Til hammó með ammó!

18.3.2010 - Kristjana


1. Topp fimm á föstudegi varð þriggja ára í vikunni (þann 16.). Í tilefni af því fáum við þrjú random þrista lög:

Jay-Z – 99 Problems því 99 er deilanlegt með 3
De La Soul – 3 is the Magic Number for obvious reasons
The Arcade Fire – Neighborhood #3 (Power Out) því ég get ekki beðið eftir nýja frá Arcade Fire!

2. Í dag voru 840 færslur á Topp fimm. Í tilefni af því fáum við þrjú random lög sem saman mynda 840:

8 Tapes ‘n Tapes – Crazy Eights
4 Feist – 1, 2, 3, 4
0 Koop remixið af Zero 7 – In the Waiting Line

3. Það þarf nauðsynlega að halda upp á svona stórafmæli þannig að á morgun verður föstudagssurprise!

Tags: , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Óflokkað | Comments Off

Topp 5 remix – Krissa

7.11.2008 - Kristjana


5. Kings of Convenience – I Don’t Know What I Can Save You From (Röyksopp remix)
Byrjum bara á smá rólegheitum. Gott all round. Svo minnir það mig líka á bæði systkini mín :)

4. Zero 7 – In the Waiting Line (Koop remix)
Mér finnst upprunalega lagið gott og þetta æði! Skil ekki hvernig mér tókst að láta Koop fara algjörlega framhjá mér þar til síðastliðinn vetur. Fullkomið til að skella á þegar maður er að hafa sig til fyrir föstudagskvöldið ;)

3. Klaxons – Atlantis to Interzone (Crystal Castles remix)
Kristín á það víst til að hækka borðið sitt í vinnunni og standa þegar hún forritar. Þá kemur það líka stundum fyrir að hún fer að dilla sér við tónlistina. Þetta er pottþétt eitt af lögunum sem verður til þess að hún hækkar borðið! Engan veginn hægt að sitja kyrr þegar maður hlustar á þetta.

2. Yelle – À Cause des Garcons (Tepr remix)
Horfið bara á videoið! Þarfnast ekki frekari rökstuðnings ;)

1. Death From Above 1979 – Blood On Our Hands (Justice remix)
Föstudagslag!

Tags: , , , , , , , , ,
Flokkað undir Kristjana, Listar | 2 athugasemdir »

Topp 5 bíólög – Vignir

27.7.2007 - Kristín Gróa

Þetta var einn af mínum uppáhalds listum þar sem að ég er mikill kvikmyndaaðdáandi. Ég er samt svo viss um að ég sé að gleyma einhverju rosalegu á listanum mínum að ég er pínu smeykur við að setja þetta inn, but here goes…

5. Gary Jules – Mad World (Donnie Darko)
Gullfallegt cover Gary Jules af gamla Tears for Fears laginu. Þetta lag er notað í endann á myndinni þegar allir karakterar myndarinnar vakna af vondum draumi(eða hvað?). Lagið setur rosa flottan punkt yfir i-ið.

4. Stealers Wheel (Reservoir Dogs)
“Look Kid! I’m not gonna bullshit you, OK! I don’t really give a good fuck what you know and don’t know. I’m gonna torture you anyway.”
Mr. White er alveg fullkominn sadisti í þessu atriði og leikur sér að því að gera seinustu mínútur löggunnar þær verstu sem hann gæti ímyndað sér. Hápunkturinn er samt þó þegar hann setur þetta ofurhressa lag á og byrjar að dansa áður en hann fer að skera og skera.

Það væri hægt að fylla þennan lista alfarið með atriðum úr myndum Tarantinos en ég ákvað að smella þessu inn út af því að það gleymist stundum.

3. Elton John – Tiny Dancer (Almost Famous)
Eitt af þessum mómentum sem er mjög erfitt að ná á filmu. Hérna er sýnt fram á hvað tónlist getur verið ótrúlega sterkt tilfinningatól og getur tengt okkur saman. Lagið minnir alla á af hverju þeir eru að þessu, af hverju þeir eru að hanga í þessari rútu og með hvorum öðrum. Tónlistin og ástin á henni heldur þeim gangandi. Endalínan er síðan alveg frábær:
“I need to go home!”
“You are home!”

2. Zero 7 – In the Waiting Line (Garden State)
Frábært dæmi um notkun tónlistar til að setja “mood” í atriðið. Hérna eru allir út úr reyktir og á ýmsu eiturlyfjadópi. Til að sýna fram á ástand söguhetjunnar er notast við slow og fast motion og ótrúlega góða klippingu. Svo er lagið notað til að setja enn meiri áherslu á þessar snöggu breytingar. Hægt lagið passar vel við hægu hreyfingarnar en illa við þær hröðu og setur alveg ótrúlega flottan dáleiðandi blæ yfir allt saman.

Annars þá mætti líka benda á að það væri hægt að gera þennan lista eingöngu með lögum úr Garden State. Bæði Shins lögin, Let Go með Frou Frou og mörg fleiri lög gera þessa mynd og atriðin sem þau eru í enn sterkari fyrir vikið.


1. The Pixies – Where Is my Mind (Fight Club)

Fight Club er uppáhalds bíómyndin. Punktur. Ég hef horft á þessa mynd svo endalaust oft og get alltaf fengið nýjar hugmyndir úr henni, séð nýjar hliðar, fundið nýja brandara og misst mig yfir tæknilegu vinnslunni. Endirinn á þessari mynd er síðan alveg ótrúlegur og ef þú hefur ekki séð myndina þá skaltu hætta að lesa núna og fara og finna hana og horfa á.
Eftir að lærlingurinn hefur lært allt af meistaranum og klárað kennslustundina með því að drepa hann hefur hann loksins öðlast eigið líf. Þetta mikla sálarstríð endar svo á sameiningunni með einu sönnu ástinni og svo bestu endalínu á bíómynd sem ég veit: “You met me at a very strange time in my life”. Svo byrjar Pixies lagið sem er svo einmitt það sem vantaði þarna. Fullkomnun!

Honorable mentions:
Proppelerheads – Spybreak (The Matrix) – Common! Þetta var heví svalt þangað til að þetta var notað alls staðar, sérstaklega í öllu íslensku sjónvarpsefni!
Kenny Rogers Just Dropped In (To See What Condition My Condition Was In) (Big Lebowski)
Aimee Mann – Wise Up (Magnolia)
Queen – Don’t Stop Me Now (Shaun of the Dead)

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,
Flokkað undir Listar | 2 athugasemdir »

Fylgstu með!

  • Facebook

Næstu listar

Topp 5 Gellur
Topp 5 Hunks
Topp 5 tónlistarmenn sem meikuðu það ekki sóló
Topp 5 Veikindi
Topp 5 sagan á bak við...
Topp 5 Virkar ekki á tónleikum
Topp 5 plötur sem munu fylgja mér alla tíð
Topp 5 Syngja ekki á eigin tungumáli
Topp 5 lög sem ég vil að verði spiluð í jarðarförinni minni
Topp 5 Milestones
Topp 5 Road Trip

Á döfinni

May  2013
Mon Tue Wed Thu Fri Sat Sun
   
  1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31  

Disclaimer

We want to share the music we love with our readers in the hope that they will buy it and love it too.

All music posted to this site is available for a limited amount of time but if you are representing an artist and want a track removed please contact us at toppfimmafostudegi@gmail.com and we will remove it immediately.

Topp fimm hlustar á

Eldri færslur

Admin