Topp 5 live lög – Vignir
14.11.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
5. Red Hot Chili Peppers – Don’t Forget About Me(Live at Slane Castle)
Tags: Daft Punk, John Frusciante, Maynard James Keenan, Radiohead, Red Hot Chili Peppers, The Who, Tool
Flokkað undir Listar | Comments Off
Topp 5 Party Shuffle Spectacular – Erla Þóra
26.4.2008 - Erla Þóra
Sökum próflesturs kemur minn listi inn degi of seint.. úps!
Þetta verður stutt og laggott þar sem læripásan má ekki vera of löng.
The Smiths – Bigmouth Strikes Again
Hey! Vissi ekki einu sinni að ég ætti þetta lag. Flott, hresst og skemmtilegt.
Karlakórinn Heimir – Erla (hans Tryggva?)
Finnst svo fyndið að þetta lag hafi komið upp á party-shufflinu mínu. Þetta er samt bara Erla góða Erla sko… veit ekki alveg hvað þetta “hans Tryggva?” er en ég held að það sé einkahúmor hjá Heimis-mönnum. Kannski heitir einn í kórnum Tryggvi og á konu sem heitir Erla eða eitthvað. Annars er þetta bara afskaplega fallegt lag. Hef meira að segja sett það á lista áður held ég. Minnir mig á pabba. Hann söng þetta alltaf fyrir mig í gamla daga… og syngur það reyndar enn þó ég sé orðin háöldruð
John Frusciante – The Past Recedes
Úúúú var búin að gleyma þessu lagi. Var á einhverjum disk sem sister dearest skrifaði seinasta sumar held ég. What can I say, I like it.
Dane Cook – Intro/Riot
Heyrðu þetta er bara eitthvað uppistand! Ég vissi ekki einu sinni að ég ætti þetta! Eftir gúggl komst ég að því að þetta er sæti bróðirinn í “Dan in Real Life” og rugl-gaurinn í “Mr.Brooks”. Verð að hlusta meira á þetta. Þessar 2 mínútur eru allavega fyndnar.
Tool – Bottom
Ég hef aldrei hlustað á þetta lag. Tool er ekkert endilega my cup of tea. Let’s just leave it at that.
Tags: Dane Cook, John Frusciante, Karlakórinn Heimir, The Smiths, Tool
Flokkað undir Erla Þóra, Listar | 1 athugasemd »
Topp 5 metallög – Vignir
13.4.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Afsakið seinleika póstsins. Skemmtilegir gestir eyðileggja allt tímaskyn.
Mér fannst í rauninni allt of erfitt að velja 5 metallög allra tíma þannig að ég ákvað að setja aðeins nýrri lög sem hafa verið að heilla mig seinustu ár.
5. Slipknot – The Blister Exists
Já, Slipknot er kjánaleg. Ég geri mér fullkomnlega grein fyrir því. En þeir eiga alveg nokkuð góð lög og má þar t.d. nefna að spilamennskan er alveg á besta máta og krafturinn kemst oft vel til skila. Sú ákvörðun að hafa þrjá trommara veldur líka oft skemmtilegum blöndum og gerir oft mikla lukku eins og t.d. í þessu lagi.
4. Lamb of God – As the Palaces Burn
Ég endist ekki mikið á Lamb of God. Yfirleitt get ég ekki hlustað oft á plöturnar þeirra en það er mjög gott að detta inn á þær ef manni vantar smá spark í rassinn.
3. Tool – The Pot
Já, ég kann ekki að gera lista án þess að setja Tool á hann. Þótt að Tool sé mjög experimental hljómsveit, þá er grunnurinn þeirra að sjálfsögðu metallinn. Þetta lag er af nýjustu plötunni þeirra, 10.000 Days og er kannski svona það sem er mest “venjulega” metallagið þar.
2. Opeth – The Baying of the Hounds
Sænskur dauðametall! ARRRR!!! Opeth byrjaði sem týpísk sænsk dauðametalsveit en fór að pæla aðeins meira í hlutunum og auka á tónsmíðarnar. Meistaraverkið þeirra er að mínu mati Ghost Reveries sem kom út árið 2005. Virkilega melódísk og flott tónlist sem fer upp og niður, vinstri og hægri á skalanum.
1. Mastodon – The Wolf is Loose
Jebb. Hann er með tattú á enninu. Mastodon er besta metalsveitin sem er starfandi í dag. Þannig er það bara. Þetta lag er fyrsta lagið af þeirra nýjustu plötu Blood Mountain. Þarna vita allir hvað á að gera og eru ótrúlega þéttir og trommarinn sér um að gefa rétta tóninn fyrir lagið og plötuna.
P.S. Ég kemst ekki í tónlistina mína og get ekki sett linka á lögin alveg strax.
Tags: Lamb of God, Mastodon, Opeth, Slipknot, Tool
Flokkað undir Listar | Comments Off
Topp 5 Metallög – Davíð
11.4.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Annar tveggja gestalistamanna vikunnar er Davíð Rósenkrans, málmplokkari mikill og rokkhundur. Hér er innleg hans í umræðuna.

Sennilega frægasta og áhrifamesta þungarokkssveit sögunnar. Lagið sem ég valdi er með því fyrsta sem ég heyrði með Metallica. Ég hef verið svona 12-13 ára gamall þegar systir mín keypti …and Justice for All – diskinn. Þetta var það svaðalegasta sem maður hafði heyrt.
See our mother put to death
See our mother die

Hef alltaf verið hrifinn af þessum armensku Könum. Kraftmiklir og óútreiknanlegir. Lagið er af fyrstu plötu þeirra en hún ber nafn sveitarinnar.
Cursed Earth, Cursed Earth, Cursed Earth, Cursed Earth.
I will never feed off the evergreen luster of your heart all because we all live in the valley of the walls when we speak we can peak from the windows of their mouths to see the land the women chant as they fly up to the sun.

Þungarokkararnir úr regnskógum Brasilíu eiga heiðurssess á þessum lista. Hef hlustað mikið á þá í gegnum árin.
Obliteration of mankind
Under a pale grey sky
We shall arise…

Ég ákvað að Tool ætti heima hérna. Ein af betri hljómsveitum samtímans.
Wear the grudge like a crown of negativity
Calculate what we will or will not tolerate
Desperate to control all and everything
Unable to forgive your scarlet lettermen
1.Meshuggah – Future Breed Machine

Sænsku ofurmennin standa fyrir sínu. Tónlistin er vélræn og minnir á verksmiðju. Þetta lag er alltaf hægt að hlusta á til að koma sér í gott skap.
See me be me same contents same machine
The currency of ours no more flesh and bone
We are to be unaware of what we have been before
Tags: Meshuggah, Metallica, Sepultura, System of a Down, Tool
Flokkað undir Gestalisti, Listar | Comments Off
Topp 5 forritunarlög – Vignir
27.10.2007 - Kristín Gróa
Þessi listi hittir aldeilis nálægt hjartastað. Þar sem að ég forrita flesta daga og hlusta á tónlist þá myndi maður halda að ég hafi dálítið pælt í því hvaða tónlist sé betri en önnur. Það er jú einmitt rétt. Þegar ég er að forrita og vantar góða tónlist með þá þarf tónlistin að vera nokkuð sérstök, helst taktföst og falla ágætlega í bakgrunninn. Svo getur hún líka brotið þær reglur en virkað samt rosalega vel. Fínt er líka stundum að hafa tónlist sem myndi henta vel til að spila á galleiðum Rómverja eða annars staðar þar sem maður vill að þrælarnir sínir vinni meira og betur.
5. System of a Down – Sugar
Einu sinni var ég uppi í skóla að forrita tölvuleik, þrívíddarútgáfu af Bomberman, í heila nótt og hlustaði allan tímann á allt sem að System of a Down hafði gert á shuffle. Þetta var með rosalegri og erfiðari forritun sem ég hef komist í og ég var á billjón, lemjandi á lyklaborðið jafn hratt og lamið var á trommurnar.
4. Korn – Make me Bad
Á tímabili átti ég rosalegan forritunarplaylista sem ég var alltaf með á þegar ég ætlaði í eitthvað rosalegt. Hann taldi hundruði laga og á tímabili byrjaði ég mjög oft á þessu lagi. Það var eitthvað með byrjunina sem kom mér í gírinn.
3. Slipknot – SIC
Slipknot er kjánaleg hljómsveit, það veit ég alveg jafn vel og allir aðrir. En það er þó eitthvað við tónlistina þeira, harkan og sérstaklega tribal trommurnar sem alveg svínvirka á mig, það er aftur þessi sweatshop-galleiðutrommu(“row you bastards!”)-pæling sem er í gangi hér. Þetta lag byrjar á 100 km hraða og maður getur ekki annað en hrifist með.
2. Orbital – Dwr Budr
In Sides með Orbital er líklegast besta forritunarplata sem til er. Hvert lag setur mann í hálfgerðan trans, liggur í bakgrunninum og kemur manni í “zónið”, sem er mikilvægasta tól forritarans.
1. TOOL – Lateralus
Þetta lag er mesta forritunarlag sem ég veit um. Í fyrsta lagi er þetta klassíkst TOOL lag sem hafa gert alveg frábær lög sem henta mörg ótrúlega vel til forritunar. Síðan er sterkur trommuleikur í laginu sem heldur manni við efnið. Það sem gerir þó þetta lag að besta forritunarlaginu er það að það er byggt á Fibonacci röðinni! Atkvæðin sem sungin eru eru í Fibonacci röðinni, sungið er um spíralinn og trommutakturinn ku vera einnig í Fibonacci en ég kann ekki að heyra það.
Honorable mentions(Hljómsveitir sem gera solid forritunartónlist):
Black Sabbath
Daft Punk
Stretch Arm Strong
Vision of Disorder
Nirvana
Tags: Black Sabbath, Daft Punk, Korn, Nirvana, Orbital, Slipknot, Stretch Arm Strong, System of a Down, Tool, Vision of Disorder
Flokkað undir Listar | Comments Off
Topp 5 upphafs trommutaktar – Jón Óskar
6.10.2007 - Kristín Gróa
Á þeim stutta tíma sem ég hafði til að hræra saman í þennan lista rakst ég á ótal lög sem komu til greina, ég hefði til dæmis getað fyllt hann með Led Zeppelin lögum en ákvað að gera það ekki:P Þetta var algjör hausverkur og helst hefði ég viljað gera topp 20 lista en það er víst bannað. Ég er að gleyma fullt af lögum sem eiga heima hérna en þessi lög komu fyrst upp í hugann á mér:
5. Judith – A Perfect Circle (Josh Freese)
Ekki margar nótur en smellpassar við lagið….góður pungur í þessu!!!
(Vert er að geta þess að ég var mjög ánægður með að finna APC lag sem átti skilið að vera á listanu þar sem ég fann því miður ekkert lag með Meat Loaf , Creed eða Dave Matthews Band til að pirra Kristínu
)
4. Ticks & Leeches – Tool (Danny Carey)
Frantic tribal bít sem byrjar þetta lag og setur upp það sem koma skal. Töff!!!
3. Sunday Bloody Sunday – U2 (Larry Mullin Jr.)
Mjög töff bít hjá honum Larry kallinum, smekklegur að vanda. Frábær byrjun á frábæru lagi.
2. Rock and Roll – Led Zeppelin (John “Bonzo” Bonham)
Það er nú eiginlega skylda að hafa þetta lag á listanum…klassík.
1. When The Levee Brakes – Led Zeppelin (John “Bonzo” Bonham)
Þetta grúv er bara svo feitt að það verður að vera í fyrsta sætinu…eitt flottasta grúv ever!!!
Lög sem ég hefði gjarnan vilja setja á listann en hafði ekki pláss fyrir eru t.d. D’yer M’aker með Led Zeppelin, það og Hey Johnny Park með Foo Fighters eru þannig að maður getur ekki annað en lofttrommað við þau. Ants Marching með Dave Matthews Band, hverjum hefði dottið í hug að spila bara þrjú backbeat slög sem intro að lagi???!!! Welcome to the Fold með Filter…annað intro sem er mjög stutt en svínvirkar…Kooks On Parade með Stanton Moore, New Orleans street beat sem fær mann til að hrista á sér rassinn um leið og maður heyrir það. I Got Cash með The Brooklyn Funk Essential, það intro er með jafn mikið attitude og söngvarinn í laginu. Light My Fire með The Doors, bara eitt sneriltrommuslag, ekkert fancy en töff…og síðast en ekki síst Shadows In The Rain með The Police, Steward Copleland með mjög svo smekklegt stöff á hi-hattinn.
Tags: A Perfect Circle, Creed, Danny Carey, Dave Matthews Band, Filter, Foo Fighters, John Bonham, Josh Freese, Larry Mullin Jr., Led Zeppelin, Meat Loaf, Stanton Moore, Steward Copeland, The Brooklyn Funk Essential, The Doors, The Police, Tool, U2
Flokkað undir Listar | Comments Off
Topp 5 byrjunartrommutaktar – Vignir
5.10.2007 - Kristín Gróa
Ég hef oft stært mig af því við listafélaga mína að ég eigi ekkert erfitt með það að klippa listann minn niður. Ég er alltaf að segja að ég eigi svo auðvelt með að ákveða hvaða lag eigi að vera nr. 5 og hvað eigi ekki heima á lokalistanum. Ég ét þessi orð ofan í mig í dag. Þetta var svo ótrúlega erfiður listi, þ.e.a.s. að hafa bara 5 lög á honum. En jæja, here goes…
5. Interpol – PDA
Mikilvægasti parturinn í góðu popplagi eru trommurnar. Það segi ég og ég veit um a.m.k. einn stjörnupródúser sem er sammála mér. Að láta lag byrja á trommunum er að sýna strax í upphafi hver kjarni lagsins er og á hverju er síðan byggt. Interpol menn byrja hér einmitt á mjög sterkum trommuleik sem keyrir lagið áfram alla leið í gegn.
4. Deftones – Digital Bath
Sándið á trommunum er svo ótrúlega flott! Ég veit ekki hvað þeir gerðu til að bassatromman sándaði svona eða að láta heyrast svona í tom-tomunum(kannski getur Jón Óskar sagt mér það) en ég gruna stafrænu byltinguna um að hafa hjálpað þarna til.
3. Radiohead – Airbag
Radiohead menn klipptu upp trommuleik Phil Selway og plástruðu honum aftur saman í tölvunni. Útkoman er virkilega flottur taktur sem að hr. Selway fer samt auðveldlega með að spila live.
2. Queens of the Stone Age – Song for the Dead
Dave Grohl minnir aldeilis á sig í þessu lagi og byrjar lagið með virkilega flottu sólói áður en að hann bombar laginu af stað eins og búmerangi fullu af rokkogróli.
1. Liars – Drum and the Uncomfortable Can
Lagið byrjar á alveg ótrúlega flottum trommuspili sem síðan heldur bara áfram í gegnum allt lagið. Hér er spilað á tvær trommur og flóknar míkrófón uppstillingar notaðar til að ná fram virkilega flottu sándi.
Honorable Mentions:
Sparta – Cut Your Ribbon(lagið sem gaf mér hugmyndina að þessum lista)
Joy Division – Love Will Tear Us Apart
Battles – Atlas
The Smiths – The Queen is Dead
Tool – Ticks & Leeches
Bloc Party – Like Eating Glass
Smashing Pumpkins – Geek U.S.A
P.S. set upp linka seinna
Tags: Battles, Bloc Party, Dave Grohl, Deftones, Interpol, Joy Division, Liars, Queens of the Stone Age, Radiohead, Smashing Pumpkins, Sparta, The Smiths, Tool
Flokkað undir Listar | 2 athugasemdir »
Bestu þrennurnar – Vignir
7.9.2007 - Kristín Gróa
5. Man Man – Six Demon Bag
Á hinni stórgóðu Six Demon Bag eftir brjálæðingana í Man Man er ein skemmtilegasta byrjun á plötu seinni ára. Platan byrjar nefnilega á frábærri þrennu sem hefst með laginu Feathers sem er bara einfalt píanó og karlmannlegur hópsöngur svona eins og gæti komið upp á góðu fylleríi. Svo kemur Engwish Bwudd sem gefur góða hugmynd um geðveikina á plötunni. Þegar Banana Ghost kemur loks er búið að koma manni svo vel í gírinn að áður en maður veit af er hryggurinn manns farinn að bobba upp og niður með melódíkunni.
4. Queens of the Stone Age – Songs For the Dead
Maður er rétt kominn inn í plötuna Songs For the Dead þegar No One Knows skellur á manni. Frábært riff með skemmtilegum útúrsnúningum kemur manni í stuðið þótt maður sé búinn að heyra þetta lag alveg endalaust. Gítarsólóið er líka extra skemmtilegt þegar maður hefur náð að spila það í extreme í Guitar Hero. Keyrslan verður síðan hraðari í First it Giveth og síðan er hækkað um einn gír í viðbót í titillaginu Song for the Dead. Þegar loks kemur break í laginu og maður heyrir Dave Grohl öskra “HEY!” og byrja aftur er þrennan fullkomnuð. Í þessari þrennu má vel sjá hvað lagauppröðun getur verið mikilvæg.
3. Modest Mouse – The Moon & Antarctica
The Moon & Antarctica er einhver langbesta plata seinasta áratugar og er ein af þessum sjaldgæfu perlum þar sem að hvert eitt og einasta lag er gott. Þegar ég var að pæla í þessum lista vissi ég að ég myndi vera með einhverja þrennu úr henni. Ég komst síðan að því að þessi plata inniheldur margar þrennur sem virka vel saman. Hún er í raun í nokkrum hlutum sem eru mismunandi hver öðrum. Það er frekar erfitt að finna hvernig þeir eru mismunandi, það er einhver tilfinning sem er önnur. Þrennan sem ég valdi er byrjunin á plötunni. Fyrst kemur 3rd Planet sem opnar plötuna virkilega vel. Svo er farið yfir í Gravity Rides Everything sem er alveg klassískt Modest Mouse lag. Hápunktinum í þrennunni er síðan náð í Dark Center of the Universe sem endar þennan hluta plötunnar í alveg gríðarlegum hressleika.
2. Tool – Lateralus
Lateralus plata Tool er þeirra besta að mínu mati og hennar besti styrkleiki að mínu mati er hvað hún er sterk heild. Maður setur yfirleitt bara á lag nr. 1 og hlustar á hana alveg til enda. Á henni er líka að finna alveg frábæra þrennu. Þrennan byrjar á stærðfræðilega tilfinningadramanu Parabol / Parabola sem er sjálft í tveimur hlutum en ég tel þetta saman sem eitt lag. Síðan eykst keyrslan í laginu Ticks & Leeches sem fjallar um blóðsugurnar sem Tool menn lentu í í lögfræðivandræðum sínum. Maynard syngur svo rosalega í lok lagsins að hann gat víst ekki sungið almennilega í tvær vikur eftir á. Svo endar þrennan á hápunkti plötunnar, á titillaginu Lateralus sem er meistarastykki í sjálfu sér.
1. Wolf Parade – Apologies to the Queen Mary
Þetta er þrennan sem ég var að hlusta á þegar mér datt í hug að þetta gæti verið skemmtilegur listi. Þessi þrenna byrjar á hressleikanum Shine a Light sem kemur manni virkilega af stað. Þessari keyrslu er síðan haldið áfram í laginu Dear Sons and Daughters of Hungry Ghosts og þegar það lag er búið er hjartað farið að slá hratt og boðefnin fljúga um líkamann þegar ballaðan I’ll Believe in Anything byrjar. Þarna er búið að koma manni í algera geðshræringu og maður syngur með og trommar á stýrið og fólkið í bílnum við hliðina á manni hlær að manni. Þótt að þriðja lagið í þrenningunni sé ekki tengt hinum í tempói þá virka lögin á undan sem frábær upphitun fyrir hápunktinn þegar þeramínið kikkar inn í I’ll Believe in Anything.
Tags: Dave Grohl, Man Man, modest mouse, Queens of the Stone Age, Tool, Wolf Parade
Flokkað undir Listar | 2 athugasemdir »
Topp 5 bassalínur – Vignir
27.8.2007 - Kristín Gróa
Ég lenti í tímavandræðum í seinustu viku þar sem að ég var að reyna að koma systur minni út um helgina og þarf því að brjóta hina heilögu reglu að skila listanum sínum á réttum tíma en ég hef bara svo mikið dálæti á þessum lista að ég verð að fá að setja hann inn.
5. Radiohead – The National Anthem
Eitt besta lag hinnar stórgóðu og ótrúlega vanmetnu Kid A. Þetta lag svínvirkar alltaf á tónleikum algjörlega vegna þessarar bassalínu að mínu mati.
4. Tool – Forty Six & 2
Þetta lag byrjar á alveg ótrúlega flottri bassalínu og fer síðan út í mun stærri og betri hluti. Flottur gítarleikur, vísanir í það að mannskepnunni vantar tvo litninga til að ná fullkomnum, ótrúlegt trommu”sóló” og fleiri pælingar um skuggann sem maður felur sig í.
3. The Who – My Generation
Eitt fyrsta bassasóló rokksögunnar var mér sagt einu sinni að væri í þessu lagi. Uxinn John Entwistle er náttúrulega einn sterkasti, ef ekki sá sterkasti, bassaleikari sem rokksagan hefur fengið upp á arma sína. Hérna fær hann frekar einfalt verkefni en nær samt að setja sitt mark á það.
2. Interpol – PDA
Carlos í Interpol hefur lengi verið einn uppáhalds bassaleikarinn minn. Mjög flottar og oft einfaldar bassalínur sem halda lögunum uppi og mynda breitt og gott undirlag sem gítararnir geta nýtt sér til að svífa yfir. Í þessu lagi kemur síðan eitt flottasta móment Carlos og Interpol í heild sinni. Eftir langa og flotta uppbyggingu þá hættir bassinn og trommurnar á slaginu 3:09 og gítararnir sitja einir og hráir. Tíu sekúndum seinna kemur bassinn inn og svo kemur meiri gítar inn á 3:44. Hérna kemur svo snilldin á slaginu 3:54 þegar bassinn færir okkur í nýjan hluta lagsins. Þessi litla hreyfing puttana á bassahálsinum valda því að ég, lítill pjakkur í Norðurhafi, byrja að hreyfa hálsinn minn ósjálfrátt með.
1. Lou Reed – Walk on the Wild Side
Besta bassalína rokksins. Punktur.
Tags: Interpol, Lou Reed, Radiohead, The Who, Tool
Flokkað undir Listar | 1 athugasemd »





