2008 – zvenni

2.1.2009 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Hlustaði á nokkrar plötur á árinu, uppgötvaði nýjar og rakst á gamlar. Allt í allt fínt ár.

í engri sérstakri röð…

Dig, Lazarus, Dig!!! – Nick Cave & The Bad Seeds

Link
(hér sést Cave afla 70. þús punda til góðgerðarmála með því að taka smell Destiny’s Child’s Bootylicious í frægafólkskarókípartíi)

Gamli góði Cave með vondu fræjunum sínum getur enn gert góða plötu, hversu margir eldast og halda samt áfram að gera góða hluti? ekki allir… er alla veganna sáttur við kauða og plötuna hans, og hér er uppáhaldslagið hans Gulla frænda af henni, skál Gulli!

More news from nowhere

Horses – Patti SmithLink

Man ekki alveg hvenær ég keypti þessa plötu, máski á Glastonbury í hitteðfyrra… en alla veganna þá gleymdist hún í rekkanum og aðrar voru teknar fram yfir. Óvænt datt hún svo inn í haust með miklum og góðum afleiðingum.

Free Money

For Emma, Forever Ago – Bon Iver


Hæg og mjúk plata sem kom mér mikið á óvart, búinn að hlusta afar mikið á hana í ár. Bon Iver rokkar… en ekki bókstaflega.

Blindsided

Astral Weeks – Van Morrison


Önnur plata sem ég átti til í rekkanum en gaf mér aldrei tíma til að stúdera fyrr en síðasta sumar. Þurfti nokkrar hlustanir en var vel þess virði. Mæli með plötunni fyrir fólk sem langar að kynna sér Manninn, ef henni er gefinn smá tími og athygli hverfur maður inn í þverflautu- og strengjaskotnar stjörnuheimsvikur Van Morrisons.

Sweet Thing

Með Suð Í Eyrum Við Spilum Endalaust – Sigur Rós


Plata sem ég keypti mér í haust og er enn að hlusta á. Að mínu mati óhefðbundnasta plata sveitarinnar hingað til, þ.e. sú venjulegasta… en hei, hefðbundið hér, óhefðundið þar, Girls will be boys and boys will be girls, Its a mixed up muddled up shook up world except for lola
Lo-lo-lo-lo lola…

Íllgresi

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Óflokkað | Comments Off

gloríur…

21.10.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn


Partur af bresku innrásinni í Ameríku var norður írska Belfast bandið Them með Van Morrison á munnhörpu og míkrafón. Einn helsti smellur þeirra var lagið Gloria frá árinu 1964 sem var b hlið Baby, Please Dont Go. Þetta einfalda þriggja gripa lag hefur verið tekið upp af mörgum listamönnum í gegnum tíðina og margprófaðar vísindalegar tilraunir hafa sýnt fram á að ef gítar sé hent niður stigagang spili hann Gloríu á leiðinni niður.


Þó ég fíli Doors hef ég aldrei verið neinn ofuraðdáandi. Þeir eiga þó óneitanlega nokkur svakaleg lög og eflaust hefur það verið mikil upplifun að sjá þá á tónleikum. Sóðalegur og sjarmerandi Morrison miðlandi undarlegri indíánavisku sem blandast saman við einhvers konar klassíska-flamingó-djasssúpu. Gloría Doors er live upptaka og gott dæmi um sækadelikshamanismatransklámsögustíl söngvarans. Sögur segja að Doors hafi hitað nokkru sinnum upp fyrir Them í gamla gamla daga og Morrissynirnir tveir hafi tekið magnaða tuttugu mínútna Gloríu í lok síðustu tónleikanna.


Er soldið heillaður af Horses plötu Patti Smith þessa dagana og Gloría hennar finnst mér afar mögnuð. Smith hoppar auðveldlega á milli hugljúfs og innilegs söngs í byrjun lagsins og suddaskapar í lok þess sem gerir það afar Patti-legt og skemmtilegt í alla staði.

Gloria – Them
Gloria – Doors
Gloria – Patti Smith

Tags: , , , ,
Flokkað undir Óflokkað | Comments Off

Strengir – zvenni

3.10.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Ég er einfaldur maður með einfaldar þarfir og að mínu mati eru strengjaútsetningar vandmeðfarnar. Listin er að nota þær aðeins í neyðartilvikum og þá aðeins til að styrkja hin hljóðfærin og heildarmyndina. Varast skal að flækja hlutina ef þess þarf ekki.

Astral Weeks – Van Morrison


Astral Weeks af plötunni Astral Weeks sem er loksins smollin inn í hausinn á mér. Búið að taka smá tíma en núna næ ég henni varla úr spilaranum. Strengjaútsetningar eru alltaf í bakgrunni laganna og hjálpa til við hæga stígandann í mörgum þeirra, eins og þessu hérna.

Wond´ring aloud – Jethro Tull


Snyrtileg strengjanotkun. Kemur hægt og róleg meira inn í lagið án þess að fara yfir strikið. Styður þetta fallega og mannlega ástarlag á afar smekklegan hátt.

Perfect Day – Lou Reed


Mick Ronson og David Bowie hjápuðu Reed með Transformer plötuna. Sá einu sinni viðtal við Reed þar sem hann var í stúdíói að tala um upptökuferlið á plötunni mörgum árum seinna. Hann spilar lagið og lækkar niður í öllu nema strengjunum í endanum á “Your gonna reep just what you sow” partinum, kreditar Ronson fyrir útsetningunni, lygnir aftur augunum og leyfir strengjunum að klára lagið.

Eskimo – Damien Rice


Var aldrei alveg viss með Damien Rice. Ekki viss um hvort hann hefði efni á þessari ofurdramatík sem einkennir textana hans. En þetta lag finnst mér toppa allt og snúa því á haus. Það að skella fullum strengjum í síðasta lagi plötunnar og klímaxa það svo með óperusöngkonunni syngjandi um eskimóann finnst mér svo fyndið að ég fyrirgef honum allt hitt þunglyndisvælið og í raun sættist við það. Ef hann getur gert sona grín að þessu öllu gæti verið að hann sé ekkert að plata með hitt.


Starálfur – Sigur Rós
Þó eru undantekningar. Sigur Rós má alltaf nota strengi, það er bara flott. Líklega af því að það er engin tilgerð í gangi hjá þeim.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Topp 5 Party Shuffle Spectacular – Vignir

25.4.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

5. Alexisonfire – 44 Caliber Love Letter
Opnunarlag fyrstu plötu hardcore hljómsveitarinnar Alexisonfire. Byrjar ekkert voðalega vel, gítarinn hljómar falskur og svona en svo stórbatnar þetta. Þetta lag og öll þessi plata gefur mér gott nostalgíukast aftur til baka þegar ég var á lokaárinu mínu og var að vinna lokaverkefnið mitt og þessi plata var í spilun hjá öllum meðlimum. Virkilega góð plata sem ég mæli eindregið með.

4. The White Stripes – Conquest
Frábært lag af nýjustu plötu The White Stripes sem ég komst löngu seinna að að væri cover af gömlu 50s lagi með Patti Page. Skemmtilegt lag samt með virkilega flottu samspili gítars Jack White og mexíkóskum trompetleik.

3. AC/DC – Givin the Dog a Bone
Þetta er svo subbulegur texti:
She take you down easy
Going down to her knees
Going down to the devil
Down down at ninety degrees
She blowing me crazy
’til my ammunition is dry
She’s using her head again
She’s using her head
She’s using her head again
I’m justa giving the dog a bone

Einhver asnalegur macho háttur í gangi þarna. Back in Black er alveg skemmtileg plata en maður fær algjöran kjánahroll ef maður fer að hlusta á textann í þessu lagi.

2. Radiohead – Climbing up the Walls
Randomið var aldeilis gjöfult hér. Besta lag bestu plötu Radiohead. Þýðir það að þetta sé besta lag Radiohead? Nei kjáni! Það er There, There. En já, Climbing up the Walls. Þetta lag er svo nærri fullkomnun að það er bara ótrúlegt. Einn flottasti taktur sem Phil Selway hefur gert og þá er mikið sagt. Gítarleikur
Ed O’Brien leikur sér að eldinum og hangir við það að missa hann í feedback. Texti Thom Yorke er frábær og virkilega vel sunginn. Colin Greenwood sér um halda laginu saman með góðum bassaleik og bróðir hans Johnny leikur sér að fullt af tækjum til að fullkomna hljóðheim lagsins. Við sjáum sönnun 1A:

1. Jeff Buckley – The Way Young Lovers Do
Live cover af gömlu Van Morrison lagi. Fallegur texti sem á vel við rödd Buckley.
I kissed you on the lips once more
And we said goodbye just adoring the nighttime
Yeah, thats the right time
To feel the way that young lovers do

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar | 2 athugasemdir »

Bob Dylan ábreiður – zvenni

31.8.2007 - Kristín Gróa

William Shatner – Mr. Tambourine Man
Meistari hins mælta orðs með frumlega og skemmtilega ábreiðu.

Ramones – My Back Pages
Ramones taka þetta bara eins og vanalega, engar flækjur eða vesen, bara hresst og skemmtilegt.

Johnny Cash & June Carter – It Aint Me Babe
Afbragðs “naw naw naw” hjá hjúunum.

Nick Cave & the Bad Seeds & Co.- Death is not the End
Þverþjóðlegur flokkur syngur með Cave, löndur hans Kylie Minogue og Anita Lane, þjóðverjarnir Blixa Bargeld og Thomas Wydler (þessi smámælti) og hinn írski Shane McGowan. Fyrirtaks endalag á Murder Ballads. Eftir allann hryllingin sem vall úr Cave og co kemur smá vottur af bjartsýni “just remember that death is not the end”.

Van Morrison – It´s All Over Now, Baby Blue
Öflug útgáfa með stefinu sem Beck fékk lánað seinna og setti í Jackass. Held að þetta sé uppáhalds Dylan ábreiðan mín.

Tags: , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Topp 5 Dylan cover

31.8.2007 - Kristín Gróa


Jimi Hendrix fær honourable mention vikunnar en uppreisnarseggurinn í mér getur bara ekki fengið sig til að elta hjörðina og segja að All Along The Watchtower sé besta cover allra tíma. Það er gott cover en kommon, hleypum öðrum að!

5. Melanie – Lay Lady Lay

Hippadrottningin Melanie skrúfar upp í dramatíkinni og sleppir ofvirkum þverflautuleikara lausum en samt gengur þetta fyllilega upp. Mjög hippalegt þó.

4. The Byrds – My Back Pages

Það voru fáir duglegri við að covera Dylan heldur en The Byrds enda er ég með greatest hits plötuna þeirra og þar eru heil átta Dylan lög! Mér finnst þetta standa langt upp úr þeim, einfaldlega því harmónískur söngurinn og hringlandi hljóðfæraleikurinn undirstrikar alla styrkleika lagsins. Svo er live útgáfan af þessu lagi þar sem Dylan spilar það með Byrdsaranum Roger McGuinn, Tom Petty, Neil Young, Eric Clapton og George Harrison ansi mögnuð en þar spila þeir einmitt Byrds útgáfuna í stað þeirrar upprunalegu.

3. Nina Simone – I Shall Be Released

Örugglega besta lagið frá trúartímabili Dylans er hér flutt í fallegum gospelbúningi af sjálfri Ninu Simone. Hún segir við hljómsveitina í upphafi upptökunnar You’re pushing it… it’ll go out by itself… don’t put nothing in it unless you can feel it og ég trúi virkilega að hún hafi fundið það. Það hlýtur að vera galdurinn við að taka gott cover, að finna lagið eins og það væri þitt eigið.

2. Nico – I’ll Keep It With Mine

Æjj ég veit ég er eiginlega að svindla því þetta er ekki beint eiginlegt cover lag. Dylan lét Nico fá þetta lag til að setja á Chelsea Girl og það kom ekki út með honum sjálfum fyrr en mörgum árum seinna og þá á samtíningnum Biograph. Þetta er aftur á móti eitt af ótalmörgu uppáhalds lögunum mínum svo ég stenst einfaldlega ekki freistinguna að setja það á listann… það sleppur alveg er það ekki? ;)

1. Them – It’s All Over Now Baby Blue

Þetta er nú alveg með fallegri Dylan lögum en svo er þar að auki búið að bæta við svo flottu stefi að Beck ákvað að nota það bara óbreytt í laginu Jackass með svona líka góðum árangri. Þetta stef og geltið í Van Morrison taka orginalinn og snúa honum á hlið en halda samt í sömu tilfinninguna. Er það ekki þannig sem gott cover á að vera?

Tags: , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 1 athugasemd »

Topp 5 cover lög – Kristín Gróa

13.7.2007 - Kristín Gróa

5. Cat Power – I Found A Reason (The Velvet Underground)

Mér finnst þessi útgáfa alls ekkert betri en orginallinn en hins vegar þá er þetta uppáhalds Cat Power lagið mitt. Mér finnst snilldin við þetta í raun sú að útgáfurnar eru um leið rosalega ólíkar og textinn ekkert alveg sá sami en samt er einhvernveginn sami andinn í þeim báðum.

4. The Kingsmen – Louie Louie (Richard Berry)

Þetta lag þekkja allir enda hafa ótalmargir listamenn koverað það. Það er hins vegar þessi útgáfa sem er eiginlega “default” þó hún sé ekki sú upprunalega. Sumir kalla þetta fyrsta pönklagið og það er kannski nokkuð til í því.

3. Flying Lizards – Money (Barrett Strong)

Hér er annað lag sem margir hafa tekið og þó sjálfir Bítlarnir séu þar á meðal þá finnst mér þessi útgáfa samt betri. Hún er öðruvísi, svo mikið er víst.

2. Them – Baby Please Don’t Go (Big Joe Williams)

Orginallinn er blúsaður og flottur en þessi ofsafengna útgáfa er mikið þekktari. Van Morrison geltir út úr sér textanum og session maðurinn ungi Jimmy Page spilar gítarriffið flotta.

1. Lou Reed – This Magic Moment (The Drifters)

Lou Reed tekur þetta klassíska lag sem allir þekkja og gjörsamlega snýr því á haus. Þetta er sama lagið en það er svo algjörlega óþekkjanlegt að fyrst fattaði ég ekki einu sinni hvaða lag þetta var. Svona á gott kover að vera… taka flott lag, setja sitt mark á það og skila einhverju alveg einstöku.

Tags: , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | Comments Off

Topp 5 vorlög sem fá mann til að langa að hlaupa um í grasinu og kasta frisbí og minna mann á að lífið er ekkert svo slæmt sko! – Kristín

13.4.2007 - Kristín Gróa

1. The Beach Boys – Good Vibrations
I’m pickin’ up good vibrations
She’s giving me excitations

Beach Boys = vor og sumar all rolled into one:)

2. Van Morrison – Brown Eyed Girl
Laughin’ and a runnin’
Skippin’ and a jumpin’

Það mætti halda að ég væri mesti Van Morrison aðdáandi í heimi miðað við hversu oft hann virðist ætla að dúkka upp á listunum mínum. Hann er nefnilega ekki bara rauðhærður heldur hefur hann gert eitt vorlegasta lag allra tíma. Ahh svo gaman!

3. Desmond Dekker – Intensified Festival 68
We’re having a party
I hope you are hearty

Hvar væri vorið ef maður hefði ekki eins og einn Jamaican til að koma manni í gírinn?

4. Lily Allen – LDN
Sun is in the sky, oh why oh why
Would I wanna be anywhere else?

Þetta lag fær mig bara til að brosa og minnir mig þar að auki auðvitað á London þó lýsingarnar á borginni séu reyndar ekki beint fagrar. Viðlagið bætir það samt svo margfalt upp!

5. Violent Femmes – Blister In The Sun
When I’m out walking
I strut my stuff
And I’m so strung out

Já og að lokum er það smá Violent Femmes… þetta er náttla klassík.

Tags: , , , ,
Flokkað undir Kristín Gróa, Listar | 2 athugasemdir »

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin