Tónleikar vikunnar *laugardagurinn uppfærður*
3.11.2010 - Georg Atli
Það er allt brjálað að gera í þessari tónleikaviku og þess vegna verður tónleika rándöppið þrískipt!!
Fyrst ber að nefna tónleikaröðina hjá Ting:Direkt, en þar eru aldeilis fínir tónleikar á döfinni.
Á Fimmtudeginum verður danska hljómsveitin Slaraffenland, færeyingarnir í Budam og íslenska stórsveitin Orphic Oxtra í Tjarnarbíó. Showið byrjar kl. 21:00, en þess má geta að balkansveitin Orphic Oxtra voru að gefa út sína fyrstu plötu og það sem ég hef heyrt lofar mjög góðu… en meira um það síðar.
Föstudagurinn stendur fyrir partý en þá verða norsararnir í Datarock og íslensku böndin Retro Stefson og Berndsen. Þetta verður á NASA og það opnar kl. 22:00 og stuðið verður væntanlega geðsjúkt því að öll þessi bönd kunna rosalega vel að spila á tónleikum!

Á laugardeginum verða Hjaltalín og Scola Cantorum að sýna listir sínar ásamt Wildbirds & Peacedrums, sem eru sænsk, að spila í Fríkirkjunni kl. 20:00. Miðar á alla hátíðina er hægt að kaupa á miði.is (3900 kr) og síðast þegar ég vissi var ekki uppselt og það er líka hægt að kaupa miða á stök kvöld (1500 á fyrri tvo tónleikana og 2900 kr fyrir miða á Hjaltalín og co.).
Hjá Hemma og Valda er svo allt morandi í gúmmelaði, þar verður haldin “Off-Venue Aftershock” helgi. Nánast non-stop tónleikar alla helgina og það kostar ekkert inn!!! Dagskráin er hér:
Föstudagur 5 nóv*
19:00 Jóhann Kristinsson
20:00 Danny Malone (US)
21:00 Blæti
22:00 Júníus Meyvant
23:00 Orphic Oxtra
00:00 Bróðir Svartúlfs
01:00 Vicky
*Laugardagur 6 nóv*
18:00 Heima
19:00 Ylja
20:00 TBA
21:00 Mukkaló
22:00 Andvari
23:00 7 Berg
00:00 Maxe and the crackers
01:00 Futuregrapher
*Sunnudagur 7. nóv*
18:00 The moody orchestra
19:00 Bowen Staines (US)
20:00 Ylja
21:00 Johnny Stronghands
22:00 Enkidu
Í kvöld (miðvikudag) verða svo Skúli Mennski og hljómsveitin Grjót á Rósenberg og á Faktorý verða ókeypis tónleikar í nafni Stage Europe Networks. Þar verða hljómsveitirnar Hunting the Robot, …Kleinstadthelden, California Stories Uncovered, Geriko, World Service og The Assassin of a Beautiful Brunette, sem sagt mikið stuð í gangi þar.

Á fimmtudagskvöldinu verða tvennir útgáfutónleikar. Á Faktorý verður Sing For Me Sandra að fagna plötunni sinni, sem heitir Apollo’s Parade (hægt að hlusta hér!) og hún verður amk spiluð öll og hver veit hvað gerist meira en það! Who Knew ætla að hita upp og það er Ókeypis inn. Hinir útgáfutónleikarnir verða svo á Sódómu, en þar verða Cliff Clavin liðar væntanlega að gera allt vitlaust með sinni plötu,The Thief’s Manual. Sú plata er ansi góð og lög af henni hafa verið í ansi mikilli útvarpsspilun. Þar kostar 1000 kr. inn og opnar húsið kl. 21:00. Ef að einhverjum þótti þetta ekki níg þá verður hinn frábæri Prins Póló líka með útgáfutengda tónleika. Þeir verða á Venue kl. 21:00. Þar kostar ekki krónu inn og er enginn veit hvað/hverjir/hver Prins Póló er þá er amk hægt að hlusta á plötuna Jukk hér (áfram gogoyoko!!)
Á föstudagskvöldið er planið svona:

Danny Malone & Jóhann Kristinsson verða á Rósenberg. Svo áttu DR. Spock að vera á Faktorý en þeir þurftu að aflýsa vegna veikinda. Í Staðinn er hægt að fara á “sveittra bar-tónleika” á Sódómu þar sem Hjálmar og Nolo verða með partý af því að það var að koma út 200 síðna(!) ljósmyndabók um Hjálma. 1500 kr. miðinn þangað, bara selt við hurð og hún opnar kl. 22:00.
Danny Malone ætlar að aftur að vera á Rósenberg á laugardaginn en að þessu sinni er það Lára Rúnars sem ætlar að spila með honum. Á Faktorý verða svo, ótrúlegt en satt, ókeypis tónleikar! Núna er Fuzzfest og þar ætla að spila Dandelion Seeds, The Vintage Caravan, Perla, Sleeping Giant og Stg.Miller Misbehavious Daughters. Á Sódóma verða svo stórstjörnurnar Sverrir Stormsker og Kalli Bjarni. Stormsker ætlar að flytja nýtt efni af væntanlegri plötu og samkvæmt fréttatilkynningu þá munu þeir “rugla saman reitum og reita af sér rugl í bland við gömlu góðu perlurnar sem verða teknar í nýjum búningum!!” að getur ekki orðið neitt annað en merkilegt, húsið opnar kl. 22:00 og það kostar 1000 kr. inn.
Nánari upplýsingar og hugsanlega tengla má svo finna í dagatalinu okkar hérna til hægri (og niður býst ég við…) og ég ætla að ítreka enn einu sinni að ef einhver veit um eitthvað sem hvorki er í upptalningunni né á dagatalinu að senda okkur endilega línu á toppfimmafostudegi@gmail.com.
Tags: ...Kleinstadthelden, Berndsen, Budam, California Stories Uncovered, Cliff Clavin, Dandelion Seeds, Danny Malone, Datarock, Dr. Spock, Geriko, Hjálmar, Hjaltalín, Hunting the Robot, Jóhann Kristinsson, Kalli Bjarni, Lára Rúnarsdóttir, Nóló, Orphic Oxtra, Perla, Prins Póló, Retro Stefson, Scola Cantorum, sing for me sandra, Skúli Mennski og hljómsveitin Grjót, Slaraffenland, Sleeping Giant, Stg.Miller Misbehavious Daughters, Sverrir Stormsker, The Assassin of a Beautiful Brunette, The Vintage Caravan, Who Knew, Wildbirds & Peacedrums, World Service
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off

