Topp 5 Airwaves tilhlökkun *Gestalisti* – Dr. Gunni

7.10.2010 - Georg Atli

Annar gestalistamaðurinn í dag er enginn annar en Dr. Gunni, en hann er eins og alþjóð veit mikill tónlistarspekingur og hefur gefið út spil og stjórnað útvarpsþáttum og sjónvarpsþáttum og skrifað í blöðin og bækur og ég veit ekki hvað og hvað. Hann er líka einn af vinælli bloggurum landsins og það er alveg þess virði að kíkja á síðuna hans. Ekki nóg með það þá er goðsagnakennda hljómsveitin hans S/H Draumur eitt af aðalnúmerum Airwaveshátíðarinnir í ár. Það er líka vert að minnast á það að sú hljómsveit ætlar að endurútgefa plötuna sína Goð og það ætti að vera hægt að kaupa snilldina í stafrænni forsölu hér! (það er m.a.s. hægt að hlusta frítt!)

OG svo á hann líka afmæli í dag, þannig að topp 5 óskar Dr. Gunna til hamingju með afmælið!

S/H Draumur er að spila á NASA á fimmtudag kl. 23:00

Dr. Gunni – 5 atriði á Airwaves 2010

Sko, Airwaves er algjör frumskógur og alveg frábærlega mikið af fínu stöffi þarna. Ég tók þá ákvörðun að velja bara erlent efni, en það er auðvitað geðveikt mikið af spennandi íslensku stöffi líka. Ég mæli með Airwaves fitubrennslu mixinu 2010 (http://this.is/drgunni/mp3/Airwaves-fitubrennsla-2010.mp3), þar sem þú heyrir 30 erlend Airwaves bönd og getur brennt af þér fitu í leiðinni. En ok, skellum oss í þetta:

5. Toro Y Moi / Neon Indian
Hér eru tvö atriði sem merkimiðanum “Chillwave” hefur verið slengt á. Hljómsveitin Beach House er líklega þekktasta bandið í þessari deild. Músík er einhvers staðar mitt á milli Beach Boys, House tónlistar og My Bloody Valentine – nokkuð ferskt og svalandi stöff. Toro Y Moi er aðallega einn gaur, Chazwick Bundick, og fyrsta platan hans Causers of This kom út á þessu ári og er nokkuð fín. Neon Indian er í svipuðum fílingi, en það er bara meira popp í gangi hjá honum og meira bít. Það verður gaman að sjá hvernig þetta stöff er læf. Toro Y Moi er á Venue á föstudaginn kl. 23.30, Neon Indian er líka á Venue, en á laugardaginn kl. 23.30.

Toro Y Moi – Blessa á YouTube

4. Tunng
Bresk “þjóðlaga-rafræna”. Flott popp umvafið flottum rafstælum, án þess að það sé keyrt í kaf. Flottar raddir og gott stöff. Tékkaðu á síðustu tveimur plötunum með þeim, sú frá 2007, Good Arrows er tilraunakenndari. Svo held ég að þetta sé helvíti fínt læf. Tunng spila kl. 21.30 á laugardaginn í Listasafninu.

3. Diamond Rings
Demantahringirnir er nú bara einn Kanadamaður sem heitir John O’Regan. Hann er nýbyrjaður, fyrsta platan hans heitir Special Affections og er að koma út. Þetta er dáldið gott og hressandi indie popp, melódískt og röddin í gaurnum minnir mig á David Bowie, en samt bara smá. Ég vona að hann mæti með band en verði ekki bara einn eins og kleina með kassagítar, því það er mikið lagt í útsetningar í þessari tónlist og það væri gaman að sjá þetta á góðu blasti. Diamond Rings er á Venue á laugardaginn kl. 23.30.

2. Crocodiles / The Vandelles
Tvö góð bandarísk, sem koma úr sama bekk og Singapore Sling, þ.e. það má finna fyrstu plötu Jesus & The Mary Chain í plötuskápunum þeirra, plús Velvet Underground, The Sonics, The Stooges, Suicide o.s.frv. Það er þó alltaf einhver framþróun og hvorugt bandið – ekki frekar en Singapore Sling – að stæla hrátt. Crocodiles halla sér ítrekað í átt að taktföstu krautrokki og eru með góðan sens fyrir melódískri uppbyggingu. Tvær góðar plötur eru komnar út með þeim, sú seinni, Sleep Forever, var tekin upp af Simian Mobile Disco manninum James Ford. Minna bözz er í kringum The Vandelles, en þetta er þétt band engu að síður og fullt af góðu hrámeti á nýjustu plötunni þeirra, Del Black Aloha. Crocodiles spila á Sódómu á laugardaginn kl. 22.50. The Vandelles spila í Iðnó á föstudaginn kl. 20.
 

1. Timber Timbre
Ef ég mætti bara sjá eitt band á Airwaves myndi ég sjá þetta. Bandið er eins manns, aðalkarlinn heitir Taylor Kirk og er Kanadamaður, en hann er væntanlega með eitthvað lið með sér þegar hann spilar læf. Hann hefur víst gert 3 plötur, en ég hef bara heyrt þá nýjustu, samnefnda bandinu, sem er ógeðslega góð. Taylor er með þýða og flotta rödd og tónlistin er svona einhvers staðar á milli Julee Cruise (David Lynch dívan) og örlí Nick Cave með dassi af Mazzy Star og jafnvel furðumenninu Jandek – en samt er útkoman algjörlega sérstök. Ég heyrði lagið Magic Arrow í einum Breaking Bad þætti og vissi ekkert hvað þetta var. Þetta var bara svo flott að ég linnti ekki látum fyrr en ég var búinn að finna úr úr þessu á netinu. Timber Timbre spila kl. 19.30 á laugardaginn í Listasafninu.

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Airwaves, Georg Atli | Comments Off

Topp 5 listamenn sem bera aðeins eitt nafn – Clara

19.2.2010 - Clara

Ég ákvað að gera topp 5 kvenkynslistamenn sem bera aðeins eitt nafn

Það er alveg til nóg af strákum og ég var komin með langan lista, en stelpurnar voru nú bara nokkuð góðar þannig að þær fá sér lista frá mér!

5. Björk – bella símamær
Nuff said!

4. Feist – 1,2,3,4, fallegt, catchy og litríkt myndband… mmmmmm….
Leslie Feist ein af meðlimum hinnar stórgóðu hljómsveitar Broken Social Scene sem rokkar eyru allra sem heyra er einnig frábær sóló artisti og síðasta plata hennar frá 2007 The Reminder fór varla framhjá neinum sem elskar tónlist…… frábær plata sem ég get hlustað á endalaust með hvern smellinn á eftir öðrum sem koma mér sólskins skap….. koma svo í stuðið með sesame street útgáfuna

3. Kelis – Milkshake
Kom on, does this not make you wanna shake your milkshake, say holla!
Töff stelpa, prestsdóttir gone haywire með sexy tónlist not bad at all…

2. Nico – These Days
hún er bara svöl, Velvet underground, gorgeous, rokk, pönk, Andy Warhol og var ég búin að nefna Velvet underground?
Finnst þetta lag samt minna mig e-a aðra hljómsveit, er samt ekki að ná ða setja fingurinn á það…

1. Lulu – To sir with love
Krúttlegt, catchy, og hver man ekki eftir að hafa reynt að syngja með og bara endað á því að hummað því maður heyrði aldrei textan almennilega

mmm… girl power…. go eigties ;) nei, vó.. var kannski ninties :P

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Clara, Listar | Comments Off

topp 5 á föstudegi – zvenni

1.8.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Fimm lög sem ég hef verið að hlusta á þessa vikuna. Þar sem ég er ellismellurinn í genginu markast músíkvalið talsvert af því…

Good to See You – Neil Young


Er enn að vinna úr Neil Young tónleikunum á hróarskeldu og sæki sífellt meira í gömlu plöturnar. Silver & Gold er í uppáhaldi þessa dagana. Einföld, róleg og sveitó, jafnvel naívsk á köflum en gott dæmi um mýkri hlið mannsins.

Don’t Worry Be Happy – Bobby McFerrin


Heyrði þetta lag um daginn í einhverri búð og er búinn að vera að glamra það á gítarinn alveg síðan. Ofurjákvæð mantra sungin með kærulausum reggíhreim getur ekki annað en límt sig ínn í heilann og hringsólað þar.

Re: Stacks – Bon Iver


Georg vinur minn var að benda mér á þennan gaur, einhver indíhundur sem heitir Justin Vernon í alvörunni. Hann var sem sagt að gefa út plötu í fyrra sem heitir For Emma, Forever Ago sem eru eflaust gamlar fréttir fyrir mörgum en nýjar og merkilegar fyrir mér.
Skondið hvað sona rólyndis kassagítarvæl og gauragól með vott af laumulegri depurð smýgur í gegn um egóbrynjuna. Fær mann næstum til að langa til að opna sig og tjá hvað mar er í raun og veru að pæla. En sem betur fer er maður fljótur að hrista slíkt af sér, harðlæsa dyrunum aftur og ríghalda í kúlið.

Human Fly – The Cramps


…(talandi um kúl) Ef eitthvað er kúl þá er það rokkabillí, og ef eitthvað er meira kúl en rokkabillí þá er það sækóbillí.

Sister Ray – Velvet Underground


Var að heyra þetta lag um daginn. John Cale surgar á orgeli vörpuðu í gegnum gítarmagnara á meðan Lou Reed syngur um eitthvað sóðalegt í 17 mínútur. Afar skemmtilegt.

Tags: , , , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Kvenmannsnafnalög – zvenni

1.2.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn

Pictures of Lily – The Who
Pictures of Lily made my life so wonderful
Pictures of Lily helped me sleep at night
Pitcures of Lily solved my childhood problems
Pictures of Lily helped me feel alright

Held að það hafi verið álíka mikil uppgötvun fyrir mig er ég heyrði þetta lag fyrst og fyrir strákinn í sögunni er hann uppgötvar myndirnar af Lily. Tónlistarsmekkurinn tók skarpa beygju og leiddi mig út í ýmis hljóðræn ævintýri og enn fleiri króka og hliðargötur.

Stephanie Says – Velvet Underground
Ofur ljúft og þægilegt Underground lag.

Big Black Mariah – Tom Waits
Lag um stórann svartann Ford. Er ekki mikill bílaáhugamaður né mengunarsinni en einhvern veginn magnast upp ákveðin stemmning við þetta lag, eflaust sú stemmning að aka um í löngum amerískum bensínsvolgrandi kagga í reykjarsvælu hlustandi á Waits eða e-ð gott seventís Stones lag.
Heppinn ég að það er til lag sem fangar þessa stemmningu og sparar mér ómakið.

Polythene Pam – Bitlarnir
Lag af uppáhalds bítlaplötuhliðinni minni: B hliðinni á Abbey Road. Upphafs kassagítarhljómarnir alveg svaðalegir, sé reyndar alltaf Pete Townshend fyrir mér taka það með vindmylluáslættinum. Ögn skrítið að rífa það úr heildinni sem B hliðin er en það verður að hafa það… je je je.

Deanna – Nick cave & the Bad Seeds
Our little crimeworn histories
Black and smoking christmas trees
And honey, it ain’t mystery
Why you’re a mystery to me

Lag af plötunni Tender Prey. Rámar í að hafa lesið í ævisögu kappans að það lýsi kynnum hans af Deönnu sem var félagi hans í glæpum á unglingsárunum og vafasömum afrekum hennar. Þó textinn sé myrkur er lagið afar hresst og næstum glaðlegt.

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Listar | Comments Off

Topp 5 lög með kvenmannsnafni í titlinum – Krissa

1.2.2008 - Kristjana

Ég verð bara að fá að svindla og vera snemma í því núna, þessi tímamismunur milli Íslands og Montréal er klárlega ekki mér í hag! ;)

Þessi listi er bara ekki hægt…eftir heilmikinn niðurskurð sat ég samt eftir með 13 lög! 13 lög sem ég gat bara engan veginn valið á milli…

5. Dire Straits – Romeo and Juliet
“You said I love you like the stars above
I’ll love you till I die”

Dire Straits aðra vikuna í röð! Þetta er væmið og cheesy og maður fær hálfgerðan kjánahroll við að hlusta á það en ég elska það samt. Stundum þarf maður bara smá væmni ;)

4. Poni Hoax – Carrie Ann
“And though you don’t like this dress at all
We gave it to you for your communion”

Úr væmninni yfir í bullandi svalleika. Það er eitthvað við byrjunina…og röddina reyndar. Þetta er lagið sem er hægt að hlusta á hvenær sem er. Allt frá lærdómnum eða göngutúrnum heim yfir í skemmtilega dónaleiki.

3. Bob Dylan – Peggy Day
“Well, you know that even before I learned her name,
You know I loved her just the same.”

Það hefði admittedly örugglega verið hægt að velja 5 önnur Dylan lög í þetta sæti. Peggy Day er hinsvegar í uppáhaldi þessa dagana eftir að Nashville Skyline er búin að vera á repeat heima í næstum viku. Stutt og skemmtilegt næstum Presley skotið country lag með ‘hint af keim’ af orðaleik í textanum. Er hægt að biðja um meira?

2. Beck – O Maria
“The fabric of folly is falling apart at the seams…”

Ég var næstum búin að gleyma þessu lagi. Lágstemmt og flottur texti…Beck í góðum gír. 2008 er 10 ára afmælisár Mutations, ekki úr vegi að fagna með því að renna henni í gegn eins og einu sinni ;)

1. Michael Jackson – Billie Jean
“She Told Me Her Name Was Billie Jean,
As She Caused A Scene
Then Every Head Turned With Eyes That Dreamed Of Being The One
Who Will Dance On The Floor In The Round”

Ég gat bara alls ekki sleppt Billie Jean, sama hvað ég reyndi að halda öðrum lögum inni á kostnað þess…ekki hægt. Michael Jackson þegar hann var enn mun dekkri og mun svalari! Þetta er bara klassík.

Og já, Kanye West remixið er líka flott ;)

Honourable mentions eru því:
Sweet Jane, Velvet Underground, Patti Smith&Leonard Cohen og Cowboy Junkies útgáfurnar eru allar æði
Ramones – Sheena is a Punk Rocker
Belle and Sebastian – Sukie in the Graveyard
Jolene, sú upphaflega með Dolly og u.þ.b. 10 cover útgáfur! :)
The National – Squalor Victoria
Camera Obscura – Razzle Dazzle Rose
The Libertines – What Katie Did
Bright Eyes – Lua (“When everything is lonely I can be my own best friend
I’ll get a coffee and the paper, have my own conversations
” fer aaalveg með mig!)

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin