Ný plata frá Beirut
8.6.2011 - Kristjana
Ó sú gleði. Ekki nóg með að tvö lög, East Harlem og Goshen hafi nýlega komið frá Beirut heldur er búið að tilkynna að ný plata kemur frá Hr. Condon og félögum þann 30. ágúst. Yndi yndi og unaður því lögin tvö benda til þess að platan verði góð.
Svolítið löng bið…nema maður sé svo heppin/n að eiga miða á eina (eða fleiri) af þessum tónleikum. En til að stytta biðina er um að gera að hlusta á þessi fyrstu tvö lög aftur og aftur…og aftur.
Beirut – Goshen by ListenBeforeYouBuy
Tags: Beirut, Zach Condon
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off
Loka loka loka uppgjör 2007…Krissa
13.1.2008 - Kristjana
1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
Get ekki fyrir nokkra muni gert upp á milli Arcade Fire á Glastonbury, Beirut á Glastonbury, Justin Timberlake í Bercy og Man Man í Bowery Ballroom alveg í byrjun ársins
The Arcade Fire – No Cars Go
Beirut – Forks and Knives (La Fête)
Justin Timberlake – What Goes Around (Comes Around)
Man Man – Engwish Bwudd
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
Lítið um nýjar uppgötvanir á gömlu dóti, meira svona enduruppgötvanir. Kid A , You Forgot It In People og Broken Social Scene með Broken Social Scene og u.þ.b. allt gamla Belle&Sebastian dótið rataði ansi oft á playlistann.
Radiohead – Everything In Its Right Place
Broken Social Scene – 7/4 (Shoreline)
Belle&Sebastian – Expectations
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
Vá, mér dettur svo ekkert í hug. Jesus Christ Superstar var mjög flott en ekki jafn flott og ég hélt. Svo var frekar svekkjandi að Beirut kæmi ekki á Airwaves…
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Dizzee Rascal plötunni sem kom út á árinu og M.I.A. Ekki hugmynd afhverju, ætlaði alltaf að hlusta meira á en það bara einhvern veginn…gleymdist eða eitthvað.
Dizzee Rascal – Sirens
M.I.A. – Bamboo Banger
5. Hver er bjartasta vonin?
Örugglega frekar ömurlegt val þar sem maðurinn er þegar búinn að gefa út 2 plötur og báðum var vel tekið EN ég segi það bara samt: Beirut!
6. Bónusspurning að eigin vali.
Hvaða hljóðfærum féllstu fyrir á árinu?
Dúddi DÚDDI! Ég held bara að allt sem ég hlustaði á árið 2007 hafi innihaldið harmonikku eða einhvers konar brass tilhneigingu…nú eða bæði. Styð það heilshugar
Tags: arcade fire, Beirut, Belle&Sebastian, Broken Social Scene, Dizzee Rascal, Justin Timberlake, M.I.A., Man Man, Radiohead, Zach Condon
Flokkað undir Listar | Comments Off
Lokauppgjör 2007 – Vignir
11.1.2008 - Fyrrverandi topp fimmarar og gestalistamenn
Já, þá er bara að svara nokkrum spurningum…
1. Hverjir voru bestu tónleikar sem þú sást á árinu?
Þetta var aldeilis gott tónleikaár og margt skemmtilegt sem maður náði að sjá. Á Airwaves stóðu uppi tónleikar Deerhoof, !!! og Of Montreal. En bestu tónleikar sem ég sá voru án alls vafa Arcade Fire á Glastonbury hátíðinni. Frábær tónlist vel spiluð, gríðargóð sviðsframkoma og ótrúlega góð stemning á tónleikum. Að lifa er að syngja með einhverjum þúsundum viðlagið í ‘Wake Up’.
2. Hvaða gamalt dót uppgötvaðir þú á árinu?
Ég fór aðeins að hlusta meira á Bob Dylan á árinu sem hafði fengið að sitja á hakanum í einhvern tíma. Einnig fór ég að dýfa tánni aðeins í gamalt soul. Al Green fékk stundum að fara á fóninn og ‘We’re Having a Party‘ með Sam Cooke er gamla lag ársins! Svo setti ég Magnýl frekar oft á fóninn sem er alltaf sterkur leikur.
3. Hver voru mestu vonbrigði ársins?
Plata Bloc Party, A Weekend in the City, voru mikil vonbrigði og kemst ekki í hálfkvisti við frumburðinn.
Modest Mouse á Glastonbury voru líka nokkur vonbrigði en því má nú bara kenna um greinilega þreytu í hógværu músunum.
4. Hverju ætlaðirðu alltaf að tékka á á árinu en trassaðir?
Panda Bear, nýju White Stripes plötunni, nýju Spoon plötunni og nýju Animal Collective plötunni, sem ég týndi.
5. Hver er bjartasta vonin?
Battles eiga ótrúlega góða debut plötu og eru því sterkir frambjóðendur í þetta. Hins vegar ætla ég að segja að Zach Condon og félagar í Beirut séu bjartasta vonin, því eftir tvær frábærar plötur er greinilegt að hér er mikilvægur unglingslistamaður á ferð. Svo má heldur ekki gleyma Flight of the Conchords sem komu virkilega sterkir inn!
6. Bónus: Hvaða mynd var með besta soundtrackið á árinu?
I’m not there kom út í fyrra en ég sá hana á þessu ári. Ég ætla samt að setja hana sem besta soundtrackið. Frábær Bob Dylan lög í flutningi mannsins sjálfs og leikaranna. Mér fannst mjög gaman að Christian Bale og svarta stráknum en Jim James úr My Morning Jacket stal senunni!
Tags: !!!, al green, Animal Collective, arcade fire, Battles, Bloc Party, Bob Dylan, Botnleðja, Deerhoof, Flight of the Conchords, Jim James, modest mouse, My Morning Jacket, Of Montreal, Panda Bear, Sam Cooke, Spoon, White Stripes, Zach Condon
Flokkað undir Listar | Comments Off
Árslisti – topp 5 lög ársins 2007 – Krissa
29.12.2007 - Kristjana
Aðeins of sein…hef ekkert komist í tölvu sökum flutninga og vesens :/ But here goes:
Ég var bara blown away þegar ég heyrði þetta lag fyrst og verð það enn í hvert skipti sem ég heyri það, þrátt fyrir allt of allt of margar hlustanir! Eitthvað nýtt og spennandi
Eerie og fallegt allt í senn…Röddin hreint út sagt ótrúleg. Ég dett ennþá alltaf út þegar ég heyri þetta lag, þrátt fyrir fáranlega margar hlustanir, það er bara ekki hægt að hugsa um neitt annað meðan maður hlustar á það!
3. Okkervil River – Our Life Is Not A Movie Or Maybe
Hlustaði svo mikið á Black Sheep Boy að ég bjóst ekki við að grípa nýjustu plötuna strax. Ég skipti um skoðun um leið og ég heyrði fyrsta lag plötunnar…!!!
Einn af hápunktum Arcade Fire tónleikanna sem toppfimm meðlimir sáu í sumar og hápunktur plötunnar…þetta er bara frábært lag í alla staði!
Ég elskaði elskaði elskaði Gulag Orkestar og með henni kom Zach Condon sér þægilega fyrir í hópi uppáhalds tónlistarmanna minna. Þegar hann svo minnkaði aðeins balkan áhrifin og bætti í staðinn við frönsk/ítölskum áhrifum á The Flying Clup Cup gulltryggði hann sæti sitt. Platan er enn betri en sú fyrri og ég er búin að spila hana allstaðar á þessu ári: í prófalestri, á ferðalögum, á laugardagskvöldum jafnt og mánudagsmorgnum…virkar jafn vel allstaðar og Nantes er bara extra gott
Tags: arcade fire, Battles, Beirut, Okkervil River, The National, Zach Condon
Flokkað undir Kristjana, Listar | Comments Off
Beirut…JEIJJ!
29.8.2007 - Kristjana

Eftir að hafa hlustað á Gulag Orkestar næstum of oft og beðið alltof spennt eftir að sjá Beirut og fylgdarlið á Glastonbury í júní komst ég að því að Zach Condon og félagar eru bara alveg jafn flott og skemmtileg live og á plötu. Ég held að spilagleðin hafi ekki sýnt sig jafn mikið hjá neinum öðrum sem við sáum – nema þá kannski Klaxons
Í stuttu spjalli við Zach Condon eftir fyrrnefnda tónleika komst ég að því að hann er bara nokkuð hress, finnst blár ópal ekkert svo vondur og á kærustu sem heitir pólsku útgáfunni af nafninu mínu…alltaf jákvæðir eiginleikar!
Það sem meira er: hann tilkynnti líka að hann myndi líklega skreppa aðeins til Íslands í október og spila á Airwaves, enda önnur plata Beirut þá nýkomin út. Ég er því búin að vera veeerulega spennt síðan í júní! Enn er ekkert farið að heyrast um Airwaves performance EN platan, The Flying Club Cup, er hinsvegar komin í spilarann og hljómar vel…allavega jafn vel og sú fyrsta! Engar stórvægilegar breytingar kannski, svolítið meira af því sama – harmonikkan, ukulele-ið, mandólínið og hornin enn á sínum stað – en þó er einhver munur, eitthvað sem ég næ ekki alveg að benda á…
En mér finnst allavega vel þess virði að tékka á þessum lögum (og helst bara plötunni allri):
Nantes
The Penalty
Forks and Knives (La Fête)
Tags: Airwaves, Beirut, Glastonbury, Klaxons, Zach Condon
Flokkað undir Óflokkað | Comments Off

