Topp 5 erlendar plötur ársins – Kristín Gróa

6.1.2012 - Kristín Gróa

Að venju eru tíu runners up í engri sérstakri röð.

Kurt Vile – Smoke Ring For My Halo
Youth Lagoon – The Year Of Hibernation
tUnE-yArDs – W H O K I L L
EMA – Past Life Martyred Saints
The War On Drugs – Slave Ambient
TV On The Radio – Nine Types Of Light
Unknown Mortal Orchestra – Unknown Mortal Orchestra
Iron & Wine – Kiss Each Other Clean
Feist – Metals
Steven Malkmus and the Jicks – Mirror Traffic

5. John Maus – We Must Become The Pitiless Sensors Of Ourselves

Þessi slapp inn á þennan lista á síðustu metrunum. Ég fékk hana í hendurnar í ágúst og gaf henni bara engan séns því þá var ég með fullar hendur af nýrri tónlist. Það er líka dálítið yfirþyrmandi að setja þessa plötu af stað í fyrsta sinn og fá yfir sig ótrúlega háværa syntha-hríðskotaárás. Ég fór hins vegar að hlusta núna í nóvember og var alveg miður mín yfir því að hafa ekki gefið þessu séns strax. Þetta er alveg frábær plata. Ótrúlega hallærislega skrítin en samt svo töff um leið. Allir þessir eitís synthar og röddin sem minnir mig á Ian Curtis sem er líka eitís en samt á svo allt annan hátt en syntharnir. Undir öllu eru svo lögin sem eru alveg gjörsamlega frábær og fá mann ýmist til að dansa (Quantum Leap) eða verkja í hjartað (Believer).

John Maus – Quantum Leap

4. Bon Iver – Bon Iver

Það mun örugglega aldrei nein plata hafa jafnmikil áhrif á mig og For Emma, Forever Ago hafði (og hefur) enda varð mér á að ofspila hana akkúrat þegar ég var að ganga í gegnum erfiðasta tímabil lífs míns. Fyrir vikið stóðst þessi engan samanburð við þá plötu og ég náði ekki alveg að tengjast henni lengi vel en staðreyndin er sú að þetta er alveg frábær plata. Hún kom eiginlega pínu aftan að mér og svo er mjög góð tilbreyting að geta hlustað á Bon Iver án þess að fá tárin í augun.

Bon Iver – Towers

3. Lykke Li – Wounded Rhymes

Ég fílaði Youth Novels aldrei sem plötu en elskaði ákveðin lög af henni svo mikið að ég er enn að ofspila þau. Dance Dance Dance verður t.d. alltaf besta lagið til að spila þegar ég er á leiðinni á tjútt og er enn heima á sokkabuxunum að setja á mig ælæner með rauðvínsglas við höndina (já það er eitthvað sem gerist reglulega). Það er aðeins minna stuð hér en á fyrri plötunni en það gerir ekkert til því melankólía er líka góð og verður jafnvel hressandi hjá Lykke Li.

Lykke Li – Unrequited Love

2. Shabazz Palaces – Black Up

Rappið er alltaf að færa sig upp á skaftið hjá mér. Á síðasta ári náði Flockaveli með Waka Flocka Flame inn á runners up listann minn og þetta árið set ég í annað sætið alveg stórkostlega plötu sem vill svo til að er rappplata. Þegar ég setti þessa plötu í gang í fyrsta sinn þá rann ég svo blint í sjóinn að ég vissi ekki hvort ég var að fara að að hlusta á popp eða dauðametal. Það sem ég heyrði var frumlegasta og óvenjulegasta plata ársins. Að segja að þetta sé rapp nær eiginlega ekki utan um það sem er að finna hérna því þó þetta sé rapp þá er þetta svo miklu meira líka. Það er eiginlega ekki hægt að flokka þetta. Lögin flæða á svo ótrúlegan hátt að ég býst alltaf hálft í hvoru við því að allt fari út af sporinu en það gerir það aldrei. Sama lagið hefur mörg stef sem eru algjörlega ólík en tvinnast samt saman og fara í hringi. Ég get ekki útskýrt þetta nógu vel en þetta sprengdi á mér hausinn eins og merkur maður sagði eitt sinn.

Shabazz Palaces – Endeavors for Never (the Last Time We Spoke You Were Not Here I Saw You Though)

1. PJ Harvey – Let England Shake

Augljóslega fyrirsjáanlegasta valið á plötu ársins þar sem hún hefur verið nálægt toppnum á öllum árslistum sem ég hef lesið. Málið með þessa plötu er bara að ég vissi það eftir að ég hafði hlustað á hana í allra fyrsta sinn að þetta yrði besta plata sem ég myndi heyra á árinu. Það er ekki oft sem ég upplifi það að verða svona yfir mig heilluð af plötu við fyrstu hlustun og ég tel mig heppna ef ég upplifi það einu sinni á ári. Ég fattaði eftir að ég gerði lagalista ársins að þangað rataði ekkert lag af þessari plötu en það er ekki af því að þau ættu ekki heima á þeim lista heldur er erfitt að velja eitt lag umfram annað og þau mynda svo órjúfanlega heild að það er erfitt að meta þau án hvers annars. Ég gæti skrifað langa lofræðu um þessa plötu og aðra um PJ Harvey en það er kannski óþarfi. Það sem hún hefur fram yfir marga tónlistarmenn sem gáfu út spennandi plötur á árinu er umfram allt reynsla og aldur en án þessa held ég að það hefði ekki verið hægt að gera þessa plötu. Þetta er algjört meistaraverk.

PJ Harvey – The Last Living Rose

Tags: , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Topp 5 erlendar plötur ársins 2011 – Georg Atli

6.1.2012 - Georg Atli

Það er komið að erlendu plötunum. Eins og venjulega átti ég í erfiðleikum með að velja bara 5, það virðist nefnilega alltaf koma fleiri en 5 góðar plötur á ári. Fyrst kemur listi af plötum sem komust næstum því inn á listann eða mér finnst sérstaklega vert að minnast á.

Bill Callahan – Apocalypse
Fucked Up – David Comes to Life
Unknown Mortal Orchestra – Unknown Mortal Orchestra
Bon Iver – Bon Iver
Puzzle Muteson – En Garde
Feist – Metals
M83 – Hurry up we‘re Dreaming
King Creosote & John Hopkins – Diamond Mine (frábær plata, ætti 6. sætið á listanum mínum)
St. Vincent – Strange Mercy
Wye Oak – Civillian
Balam Acab – Wander/Wonder
Iceage – New Brigade
John Maus – We Must Become the Pitiless Censors of Ourselves
Toro y Moi – Underneath the Pine

Topp 5 plötur ársins

5. Shabazz Palaces – Black Up

Þessi náði inn á topp 5 hjá mér núna á síðustu vikunum fyrir birtingu. Hip-hop sem er meira en “bara” hip-hop. Allt gríarlega flókið eitthvað og útpælt og virkilega flott. Svona plata sem er góð og vinnur svo bara á. Pínu tilgerðarleg laganöfn samt.

Lag: 04 A Treatease Dedicated to the Avia 1

4. James Blake – James Blake

Flott plata frá konungi dubstep. Hún er hæg og róleg en ólgar samt undir. Hann er svo hæpaður að ég varð sjálfkrafa hikandi og fráhverfur honum en svo hlustaði ég á plötuna og fannst hún virkilega góð.

Lag: Limit to Your Love

3. tUnE-yArDs – Who Kill

Skemmtilegt að heyra eitthvað svona ferskt. Merrill Garbus græðir reyndar svolítið á frábærum Airwaves tónleikum í ár, þeir hífa þessa plötu aðeins upp. Það er ekki eitt leiðinlegt lag á þessari plötu.

Lag: Gangsta

2. Kurt Vile – Smoke Ring for my Halo

Slacker plata dauðans. Það er eins og Kurt Vile nenni ekki einusinni að syngja lögin og þau rétt svo leka út úr hátölurunum manns en samt svo mikið pönk á köflum… slacker pönk?. Frábær gítarleikur, letileg röddin og kaldhæðnin gera þessa plötu svo frábæra að þetta var eina platan í ár sem átti smá séns í fyrsta sætið mitt.

Lag: Baby’s Arms

1. PJ Harvey – Let England Shake

Nánast fullkomin plata, laaaaang best á árinu (þó að það hafi samt margt gott komið út). Frábær í alla staði og PJ Harvey sannar það enn og aftur að hún er svalasta konan í rokkinu í dag! Hárbeitt plata sem skítur föstum skotum á England og þá sérstaklega stríðin sem þau hafa tekið þátt í (og bara stríðsrekstur almennt). Lögin fjalla öll um liðna tíma en eiga samt sem áður öll vel við nútímann líka Þetta er svona “concept” plata en samt ekki alveg. Let England Shake er blóðug, nöturleg, skerandi beitt og mest af öllu ömurlega falleg.

Lag: The Glorious Land

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Topp 5 lög ársins – Georg Atli

30.12.2011 - Georg Atli

Ég á alltaf í erfiðleikum með þennan lista, ég er einhvern vegin bara þannig að ég er miklu meira fyrir plötur en stök lög… eða það held ég alltaf, en svo fer ég að hugsa þetta aðeins betur og þá koma alltaf fullt af lögum í hugan á mér sem mér finnst alveg frábær, með eða án hinna laganna á plötunni. Mér fannst líka ótrúlega erfitt að skera niður í þessi lög og enn erfiðara að skera niður í topp 5 (sem sést líklega best á því að þau eru 6), öll hin lögin sem ég nefni eru nefnilega líka frábær. Hérna koma sem sagt lög ársins að mínu mati, fyrst nokkur sem komust ekki alveg á listann (í engri sérstakri röð) og svo topp fimm sex lögin mín.

Cass McCombs – The Lonely Doll
Kurt Vile – Baby’s Arms
Lower Dens – A Dogs Dick
PJ Harvey – The Words that Maketh Murder
James Blake – Wilhelm Screams
Foster the People – Pumped up Kicks
Skurken – Stiklur
Tune-Yards – Gangsta
Reykjavík! – Sneak
Unknown Mortal Orchestra – Ffunny Ffrends
FM Belfast – Happy Winter
Fist Fokkers – Emilio, Don by the Schoolyard
IMMO – Barcelona
Sir Michael Rocks – I See
Samaris – Góða Tungl

Topp 5-6 lög ársins:

5. – 6. Lana del Rey – Video Games

Söngurinn rétt svo lekur útúr henni en er samt ótrúlega flott.

5.- 6. Snorri Helgason – River

Frábært lag, frábær plata. að velja þetta lag fram yfir hin lögin á plötunni er samt smá svindl því að það græðir á myndbandinu, sem mér finnst vera vel heppnað.

4.The Antlers – I Don’t Want Love

Falsettan nær mér alltaf! Mér finnst The Antlers vera vanmetin hljómsveit, sé eiginlega eftir því að hafa sleppt þeim á Airwaves…

3. Náttfari – Lævís Köttur

Náttfari gerðu virkilega góða plötu og þetta lag er einfaldlega rosalegt.

2. Mugison – Stingum Af

Þetta er eins nálægt þvíað vera jafntefli og það getur orðið… en samt ekki. Mugison gaf út rosa flotta plötu og þetta lag er frábært, nær einhvern veginn til allra og fangar íslenskan sumarandi (úff.. háfleygt!) betur en flest annað.

1. Gotye – Somebody I used to know

Ég er búinn að vera með þetta lag á heilanum síðan ég heyrði það fyrst, eina lagið sem að ég veit um (sem kom út í ár) sem náði til breiðaðr hóps en Mugison. Virkilega flott popp.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Georg Atli, Listar | Comments Off

Topp 5 góð plötucover

26.8.2011 - Kristín Gróa

Það er mikið til af góðum plötucoverum en það líka til alveg ótrúlega mikið af óspennandi coverum. Góðu plötucoverin eru talsvert færri en hin en þau eru samt of mörg til að það sé auðvelt að gera þennan lista. Eftir að hafa hugsa mikið um þetta þá ákvað ég á endanum að halda mig við þau cover sem spruttu fyrst upp í huganum þegar ég sá efni listans. Þetta eru ekkert endilega þau bestu en þetta eru þau eftirminnilegustu í augnablikinu.

5. Unknown Mortal Orchestra – Unknown Mortal Orchestra

Þessi plata nær nú líklega bara á listann því ég er búin að vera að hlusta svo mikið á hana upp á síðkastið. Það er þó ekki hægt að neita því að coverið er mjög eftirminnilegt og sérstakt. Ég hélt kannski að þetta væri tilbúin mynd því húsið er svo sérstakt og framtíðarlegt en þegar ég fór að gúgla þá fann ég Pitchfork færslu þar sem Ruban Nielson útskýrir coverið. Þetta er sem sagt alvöru bygging í gömlu Júgoslavíu (lesið nánari útskýringu hér). Já og btw ef þið hafið ekki heyrt lagið Ffunny Ffrends þá er algjör skylda að tékka á því.

Unknown Mortal Orchestra – Ffunny Ffrends

4. The Mars Volta – Frances The Mute

Ég held að þetta cover hafi verið svona 80% af ástæðunni fyrir að ég keypti þessa plötu upphaflega. Hún er reyndar drullugóð. Coverið er samt svo ótrúlega magnað og eiginlega hálf sjokkerandi.

The Mars Volta – The Widow

3. Subtle – For Hero: For Fool

Þessi plata er kreisí og coverið sem sýnir aðalsöguhetju plötunnar, Hour Hero Yes, er ennþá meira kreisí. Mjög eftirminnilegt og töff cover.

Subtle – The Mercury Craze


2. Yeah Yeah Yeahs – It’s Blitz!

Mér finnst þetta bara svo töff. Einföld hugmynd en nær einhvernveginn að fanga bæði nafn plötunnar og tónlistina á henni fullkomnlega.

Yeah Yeah Yeahs – Hysteric

1. The Strokes – Is This It?

Þetta er auðvitað alveg rosalega klámfengið cover en ég hef samt aldrei horft á það þannig. Þetta er bara svo einfalt og striking og ótrúlega eftirminnilegt. Greyið Bandaríkjamennirnir fengu alveg ótrúlega óeftirminnilegt cover í staðinn!

The Strokes – Soma

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin