Biogen minningartónleikar
22.2.2012 - Kristín Gróa
Okkur barst eftirfarandi tilkynning:
Biogen minningartónleikar verða haldnir á vegum Möller Records í samstarfi við Weirdcore, Extreme Chill og Muhaha Records á Nýlenduvöruverslun Hemma & Valda, fimmtudagskvöldið 23. Febrúar frá kl. 20.00 til 01.00.
Tónleikarnir verða með svipuðu sniði og þeir voru á síðasta ári þegar Extreme Chill voru með þá á Kaffibarnum, þeas margir vinir Bjössa heitins koma að því að spila saman og heiðra minningu hans.
Sigurbjörn Þorgrímsson var vel þekktur hér á landi sem einn af frumkvöðlum í íslensku dans og raftónlistar senunni og naut mikillar virðingar sem tónlistarmaður bæði hérlendis og erlendis.
Bjössi hefði átt 36 ára afmæli þann 24. Febrúar og verður sunginn afmælissöngurinn á miðnætti.
Tónlistarmenn sem koma fram eru Skurken, PLX, Beatmaking Troopa, Cold, Jafet Melge, ThizOne, Quadruplos, Steve Sampling, Fu Kaisha og Yoda Remote.
Dj Árni Vector og Dj AnDre verða svo með tónlist á milli atriða og halda fólkinu í gírnum.
Við biðjum fólk á að mæta tímanlega og fá sér einn kaldan á barnum, eða rjúkandi heitt Hemma & Valda kaffi.
Sjáumst hress og BIOGEN skapi með Möller Records, Weirdcore, Extreme Chill, Muhaha Records, Ofur hljóðkerfi og Hemma & Valda.
Tags: Beatmakin Troopa, Biogen, Cold, Dj AnDre, DJ Árni Vector, Extreme Chill, Fu Kaisha, Jafet Melge, Muhaha Records, Möller Records, PLX, Quadruplos, Skurken, Steve Sampling, ThizOne, Weirdcore, Yoda Remote
Flokkað undir Kristín Gróa, Tilkynning | Comments Off
Heiladans 7: Iceland Airwaves Upphitun!
11.10.2011 - Georg Atli
Hvenær:
Þriðjudaginn 11. Október.
frá kl. 19:30 til 1:00.
Hvar:
Nýlenduvöruverslun Hemma og Valda
FUTUREGRAPHER / PLAT / SUBMINIMAL / THIZONE / SKURKEN / PLX / YODA REMOTE
Möller Records kynnir Iceland Airwaves upphitun ásamt því að kynna enn fremur geislaplötuna Gilsbakki með tónlistarmanninum Skurken - sem hefur fengið frábæra dóma, m.a. **** stjörnur bæði í Fréttablaðinu og Fréttatímanum, auk þess að hafa fengið góða rýni erlendis, t.d. hjá Igloo Magazine.
Tónlistarmenn kvöldsins verða ekki af verri endanum, en það er rjóminn af íslenskri raftónlist sem sér um að hita upp fyrir Iceland AIRWAVES, sem byrjar á Miðvikudaginn.
FUTUREGRAPHER
PLAT
SUBMINIMAL
THIZONE
SKURKEN
PLX
YODA REMOTE
Við biðjum fólk á að mæta tímanlega og fá sér einn kaldan á barnum, eða rjúkandi heitt Hemma & Valda kaffi.
Sjáumst hress og kát í Airwaves-skapi með Möller Records, Ofur hljóðkerfi og Hemma & Valda.
- Möller Records.
Tags: Airwaves 2011, Futuregrapher, Plat, PLX, Skurken, Subminimal, ThizOne, Yoda Remote
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning, Tónleikar | Comments Off
Fjórða útgáfa Möller Records lítur dagsins ljós: Fu Kaisha – Porth/Mangaster.
25.8.2011 - Georg Atli
Möller Records kynnir, Helga004: Fu Kaisha – Porth/Mangaster
Við hjá Möller Records erum stoltir að kynna frumraun tónlistarmannsins Fu Kaisha (Dagbjartur Elís Ingvarsson) – Porth / Mangaster. Fólk hefur beðið með mikilli eftirvæntingu eftir þessari skífu, enda Dagbjartur talinn vera einn efnilegasti raftónlistarmaður Íslands.
Skífan inniheldur tvö lög eftir Fu Kaisha – Porth og Mangaster - ásamt endurhljóðblöndun frá tónlistarmönnunum Condition Indicator (sem er óþekktur strákur frá Efra-Breiðholti) og Mouge, betur þekktur sem Matti úr hljómsveitinni Bob.
Tónlistin á Porth / Mangaster er sýruskotin heiladanstónlist með tregablendnum hljóðheimum inn á milli, sem minnir helst á listamenn eins og AFX og Wisp. Skífan er tekin upp í hljóðverinu hans Fu Kaisha, sem er staðsett á Hverfisgötu, en öll endurvinnsla er í höndum Smurfen (Jóhann Ómarsson).
Hægt er að nálgast skífuna á heimasíðu Möller Records en einnig verður hægt að kaupa sérmerkt eintak af skífunni á CDr á næsta Heiladans kvöldi í September sem verður nánar auglýst síðar.
Almennt um Möller Records:
Ný tónlistarútgáfa hefur verið sett á laggirnar og mun hún sérhæfa sig í íslenskri raftónlist. Forsprakkar útgáfunnar eru Jóhann Ómarsson, sem gengur undir listamanns nafninu Skurken, og Árni Grétar, betur þekktur sem Futuregrapher. Tónlistarmenn sem þegar eru komnir á skrá eru ekki af verri endanum, en það eru t.d. Prince Valium, Tonik, Steve Sampling, Yoda Remote ásamt Futuregrapher og Skurken.
Möller Records stendur einnig reglulega fyrir tónlistarkvöldum þar sem listamenn fá tækifæri á að koma tónlist sinni á framfæri. Kvöldin bera heitið “Heiladans” og eru haldin í hverjum mánuði á Hemma & Valda, laugavegi 21.
Tags: Bob, Condition Indicator, Fu Kaisha, Futuregrapher, Mouge, Prince Valium, Skurken, Smurfen, Steve Sampling, Tonik, Yoda Remote
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off
Tilkynning frá Möller Records
6.7.2011 - Georg Atli
Íslenska tónlistarútgáfan TomTom Records fær hótun um lögsókn frá hollenska fjarskiptarisanum TomTom International B.V. – Nafni útgáfunnar breytt í Möller Records.
Forsaga málsins:
Fulltrúar hollenska fjarskiptarisans TomTom International B.V höfðu samband við forsvarsmenn TomTom Records á Íslandi og gerðu athugasemdir við notkunina á orðinu “TomTom”. Telja þeir hollensku sig hafa algeran einkarétt á notkun orðsins TomTom á Íslandi. Jafnframt telja þeir notkun TomTom Records á orðinu vera einhvers konar ógn við markaðsstarf fyrirtækisins sem gæti jafnframt skaðað ímynd þess.
Okkar viðbrögð:
Þessi athugasemd kom okkur dálítið undarlega fyrir sjónir. Við töldum okkur vera í rétti við að nota nafnið TomTom Records þar sem úti um allan heim eru starfandi hin ýmsu fyrirtæki sem bera forskeytið TomTom og því ansi sérstakt að hollenski risinn beini spjótum sínum sérstaklega að íslenskri plötuútgáfu með tvo starfsmenn. Auk þess störfum við á allt öðrum vettvangi en hollenska fyrirtækið, gefum út tónlist en seljum ekki raftæki þannig við töldum litla hættu á hagsmunaárekstrum. Hins vegar höfum við hvorki tíma né peninga til að standa í málaferlum og höfum því tekið ákvörðun um að breyta nafninu á útgáfunni. Héðan í frá mun hún bera nafnið Möller Records. Heimasíðan hefur verið færð yfir á lénið www.mollerrecords.com. Öll starfsemi helst óbreytt þrátt fyrir þessa nafnabreytingu.
Framundan hjá Möller Records:
Það eru mikið framundan hjá Möller Records. Á næstunni kemur út stuttskífan Porth / Mangaster með Fu Kaisha, sem hefur getið sér nafn sem einn efnilegasti raftónlistarsmiður landsins. Plötunni hefur verið beðið með mikilli eftirvæningu af tónlistarspekúlöntum jaðarsenunnar. Fjótlega í kjölfarið mun koma út frumraun tónlistarmannsins Futuregrapher, sem ber heitið Hrafnagil. í September kemur svo breiðskífa með Skurken og auk þess þess höldum við ótrauðir áfram að gefa út á netinu í niðurhalsformi. Mánaðarlegu “Heiladans”-kvöld sem Möller stendur fyrir hafa gengið framar vonum og verið fullt út úr húsi á þeim öllum hingað til. Greinilegt er að mikil gróska er í íslenskri raftónlist þessa dagana. Næsta “Heiladans”-kvöld verður auglýst síðar, en þar mun t.d. Skurken flytja efni af væntanlegri skífu og Krummi Björgvinsson spila sólóefnið sitt sem hann hefur verið að vinna í undanfarið.
Almennt Um Möller Records:
Möller Records er tónlistarútgáfa sem stofnuð var á þessu ári og sérhæfir hún sig í íslenskri raftónlist. Forsprakkar útgáfunnar eru Jóhann Ómarsson, sem gengur undir listamanns nafninu Skurken, og Árni Grétar, betur þekktur sem Futuregrapher. Tónlistarmenn sem þegar eru komnir á skrá eru ekki af verri endanum, en það eru t.d. Prince Valium, Tonik, Yoda Remote ásamt Futuregrapher og Skurken.
Möller Records stendur einnig fyrir reglulegum tónlistarkvöldum þar sem listamenn fá tækifæri á að koma tónlist sinni á framfæri. Kvöldin bera heitið “Heiladans” og hófu göngu sína í mars síðastliðnum. Þau eru haldin á Hemma & Valda, laugavegi 21 og hafa gengið vonum framar.
Fyrir hönd Möller Records,
Jóhann Ómarsson
Árni Grétar
Tags: Fu Kaisha, Futuregrapher, Krummi Björgvinsson, Prince Valium, Skurken, Tonik, Yoda Remote
Flokkað undir Georg Atli, Tilkynning | Comments Off
Tónleikasamantekt
26.5.2011 - Georg Atli
Jæja samantektin kemur degi of seint en það er samt fullt að gerast og allt það. Sendið okkur línu (eða komment eða eitthvað bara) ef að við erum ekki með okkar á hreinu, toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com
Fimmtudagur
Brother Grass verða með tónleika á Rósenberg. Tónleikarnir byrja kl. 21:15 og það kostar 1000 kall inn, enginn posi.
Afmæli Bob Dylan verður fagnað á Dillon með tónleikum, meira um það hér en þetta byrjar allt saman kl. 22:00.
Seinni tónleikar hljómsveitarinnar Orka verða í Norræna húsinu kl. 20:00 og það kostar ekkert á þá.
Hjálmar verða á gogoyoko tónleikum í Hvítu Perlunni. Þetta verða órafmagnaðir tónleikar sem byrja kl. 21:00 og það kostar 2500 kr. inn og allir tónleikagestirnir fá “hljóðblandaða upptöku af tónleikunum til eignar”!
Þriðju Heiladans tónleikarnir verða hjá Hemma og Valda. Þar verða Epic Rain / Beatmakin Troopa, PLX, Murya og DJ Kári að spila. Frítt inn og þetta byrjar kl. 21:00
Á Faktorý verða Sing for me Sandra, Yoda Remote, UMTBS og Jón Þór (söngvari/gítarleikari Dynamo Fog og Lödu Sport) að spila. Það er ókeypis inn og tónleikarnir byrja kl. 22:00
Föstudagur
Wistaria,Trust The Lies og Moldun verða á Dillon. Ókeypis inn og tónleikarnir byrja kl. 20:00
Ojos de Brujo eru að spila á listahátíð (Hörpu) en ég held að það sé uppselt.
Á Bar 11 verða ókeypis The 59´ers og El Camino í ókeypis Rockabillí veislu. Þetta byrjar klukkan 21:00
Á Faktorý verða Die Ukraniens, Orphic Oxtra og Caterpillarmen. 1500 kr. inn og tónleikarnir byrja kl. 22:00
Á Sódómu verða XXX Rottweiler með tónleika, DJ Stinnson og Limited Copy hita upp. 1300 kr. við hurð, tónleikarnir byrja kl. 23:00 og þið getið valið lög á setlistann hérna
Laugardagur
Á Dillon verða hljómsveitirnar Mighty Good Times og The Wicked Strangers með tónleika. Ókeypis inn.
Á Sódóma verða Skálmöld, Atrum og Darknote. Tónleikarnir byrja kl. 21:00 og það kosta 1500 kall inn og það má alveg geta þess að amk 2 fyrrnefndu böndin verða að spila á Wacken metalfestinu.
Sunnudagur
Sunnujazz á Faktorý um 22:00
Tags: Atrum, Beatmakin Troopa, Caterpillarmen, Darknote, Die Ukraniens, DJ Kári, El Camino, Epic Rain, Hjálmar, Jón Þór, Mighty Good Times, Moldun, Murya, Ojos de Brujo, Orka, Orphic Oxtra, PLX, sing for me sandra, Skálmöld, The 59´ers, The Wicked Strangers, Trust The Lies, UMTBS, Wistaria, Yoda Remote
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off
Tónleikasamantekt *Uppfært*
23.3.2011 - Georg Atli
Að venju þá er bærinn fullur af tónleikum. Eins og alltaf þá reynum við að fylgjast með sem flestu en biðjum við ykkur um að senda okkur einhverskonar línu ef að þið vitið um eitthvað sem við gerum ekki. toppfimmafostudegi[hjá]gmail.com og svo líka facebook-ið eða klassíska commentið bara.
Núna tek ég aðallega saman dagskrána fyrir miðvikudaginn en dagskráin uppfærist eftir því sem að nær dregur helginni þannig að endilega að tjékka á okkur aftur.
Miðvikudagur
Á Sódómu verða árlegir styrktartónleikar Kvennaskólans. Þar verða Sin Fang, Mukkaló, Valdimar, Fonetik Simbol ásamt Kristrúnu Lárus, My Brother is Pale og Kvennókórinn að sjá til þess að kvöldið verði skemmtilegt. Tónleikarnir byrja kl. 20:00 og það kostar bara 500 kall inn sem er ekkert neitt.
Dúettinn Heima verður á Rósenberg. Tónleikarnir byrja kl. 21:30 og það kostar 1000 kall inn.
Á Dillon verður Miðvikudagsmosh. Chino, Klikk og The Neighbours sjá um tryllinginn sem byrjar kl. 22:00 og kostar ekkert inn á.
Fimmtudagur
Stærstu tónleikar kvöldsins verða án efa á Sódómu en þar verður Apparat Organ Quartet með fyrri tónleika sína af tveimur. Í kvöld er það Borko sem að hitar upp og tónleikarnir eru stílaðir inn á vinnandi fólk og byrja því kl. 21:00. Ég held að það séu enn til miðar en ég er ekki viss, best bara að tjékka á 12 Tónum.
Á Faktorý verða Jón Jónsson og Lifun með tónleika. 1000 kall inn og fyrsta band fer á svið kl. 22:00
Á Hemma og Valda verður fyrsta kvöld TomTom Records sem að ber nafnið Heiladans 1 Yoda Remote, Prince Valium, Bypass og Tonik. Kostar ekkert inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00
Á Rósenberg verða tónleikar með Mogadon “ásamt vinum, gestum, leynigestum, gæludýrum og austur-evrópskri þjóðlagahljómsveit”. 1000 kr. inn og tónleikarnir byrja kl. 21:00
Föstudagur
Á föstudeginum verður brjálað að gera fyrir tónleikaþyrsta.
Í fyrsta lagi er fyrsta kvöld Músíktilrauna í Tjarnarbíó. Fullt af efnilegum hljómsveitum þar, tónleikarnir byrja kl. 19:00, og nánar hér.
Síðan eru seinni tónleikar Apparat Organ Quartet á Sódómu. Í þetta skiptið byrja þeir kl. 22:00 og Swords of Chaos hita upp.
Í Slippsalnum verða Agent Fresco og Árstíðir með órafmagnaða tónleika. Húsið opnar kl. 19:30 og það kostar skitnar 1000 kr. inn.
Á Amsterdam verða Vigri, Andvari og Örför. Ókeypis inn og tónleikarnir byrja kl. 23:00
Laugardagur
Á Faktorý ætlar Sin Fang að halda fría tónleika! Þar verður væntanlega hægt að fara og hlusta á lög af einni bestu plötu ársins og líklega eitthvað af eldra efni frá Sin Fang og svo ætla Munnfylli af Galli og O F F líka að koma fram. Húsið opnar kl. 22:00 og ég býst við því að það sé sniðugt að mæta snemma.
Á Sódómu verða styrktartónleikar. Þar verða hljómsveitirnar Morgan Kane, Finnegan, Noise, The Vintage Caraven, Endless Dark og Morning After Youth að troða upp ásamt Bödda úr Dalton. Allir listamennirnir ætla að gefa vinnu sína og allur ágóði rennur óskipur til Krabbameinsfélagsins. Aðgangseyrir eru 1500 krónur að lágmarki, nema að þeir sem eru með mottu borga 1000 kall (en auðvitað mega allir borga meira), húsið opnar 21:30.
Á Dillon verða síðan hljómsveitirnar Vigri, Virtual Times og Friday Night Idols. Þar er frítt inn og húsið opnar kl. 22:30
Sunnudagur
SunnuJazz á Faktorý.
Þá held ég að þetta sé komið í bili…
Tags: Agent Fresco, Andvari, Apparat Organ Quartet, Árstíðir, Borko, Bypass, Chino, Dalton, Endless Dark, Finnegan, Fonetik Simbol, Friday Night Idols, Heima, Jón Jónsson, Klikk, Kristrún Lárus, Lifun, Morgan Kane, Morning After Youth, Mukkaló, Munnfylli af Galli, My Brother is Pale, Noise, O F F, Prince Valium, Sin Fang, Swords of Chaos, The Neighbours, The Vintage Caraven, Tonik, Valdimar, Vigri, Virtual Times, Yoda Remote
Flokkað undir Georg Atli, Tónleikar | Comments Off





