans). Tom Waits er líka geðveikt töff alveg eins og Ramones.

Lag: Tom Waits – The Return of Jack and Judy

0. Kevin Bacon!

Kevin Bacon og Tom Waits léku saman í myndinni Queens Logic frá árinu1991 (sem er árið sem Slanted & Enchanted fór fyrst í óformlega dreifingu!)

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Topp 5 vildaðkæmutilíslands

26.3.2010 - Erla Þóra

5. Queen


Já allt í lagi, þetta eru smá draumórar í mér. Og náttúrulega ekki að fara að gerast. En hafið þið séð Freddie Mercury á sviði?! Eðal.

Queen – Bohemian Rhapsody (Live at Wembley 1986)

4. Arcade Fire


Já takk! Ég vil endurtaka nákvæmlega þessa 2007 gleði aftur (og preferably í þetta sinn ekki knee deep í drullu)

Arcade Fire – Wake Up (Live at Glastonbury 2007)

3. Beyonce


Hún er með svo mikið “show”. Er alveg killer á sviði blessunin.. eða svo segir YouTube mér allavega.

Beyonce – Single Ladies (Live 2009)

2. Radiohead


Ég get ímyndað mér að það sé ansi mikið upplifelsi að vera á Radiohead tónleikum (sjá link hér að neðan).

Radiohead – Paranoid Android (Live 2008)

1. Tom Waits


Tom Waits – Jersey Girl (Live 1986)

Ó hvað ég væri til í að kallinn skellti sér á klakann. Og tónleikarnir yrðu að vera í litlum sal. Fullkomið.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | Comments Off

Topp 5 jarðafararlög – Theodór

13.11.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Ef ég fengi að ráða hvaða lög yrðu spiluð í minni jarðaför þá kæmu eftirfarandi fimm lög sterklega til greina. Jarðaför er vissulega sorglegur hlutur, en ég myndi gjarnan vilja að það væri smá dass af húmor í minni jarðaför.

5. You’ll Never Walk Alone – Gerry & The Pacemakers
Þetta er vissulega fallegt lag en það yrði spilað í minni jarðaför eingöngu til að stríða þeim vinum mínum sem halda ekki með Liverpool. Og draumurinn er náttúrulega sá að lagið verði í karíókí útgáfu og allir yrðu að syngja með. Það væri góður lokahrekkur.

4. No One But You – Queen
Ekki það að ég sé að plana það að deyja ungur, en þetta lag er fallegt og gott svona til að drepa niður stemminguna sem myndaðist við að spila You’ll Never Walk Alone.

3. Death Is Not The End – Bob Dylan
Jæja nú er um að gera að hressa mannskapinn aðeins við, því dauðinn er alls ekki endirinn, eða hvað?

2. On The Evening Train – Johnny Cash
Þetta er um það bil sorglegasta lag sem ég hef heyrt. Ef ég væri ekki þetta ótrúlega karlmenni sem ég er, þá mundi ég brotna saman og gráta í hvert sinn sem ég heyri það.

1. Way Down In The Hole – Tom Waits
Og smá húmor í endann, þetta myndi til dæmis sóma sér vel á meðan það væri verið að bera kistuna út úr kirkjunni eða bara á meðan það væri verið að láta hana síga í gröfina.

Og að lokum þá væri ég alveg til í að mín jarðaför væri eitthvað í líkingu við jarðaför Graham Chapman.

Tags: , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Topp 5 VOND cover – Georg Atli

3.10.2009 - Georg Atli

Ég hef sagt það áður og ég segi það enn einu sinni, mér finnst cover vera mjög merkileg. Þetta á líka við um vond cover, ég lenti meira að segja í svo miklum valkvíða með að velja úr safninu mínu að listinn kemur degi of seint en hérna koma mín topp 5:


5. Scarlett Johansson – Last Goodbye (Jeff Buckley cover)

Scarlett er voðaleg sæt og hæfileikarík leikkona og hún kann svosem alveg að syngja ágætlega en hún ætti ekki að covera nein lög, hún sannaði það með Tom Waits tribute plötunni sinni svo rækilega að öll lögin á listanum ættu eiginlega að vera af þeirri plötu… en það væri of augljóst.


4. Dizzee Rascal – That’s Not My Name (The Ting Tings cover)

Þetta er ekki einu sinni gott lag í upprunalegu útgáfunni, AF HVERJU Í ÓSKÖPUNUM ERTU AÐ GERA ÞAÐ VERRA!!!

3. Xiu Xiu – Fast Car (Tracy Chapman cover)

Xiu Xiu ákváðu að verða svo mikið artý og krútt að það fór hringinn og varð að einhverju allt öðru og undarlegu.


2. Chris Cornell – Billy Jean (Michael Jackson cover)

Ef að Michael Jackson hefði verið hvítur, kjánalegur og forsöngvarinn í Creed, Nickleback eða Live þá hefði það líklega hljómað svona.

1. Olivia Newton-John – Ring of Fire (Johnny Cash cover)

Það er ekkert hægt að lýsa þessu lagi neitt, það er svo hræðilega poppað og sykursætt að það verður bara að hlusta á það ef maður vill vita. Það má reyndar benda á það að lagið kom út á plötunni Making a Good Thing Better, jú þið lásuð rétt better

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Topp 5 gæsahúð – Halldór

31.5.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Ég tengi yfirleitt gæsahúð helst við lifandi flutning á lögum. Vissulega eru mörg lög sem hafa ótrúlegustu áhrif á mig þótt ég hlusti á þau í græjum eða heyrnatólum en mesta tengingin kemur alltaf live.

Ég er nokkuð heppinn með það að hafa farið á tónleika sem hafa skilið mikið eftir sig, ýmist í heild sinni eða lög og lög. Ég verð þó að segja að topp 26 listinn minn eru öll lögin sem Tom Waits flutti á tónleikum sem ég fór á í Dublin í ágúst síðastliðnum. Þess vegna hef ég ákveðið að þessi gæsahúðarlisti verði eingöngu með lögum af þessum tónleikum, enda nógu erfitt fyrir mig að velja einungis 5 af þeim lögum.

Lucinda/Ain’t Going Down to the Well

Eftir alla biðina og spenninginn var það algjörlega epískt að sjá Tom Waits labba inn á sviðið og byrja tónleikana á þessu lagi. Ég held ég hafi aldrei verið jafn nálægt því að taka gelgjuöskurkast og þarna.

Tom Traubert’s Blues

Tom Traubert’s Blues er lag sem mig hafði lengi lengi langað að heyra live en ég hélt að það ætti ekki eftir að gerast. Það var því mikil gæsahúð sem hríslaðist um mig þegar hann byrjaði á línunni Wasted and wounded, it ain’t what the moon did. Óhætt að segja að flutningurinn hafi rokið fram úr öllum væntingum.

Innocent When You Dream

It’s such a sad old feeling,
the hills are soft and green.
It’s memories that I’m stealing
But you’re innocent when you dream, when you dream
You’re innocent when you dream, when you dream
You’re innocent when you dream.

Alltaf verið eitt af mínum uppáhalds lögum og flutningurinn úr tónleikamyndinni Big Time með þeim flottari sem ég hef séð, bæði lag og atriði. Svo fékk hann alla til að syngja með, tær snilld.

Dirt in the Ground

Gæsahúð gæsahúð gæsahúð! Og tár með, sjaldan hefur eitt lag haft jafnmikil áhrif á mig og þetta. Þetta lag fyllti mig mellankólísku æðruleysi, svo fallegt en samt svo sorglegt þegar Tom Waits syngur sannleikann af þvílíkri innlifun.

What does it matter, a dream of love or a dream of lies
We’re all gonna be in the same place when we die
Your spirit don’t leave knowing your face or your name
And the wind through your bones is all that remains

And we’re all gonna be
Yeah yeah
I said we’re all gonna be
Yeah yeah
I said we’re all gonna be
Yeah yeah
I said we’re all gonna be just dirt in the ground

Make it Rain

Make it Rain er kannski fyrirfram ekki lag sem ég ætti von á að færi á þennan lista en þetta er allt spurning um aðstæðurnar. Þetta lag er á Real Gone og þar er þetta einfaldur en þéttur blús. Gott lag en kannski ekkert gríðarlega eftirminnilegt af öllum hans lögum.
Tónleikarnir voru haldnir í risastóru sirkustjaldi í miðjum Phoenix Park í Dublin. Í miðju lagi breytist þetta blúslag í hálfgerðan regndans þar sem Tom Waits fer gjörsamlega á kostum. Ekki minnkaði það svo áhrifin að heyra rigninguna dynja á tjaldþakinu.

Þetta lag kom seint á tónleikunum og eftir tónleikana þurftum við að ganga í klukkutíma, enga leigubíla að fá, í ausandi rigningunni. Það var ekki hægt annað en að hugsa um þetta lag í þeirri gönguferð. Hatturinn minni þurfti mikla aðhlynningu eftir þá ferð og skórnir lifðu hana ekki af en það eru pínulitlir hlutir að fórna þegar upplifunin er svona ótrúleg.

Tags:
Flokkað undir Listar | 1 athugasemd »

Fuglaskinnssveinn

29.5.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Anywhere I Lay My Head – Tom Waits
Well I dont need anybody,
because I learned, I learned to be alone

Well I said anywhere, anywhere,
anywhere I lay my head, boys

Well I gonna call my home
Með gangstéttarkantinn sem kodda, hattin sem sæng og heiminn sem bæli býður sögumaðurinn góða nótt.

Dánarfregnir og jarðarfarir – Sigur Rós
Kraftmikill útfararsálmur í flutningi Sigur Rósar.

I See A Darkness – Bonnie “Prince” Billy
Well I hope that someday buddy
We have peace in our lives
Together or apart
Alone or with our wives
And we can stop our whoring
And pull the smiles inside
And light it up forever
And never go to sleep
My best unbeaten brother
This isn’t all I see
Þungt, hægt og melankólískt. Í seinn tíð koma brókbaksbræðurnir mér stundum í huga er ég hlusta á það. Djúp og tilfinningarík von um betri tíð í öllu myrkrinu.

Two-Headed Boy Part 2 – Neutral Milk Hotel
Í skrítnum takti (í eyrum amatúrsins) er sungið um drenginn, Önnu, pabba, Guð, tómata, útvarpsvíra, kraftaverk, allt og alla á óskiljanlegan hátt.

Cortez the Killer – Neil Young
Þrjú afar innihaldsrík grip í 7 og hálfa mínútu leidd af gítar Youngs og frásögnum hans af indíánum og stúlkunni sinni.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin